
Sjáðu tilþrif Ólafíu á Olympia Fields vellinum | Myndband
Ólafía keppti á PGA-meistaramótinu og var á góðri leið með að komast í gegnum niðurskurðinn.
Þegar sjö holur voru eftir var Ólafía réttu megin við niðurskurðarlínuna en þá fór allt á versta veg. Ólafía fékk fjóra skolla í röð og endaði á fimm höggum yfir pari.
Þorsteinn Hallgrímsson og Friðrik Þór Halldórsson eru staddir í Chicago og fylgdu Ólafíu eftir á hringnum á Olympia Fields í gær.
Í spilaranum hér að ofan má sjá innslag frá þeim félögum, nokkur flott högg hjá Ólafíu og viðtal við unnusta hennar.
Tengdar fréttir

Ólafía: Átti í rauninni aðeins eitt slæmt högg í dag
"Tilfinningin á fyrsta teig var bara góð. Ég var ekkert stressuð og leið bara vel,“ segir Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er íþróttadeild hitti á hana eftir fyrsta hringinn hennar á risamóti. Þetta var fyrsti hringur Íslendings á risamóti.

Ólafía í góðum félagsskap á PGA-meistaramótinu
Phil Mickelson heilsaði uppi á þá kylfinga sem eru styrktir af KPMG, þeirra á meðal Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur.

Faðir Ólafíu segir dáleiðslu hafa reynst henni vel í golfinu
Kristinn J. Gíslason, faðir golfstjörnunnar Ólafíu Þórunnar Kristinsdóttur, segir andlegu hlið golfsins mjög mikilvæga. Hann hefur notfært sér dáleiðsluþekkingu sína og hjálpað kylfingum, þar á meðal Alfreði syni sínum, og auðvitað Ólafíu.

Ólafía úr leik eftir að hafa misst flugið á lokaholunum
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er úr leik á PGA-meistaramótinu í golfi eftir ótrúlegan hring í kvöld. Hún var fyrir innan niðurskurðarlínuna er aðeins sjö holur voru eftir en þá fór allt á versta veg.

Meira fé og fleiri stig í boði fyrir Ólafíu á risamótinu
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir keppir fyrst allra íslenskra kylfinga á risamóti um næstu helgi. Hún fékk fínt veganesti í Arkansas um helgina.

Skýrsla Þorsteins: Ólafía þarf að vera aðeins djarfari
Golfsérfræðingur 365, Þorsteinn Hallgrímsson, er staddur í Chicago til þess að fylgjast með Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur á sínu fyrsta risamóti.

Vil sýna hvað ég spila vel
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir heldur áfram að vera brautryðjandi íslenskra kylfinga þegar hún hefur í dag keppni á stórmóti í golfi, fyrst íslenskra kylfinga. Hún hefur fundið fyrir ofþreytu eftir álag síðustu vikna.

Leik frestað í gærkvöldi vegna veðurs | Staða Ólafíu skánaði
Ekki allir kylfingar náðu að ljúka leik á fyrsta keppnishring PGA-meistaramóts kvenna.

Ólafía spilar á afar krefjandi velli
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hefur leik á KPMG PGA Championship mótinu í dag.

Ólafía: Tilfinningin er æðisleg
Stöð 2 Sport er mætt til Chicago og hitti Ólafíu Þórunni Kristinsdóttir degi áður en hún brýtur enn eitt blaðið í íslenskri golfsögu.

Sjáðu glæsilegan fugl hjá Ólafíu
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er langt komin með sinn fyrsta hring á risamóti í golfi en hún tekur þátt á PGA-meistaramótinu í Chicago.

Skýrsla Þorsteins: Ólafía hefur allt til að geta orðið ein af þeim bestu
Golfsérfræðingur 365, Þorsteinn Hallgrímsson, er staddur í Chicago þar sem hann fylgdist með Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur keppa á sínu fyrsta risamóti.

Ólafía Þórunn fær boð á risamót
Ólafía Þórunn Krisinsdóttir, fyrst allra íslenskra kylfinga á risamót.

Skrautlegur fyrsti dagur hjá Ólafíu
Fyrsti dagur Ólafíu Þórunnar Kristinsdóttur á risamóti í golfi var nokkuð skrautlegur. Eftir frábæra byrjun missti hún flugið á seinni hlutanum á PGA-meistaramótinu.

Ólafía: Phil er alger snillingur
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir segir að Phil Mickelson hafi lag á því að ná til fólks.