Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, segir að þessa dagana sé verið að vinna í innra starfi flokksins í Reykjavík og á Suðvesturlandi. „Við byrjum þar og ætlum að strúktúra hann alls staðar. En við byrjum á byrjuninni af því að það er svolítið í kosningarnar og fyrsta skrefið hjá okkur var að taka ákvörðun yfirhöfuð um að bjóða fram í sveitarstjórnarkosningunum,“ segir Inga.

Þessi fyrrnefnda skipting miðast við það að borgarfulltrúar yrðu áfram fimmtán, eins og þeir hafa verið undanfarin ár. Hins vegar undirbýr forsætisnefnd borgarstjórnar að fjölga borgarfulltrúum í 23. Á þessu stigi liggur þó ekkert fyrir um það hvort þeir verði 15 eða 23 í næstu kosningum.
Verði borgarfulltrúarnir 23 þá mun Sjálfstæðisflokkurinn fá 9 fulltrúa kjörna, VG fær fimm, Samfylkingin og Píratar fá þrjá fulltrúa hvor, Flokkur fólksins 2 og Viðreisn einn.

Eiríkur Bergmann segir sterka stöðu Sjálfstæðisflokksins í könnuninni vera stórmerkilega, í ljósi þess að algjör óvissa ríki um það hver á að leiða flokkinn. „Núverandi forystumaður er að fara, leiðtogaprófkjör hefur verið ákveðið og engar línur ljósar um það hver það verður,“ segir Eiríkur Bergmann.

Páll Magnússon alþingismaður var oftast nefndur þegar spurt var hverja menn vildu sjá sem næsta oddvita Sjálfstæðismanna. Rétt rúm 22 prósent nefndu Pál, 8,3 prósent þeirra sem tóku afstöðu nefndu Svanhildi Hólm Valsdóttur, 6,2 prósent nefndu Áslaugu Friðriksdóttur, 4,5 prósent nefndu Kjartan Magnússon og 4,1 prósent Borgar Þór Einarsson.
Þá nefndu 0,8 prósent Eyþór Arnalds. Hins vegar nefndu 54 prósent einhvern annan. Flest þeirra vildu Bjarna Benediktsson og Davíð Oddsson var líka oft nefndur.
Afar fáir, eða rétt rúmlega fimmtán prósent þeirra sem spurðir voru „Hver finnst þér að eigi að leiða lista Sjálfstæðisflokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 2018?“ tóku afstöðu til spurningarinnar.
Fréttablaðið greindi frá því á dögunum að tveir aðstoðarmenn ráðherra væru orðaðir við framboð í 1. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í komandi borgarstjórnarkosningum; þau Borgar Þór Einarsson og Svanhildur Hólm Valsdóttir. Þá væru Áslaug Friðriksdóttir borgarfulltrúi og Kjartan Magnússon borgarfulltrúi líka að íhuga framboð, sem og Eyþór Arnalds. Síðar var Páll Magnússon nefndur sem mögulegur frambjóðandi.
Aðferðafræði könnunarinnar
Könnun Fréttablaðsins var gerð þannig að hringt var í 1.063 manns í Reykjavík þar til náðist í 791 manns samkvæmt lagskiptu úrtaki þann 28. og 29. ágúst. Svarhlutfallið var 74,4 prósent. Þátttakendur voru valdir með slembiúrtaki úr þjóðskrá. Spurt var: Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til sveitarstjórnarkosninga í dag? Ef ekki fékkst svar var spurt: Hvaða flokk er líklegast að þú myndir kjósa? Ef ekki fékkst svar var spurt Er líklegra að þú myndir kjósa Sjálfstæðisflokkinn, eða einhvern annan flokk? Það er gert í samræmi við aðferðafræði sem þróuð var á Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands. Alls tóku 46 prósent þeirra sem náðist í afstöðu til spurningarinnar.