Ágústspá Siggu Kling - Hrúturinn: Undirbúningur fyrir dásamlegan vetur 4. ágúst 2017 09:00
Elsku Hrúturinn minn, þú veist stundum ekki alveg hvað þú átt af þér að gera þegar sumarið er, - frí þarna, frí hérna - og svo finnst þér alltaf að þú hafir ekkert gert í fríinu. Sýndu þessu bara svolítið kæruleysi og leyfðu þér bara að sofa þegar þig langar, endurnýjaðu frumurnar. Þú átt þér að sjálfsögðu óteljandi aðdáendur sem dásama þig því þú ert svo mikil ráðgáta og átt líka svo gott með að vera með öllum aldurshópum, aðlaga þig að aðstæðum og alls konar fólki, og þegar þú skoðar vel eru vinir þínir mjög ólíkir. Þú krefst af þér að vera vinnusamur og þar af leiðandi geturðu gert þig ómissandi, en þér líður illa í meðalmennsku og smásálarlegt fólk pirrar þig framar öllu. Í lífinu ertu undir töfrandi örlögum sem skapa merkilega sögu og stundum sorg og þetta tengist inn í ástina hjá þér því elskhugar þínir birtast oft fyrirvaralaust eða undarlegar tilviljanir verða til að þú kynnist þeim. Þessi örlög leika oft stórt hlutverk í ástalífi þínu, en örlögin þín skapar þú sjálfur áður en þú fæðist inn í þennan heim því þú ert búinn að ákveða pínulitla beinagrind af því sem þú vilt kynnast á Hótel Jörð en þessar persónur eru alltaf tengdar þér úr öðru tímabili, sem sagt ekki þessu lífi, svo það þýðir ekkert fyrir þig að spá og spekúlera mikið í af hverju eru elskhugar mínir svona eða hinsegin, hvers vegna var þetta svona? Þetta tímabil sem þú ert inni í núna er undirbúningur fyrir dásamlegan vetur Þú finnur miklu meira þakklæti gagnvart hinu litla sem gerist hjá þér og nýtur þín eins og blómi í eggi og þó að þú sért ekki að búast við eða leita að virðingu, færðu hana samt. Þú þarfnast alls ekki stöðugrar hvatningar og þolir ekki innihaldslaust smjaður því þá fer þér að leiðast, heldur stendur þú upp og veður í það sem þú ætlar og klárar það. Óþolinmæði og húmor eru skemmtileg blanda af þínum karakter og hjálpa þér áfram vegna þess að þú nennir ekki að bíða eftir því að eitthvað sé gert. Haltu ró þinni þó þér finnist á þessu tímabili að ský hafi dregið fyrir sólu eða næstu mánuði, því að atburðir, þótt þeir séu tengdir álagi, verða til góðs. Svo taktu þessu með stóískri ró því að það raðast upp í hendurnar á þér verkfæri til að leysa þessa erfiðleika og himinninn þinn og hjarta verða sólrík í kjölfarið. Það þýðir ekki fyrir neinn að reyna að taka þig eða rífa niður því þú berst bara af meiri ákefð að því sem þú vilt taka þér fyrir hendur og ef þú ert á lausu, hjartað mitt, hefurðu úr gríðarlegu úrvali að velja af glæsilegum konum og mönnum, en þar sem þú ert keppnis- og veiðimaður skiptir það þig litlu máli, þú ferð bara þínar eigin leið og hún er hárrétt. Setningin þín: Tilvera okkar er undarlegt ferðalag (Pálmi Gunnarsson)Frægir Hrútar: Hera Björk Þórhallsdóttir söngkona, Silvía Lovetank listamaður, Marta María Jónasdóttir á Smartlandi, Björgvin Halldórsson söngvari, Kári Stefánsson vísindamaður, Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti, Hugh Hefner, Birgitta Jónsdóttir pírati, Anna Svava Knútsdóttir leikkona, Ólöf Erla, grafískur hönnunarsnillingur, Elton John söngvari, Salka Sól súperdrottning, Þóra í Atlanta, Sigmar Guðmundsson sjónvarpsmaður, Berglind Pétursdóttir, Steinunn Jónsdóttir, söngkona AmabAdamA, Þórhallur Þórhallsson uppistandari, Kristín Þorsteinsdóttir, aðalritstjóri 365 miðla, Alda í Handy pandy, naglalistakona, Vala Grand, Hjálmar Forni listamaður, Jakob Bjarnar Grétarsson, Elín Björnsdóttir, fyrirlesari og kraftaverkakona.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Aldraður og moldaður Tom Cruise til bjargar jörðinni Bíó og sjónvarp Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Lífið Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Tónlist Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Lífið Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Lífið Lesbíur selja litríka íbúð Lífið Fleiri fréttir Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Sjá meira