Steindi nýjasta andlit Inspired By Iceland: Tekur erfiðasta karókílag heims Stefán Árni Pálsson skrifar 9. október 2017 11:15 Steindi fer á kostum í myndbandinu.
Steinþór Hróar Steinþórsson, betur þekktur sem Steindi Jr., er nýtt andlit Inspired By Iceland en hann kemur fram í nýju myndbandi þar sem farið er yfir erfiðasta karókílag heims. Steindi fer á kostum í myndbandinu sem gengur í raun út á það að segja erfið íslensk orð. Um er að ræða kynningarmyndband fyrir Íslands sem framleitt er af Íslandsstofu. Í myndbandinu fer Steindi yfir málin með ferðamönnum á sinni skemmtilega hátt.Í tilkynningu frá Íslandsstofu segir að íslenska stafrófið verði notað til að fræða ferðamenn um Ísland frá A til Ö og er sérstök áhersla lögð á alla sjö landshlutana. Er meginmarkmiðið að hvetja ferðamenn til að ferðast víðar um Ísland á ábyrgan hátt. „Hver landshluti er kynntur í gegnum 32 orð, eitt fyrir hvern staf í stafrófinu, sem endurspegla einkenni svæðisins. Ætlunin er að hvetja erlenda ferðamenn til að ferðast víðar um landið, á ábyrgan hátt, allt árið um kring í takti við markmið íslenskrar ferðaþjónustu. Gert hefur verið markaðsefni og myndbönd fyrir hvern landshluta í samstarfi við markaðsstofur landshlutanna og aðra samstarfsaðila. Á vefsíðu Inspired by Iceland eru 32 orð fyrir hvern landshluta sem ferðamenn geta notað til að kynnast svæðinu betur. Eftir að hafa kynnt sér efnið er hægt að þreyja örstutt próf til að kanna þekkinguna. Ferðamenn fá einnig að spreyta sig á að syngja á íslensku, því að Steindi Jr. skorar á heimsbyggðina í myndbandi að syngja erfiðasta karaoke lag í heimi, „The A to Ö of Iceland,““ segir í tilkynningu Íslandsstofu sem kynnir þessar nýju áherslur í markaðssetningu á fundi á Hilton Hótel Nordica klukkan 13 í dag. Í myndbandinu hér fyrir neðan má svo sjá ferðamenn spreyta sig á karókílaginu.
Ferðamennska á Íslandi Mest lesið Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Lífið Ugla yfirgefur borgina Lífið Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Lífið Stigu trylltan dans á Saint Pete Lífið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Lífið Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Lífið Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Lífið samstarf Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Lífið Nathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins Lífið samstarf Fleiri fréttir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Sjá meira