Erlent

Fyrrverandi eiginkona Kelley lýsir hatrinu sem bjó innra með honum

Atli Ísleifsson skrifar
Hin 25 ára Tessa Brennaman segir í samtali við CBS News að Kelley hafi haft illa anda eða hatur sem bjó innra með honum.
Hin 25 ára Tessa Brennaman segir í samtali við CBS News að Kelley hafi haft illa anda eða hatur sem bjó innra með honum.
Fyrrverandi eiginkona Devin Kelley, mannsins sem banaði 26 og særði um tuttugu í skotárás í kirkju í Texas á sunnudag, segir Kelley hafa beitt sig andlegu og líkamlegu ofbeldi og hótað að drepa hana og alla fjölskyldu hennar.

Hin 25 ára Tessa Brennaman, sem var fyrsta eiginkona Kelley, segir í samtali við CBS News að Kelley hafi haft „illa anda eða hatur sem bjó innra með honum“.

Kelley játaði árið 2013 fyrir í herrétt að hafa slegið, sparkað og tekið þáverandi eiginkonu sína hálstaki, auk þess að hafa verið valdur að áverkum á höfði stjúpsonar síns, sonar Brennaman. Var Kelley hann dæmdur í árs fangelsi, en hann starfaði innan flughersins á herstöð í Nýju-Mexíkó.

Brennaman lýsir í viðtalinu hvernig Kelley á einum tímapunkti hafi hótað að drepa hana eftir að hún fékk hraðasekt. „Hann var með byssu í hulstrinu og hann tók hana út og beindi henni að enninu mínu og sagði mér „Viltu deyja? Viltu deyja?“ lýsir Brennaman.

Kelley hóf árásina fyrir utan kirkjuna og drap þar tvo áður en hann hélt inn í kirkjuna þar sem sunnudagsmessa stóð yfir. Árásin þar stóð í um sjö mínútur áður en hann fór aftur út. Hann flúði af vettvangi í bíl sínum en skaut síðar sjálfan sig eftir eftirför tveggja bæjarbúa.

Vegna dómsins sem hann var með á bakinu hefði hann í raun ekki átt að getað keypt skotvopn, en vegna mistaka hjá starfsmönnum hersins gleymdist að tilkynna málið til alríkislögreglunnar.


Tengdar fréttir

Þetta vitum við um árásina í Texas

26 eru látnir eftir að karlmaður hóf skothríð í kirkju í Texas í morgun. Um er að ræða mesta fjöldamorðið í sögu Texas-ríkis.

Hafði áður ráðist á konu sína og barn

Alls fórust 26 í skotárás í Texas. Morðinginn hafði þjónað í flughernum en verið rekinn fyrir líkamsárásir. Tveir menn eltu hann uppi og eru hylltir sem hetjur.

Kelley drap ömmu eiginkonu sinnar í kirkjunni

Lögregla staðfesti í gær að Kelley hafi sent tengdamóður sinni hótanir í textaskilaboðum, en hún var tíður gestur í kirkjunni þar sem ódæðið var framið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×