Innlent

Vill að verslunarmenn hætti að vinna á frídegi

Sæunn Gísladóttir skrifar
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, vill veita auka frídag.
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, vill veita auka frídag. vísir/stefán
„Þetta er að mínu mati dapurleg þróun. Álag á verslunarmenn er mjög mikið. Þetta eru langir vinnudagar. Grunnhugmyndin upprunalega árið 1894 var frídagur verslunarmanna. Mér hefur alltaf fundist sárt að horfa upp á það hve margir eru að vinna á þessum degi sem ættu að vera í fríi,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.

Á mánudaginn rennur upp frídagur verslunarmanna og er þessi helgi stærsta ferðahelgi ársins. Sökum anna hjá verslunum eru margir verslunarmenn við störf um helgina og á mánudag.

Ragnar vill reyna að finna einhverjar lausnir svo verslunarfólk fái eitthvert frí og einhverja hvíld gegn vinnu á þessum degi. Hann segist ætla að reyna að koma með hugmyndir í þá áttina fyrir næstu kjarasamninga.

„Miðað við breyttar aðstæður á smásölumarkaði og kröfuna um að komast í búð öllum stundum velti ég fyrir mér hvort hægt sé að finna leiðir til að fólk ávinni sér auka frídag fyrir vinnu á þessum degi. Að það fái einhvers konar frí á móti,“ segir Ragnar.

„Mér finnst vera skylda okkar hjá VR að leita allra leiða til að fara aftur í grunninn og reyna að koma með einhverjar hugmyndir fyrir næstu kjarasamninga til þess fyrst og fremst að tryggja að fólk fái frí sitt, annaðhvort mánudaginn eftir eða sem viðbót við aðra orlofsdaga.

Fleiri hugmyndir eru vel þegnar af því að við erum að þróast í þá átt að smásöluverslun er að breytast alveg gríðarlega og við þurfum auðvitað líka að þróa okkur. Það eru hlutir sem hafa verið einhverjar hefðir fyrir en eru barn síns tíma þegar lengra sækir. Þessi frídagur hefur þróast mjög mikið. Þróast í að verða stærsta ferðahátíð ársins með tilheyrandi hátíðahöldum,“ segir Ragnar.

Aðrir formenn hafa þreifað fyrir sér með svona hugmyndum og vill Ragnar Þór halda þeim á lofti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×