Sport

Bisping lenti í harkalegu rifrildi við Masvidal | Myndband

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Bisping var ekki hrifinn af Masvidal.
Bisping var ekki hrifinn af Masvidal. vísir/getty
Michael Bisping og Jorge Masvidal eru báðir að berjast á UFC 217 annað kvöld. Þeir eru samt ekki að berjast við hvorn annan og eru ekki í sama þyngdarflokki. Samt lentu þeir í svakalegu rifrildi.

Þá var Bisping á leiðinni á opnu æfinguna í Madison Square Garden. Sem betur fer var aðalöryggisvörður UFC, Security Steve, á svæðinu og hann sá til þess að þeir fóru ekki að slást.

Ekki er nákvæmlega vitað af hverju í ósköpunum þeir voru eiginlega að rífast.

„Ég veit í alvörunni ekki hver hann er. Hann er bara að rífa kjaft og ég svaraði fyrir mig. Það þurfti að segja mér hver þetta væri. Ég hef heyrt að hann sé drullusokkur og hann klárlega hagar sér eins og slíkur,“ sagði Bisping.

Myndbandið af þessu má sjá hér að neðan.

MMA

Tengdar fréttir

Rose fékk sér meistaraklippingu

Allir bardagakapparnir á UFC 217 eru komnir til New York þar sem bardagakvöldið risastóra fer fram á laugardag.

Fyrsti upphitunarþátturinn fyrir UFC 217

Stærsta kvöld ársins hjá UFC er um næstu helgi og upphitun fyrir risakvöldið er hafið. Þá verða þrír titilbardagar á dagskránni plús fullt af öðrum áhugaverðum bardögum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×