Sport

Floyd Mayweather sigraði Conor í 10. lotu

Pétur Marinó Jónsson skrifar
Vísir/Getty
Risa boxbardagi Floyd Mayweather og Conor McGregor olli ekki vonbrigðum. Bardaginn var skemmtilegur en Mayweather stóð uppi sem sigurvegari.

Conor McGregor byrjaði vel en þetta var hans fyrsti atvinnubardagi í hnefaleikum. Conor vann fyrstu þrjár loturnar á meðan Floyd Mayweather gerði lítið. Floyd beið hins vegar bara átekta og sótti í sig veðrið þegar á leið bardagann.

Conor þreyttist og þreyttist við hverja lotu sem leið og gaf Floyd honum engan tíma til að ná andanum. Í 8. og 9. lotu virtist þetta bara vera tímaspursmál hvenær Floyd myndi rota Conor.

Conor stóð öll högg Floyd af sér en var ekkert að ógna og virtist bara vera að lifa af enda orðinn örþreyttur. Eftir rúma mínútu í 10. lotu hafði dómarinn séð nóg og stöðvaði bardagann.

Floyd Mayweather nældi sér í sinn 50. sigur á ferlinum og hans 27. sigur eftir rothögg. Báðir hrósuðu hvor öðrum eftir bardagann en Floyd sagði að Conor hefði verið mun betri en hann bjóst við.

Floyd Mayweather lofaði því að hann væri endanlega hættur og mun ekki snúa aftur í hringinn. Óvíst er hver næstu skref hjá Conor McGregor munu verða en ljóst að hann getur borið höfuðið nokkuð hátt eftir bardagann. Margir boxsérfræðingar höfðu spáð því að Conor yrði gerður að aðhlátursefni í hringnum með Floyd en svo var svo sannarlega ekki.

MMA

Tengdar fréttir

Gunnar: Conor klárar Mayweather með rothöggi

Gunnar Nelson telur að Conor McGregor sé bardagamaður sem henti Floyd Mayweather illa. Hann óttast ekki að illa fari fyrir sínum manni þó að Írinn muni þurfa að fara í tólf lotu bardaga gegn einum besta hnefaleikakappa sögunnar.

Búrið: Floyd plataði alla

Bardagi þeirra Conor McGregor og Floyd Mayweather er í brennidepli í Búrinu sem er á dagskrá Stöðvar 2 Sport klukkan 21.00 í kvöld.

Boxreynsla Conor McGregor

Stærsti bardagaviðburður ársins fer fram í nótt þegar Conor McGregor mætir Floyd Mayweather. Þetta verður hans fyrsti atvinnubardagi í boxi en hér förum við aðeins yfir boxreynslu Írans kjaftfora.

Haraldur: Conor skuldar mér samloku

Conor McGregor var svo illa staddur fjárhagslega fyrir nokkrum árum síðan að hann svaf frítt hjá Nelson-feðgum og sló lán fyrir samlokum. Hann verður milljarðamæringur eftir helgina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×