Boston átti engin svör við gríska undrinu | Myndbönd Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 19. október 2017 07:36 Giannis Antetokounmpo gerði Boston lífið leitt í nótt. vísir/getty
Gríska undrið, Giannis Antetokounmpo, fór á kostum þegar Milwaukee Bucks lagði Boston Celtics að velli, 100-108, í NBA-deildinni í nótt. Antetokounmpo skoraði 37 stig, tók 13 fráköst, gaf þrjár stoðsendingar og stal boltanum í þrígang í leiknum. Þá hitti hann úr 13 af 22 skotum sínum utan af velli og nýtti 11 af 13 vítum sem hann tók. Jaylen Brown skoraði 18 stig fyrir Boston sem hefur tapað báðum leikjum sínum á tímabilinu. Tíu aðrir leikir fóru fram í NBA-deildinni í nótt. Houston Rockets vann meistara Golden State Warriors í gær og í nótt bar liðið sigurorð af Sacramento Kings, 100-105. James Harden skoraði 27 stig og gaf níu stoðsendingar í liði Houston. Eric Gordon kom inn í byrjunarliðið fyrir Chris Paul og skoraði 25 stig og Clint Capela skilaði 22 stigum og 17 fráköstum. Þrátt fyrir að vera án Kawhis Leonard vann San Antonio Spurs átta stiga sigur á Minnesota Timberwolves, 107-99, á heimavelli. LaMarcus Aldridge var stigahæstur hjá San Antonio með 25 stig. John Wall og Bradley Beal, bakverðir Washington Wizards, skoruðu samtals 53 stig þegar liðið bar sigurorð af Philadelphia 76ers, 120-115. Wall skoraði 28 stig og gaf átta stoðsendingar og Beal var með 25 stig.Úrslitin í nótt: Washington 120-115 Philadelphia Orlando 116-109 Miami Detroit 102-90 Charlotte Indiana 140-131 Brooklyn Boston 100-108 Milwaukee Memphis 103-91 New Orleans Dallas 111-117 Atlanta Utah 106-96 Denver San Antonio 107-99 Minnesota Sacramento 100-105 Houston Phoenix 76-124 Portland
NBA Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti Fleiri fréttir Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Sjá meira