Golf

Skýrsla Þorsteins: Ólafía hefur allt til að geta orðið ein af þeim bestu

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ólafía á 10. braut.
Ólafía á 10. braut. vísir/friðrik þór
Golfsérfræðingur 365, Þorsteinn Hallgrímsson, er staddur í Chicago þar sem hann fylgdist með Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur keppa á sínu fyrsta risamóti.

Þorsteinn labbaði hringinn með Ólafíu í gær og sendi okkur þessa skýrslu.

Ólafía hóf leik á 10. teig í dag og byrjaði hún af miklum krafti með dúndurteighöggi á miðja braut og innáhögg um fimm metra frá holu. Hún var um tvo cm of laus í púttinu fyrir fuglinum en þægilegt par á fyrstu braut.

Leikur hennar var ekki alveg eins beittur af teig í dag miðað við í gær þar sem hún hitt átta brautir af 14 en gær hitti hún 11 brautir. En það kom svo sem ekki að sök þar sem hún var yfirleitt innan við metra utan brautar og þar er karginn ekki hár. Innáhöggin voru beittari í dag þar sem hún kom sér nær holu og átti meiri möguleika á að fá fugla.

Ólafía fékk skolla á 12. braut og par á þeirri þrettándu sem setti hana í þá stöðu að vera á einu höggi yfir pari eftir fjórar brautir í dag en samtals á fjórum höggum yfir pari.

Ólafía varð að fá fugla til þess að komast í gegnum niðurskurðinn sem var tvö högg yfir par í allan dag. Hún átti glæsilegt högg inná 14 flötina og stöðvaðist boltinn um 1,5 metra frá holu en pútterinn var eitthvað að svíkja hana í dag og ekki náði hún fyrsta fuglinum þar.

Á fimmtánda teig sem er par 3 braut sló hún fínt högg og boltinn lenti á flötinni en hoppaði útaf henni í þéttan karga. Mátti sjá á okkar konu að hún var mjög ósátt hvernig málin voru að þróast. Hún paraði brautina með snilldar vippi og einhvern veginn sá maður að hún var komin í annan gír.

Par á brautum 16 og 17. Svo kom hún á 18. brautina sem er par 5, hún gerði sér lítið fyrir og sló annnað höggið um 2,5 m frá holu og átti pútt fyrir erni (-2) sem að vísu fór ekki í holu en fugl var það samt og Ólafía lék fyrri níu brautirnar á pari eða samtals á +3 í mótinu sem þýddi að hún var enn fyrir utan niðurskurðarlínuna þar sem 70 efstu keppendurnir komast áfram og leika um helgina.

Þrír yfir pari þýddi 74. sæti og því varð Ólafía að fá fleiri fugla. Hún setti niður um tveggja metra pútt fyrir fugli á 1. braut og var þá komin inn fyrir topp 70 línuna. Ekki versnaði staðan þegar hún fékk aftur fugl á annarri brautinni og þriðji fuglinn í röð leit dagsins ljós og hún komin í 48. sæti.

Í framhaldinu komu fjórir skollar í röð og þar af þrír þeirra eftir þrípútt. Það er spurning hvort að spennan við það að vera komin réttum megin við niðurskurðarlínuna hafi haft eitthvað að segja, ég veit það ekki en þarna datt Ólafia úr takti og púttin hennar að holu voru öll of stutt sem gerði það að verkum að hún átti eftir óþægileg pútt fyrir parinu sem gengu svo ekki.

Á síðustu þremur brautunum átti hún pútt frá 4–7 metrum fyrir fugli en ekki vildu púttin fara í holu frekar en áður.

Niðurstaða:

Stóra spilið (frá teig að flöt) hjá Ólafíu var mjög gott í þessu móti en pútt og vipp í kringum flatirnar hefðu mátt vera betri.

Ekki skal gleyma því að hún er að leika í fyrsta sinn á stærsta sviði kvennagolfsins og þetta er í fyrsta sinn í sögu LPGA að allir kylfingar sem eru á topp 100 á heimslistanum eru með á sama mótinu. Reynslan sem þetta mót færir Ólafíu er ómetanleg þar sem öll umgjörð í kringum mótið er eitthvað sem hún hefur ekki séð áður, það fer í reynslubankann.

Ég er ekki í nokkrum vafa um að Ólafía mun halda keppnisrétti sínum á LPGA eftir þetta tímabil og ég segi það fullum fetum að keppnistímabilið 2019 (eftir tvö ár) þegar hún verður komin með reynslu af því hvernig lífið sem atvinnukona í golfi gengur fyrir sig þá munum við ekki vera að tala um að hún sé að komast í gegnum niðurskurði á mótum á LPGA heldur verður hún í baráttu um sigra.

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er fyrirmynd margra kylfinga og hún stendur fyllilega undir því, alltaf gaf hún sér tíma til þess að gefa eiginhandaáritanir og taka mynd af sér með aðdáendum ungum sem öldnum.

Hún hefur allt sem þarf til þess að verða með þeim bestu í heiminum í golfíþróttinni en hún þarf tíma til þess læra betur á lífið sem atvinnukylfingur, vinna markvisst í því sem má bæta, styrkja það sem er gott og vonandi heldur hún samt áfram að vera Ólafía „okkar“ Þórunn Kristinsdóttir.

Kveðja frá Olympia Fields vellinum í Chicago,

Þorsteinn Hallgrímsson


Tengdar fréttir

Ólafía: Átti í rauninni aðeins eitt slæmt högg í dag

"Tilfinningin á fyrsta teig var bara góð. Ég var ekkert stressuð og leið bara vel,“ segir Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er íþróttadeild hitti á hana eftir fyrsta hringinn hennar á risamóti. Þetta var fyrsti hringur Íslendings á risamóti.

Faðir Ólafíu segir dáleiðslu hafa reynst henni vel í golfinu

Kristinn J. Gíslason, faðir golfstjörnunnar Ólafíu Þórunnar Kristinsdóttur, segir andlegu hlið golfsins mjög mikilvæga. Hann hefur notfært sér dáleiðsluþekkingu sína og hjálpað kylfingum, þar á meðal Alfreði syni sínum, og auðvitað Ólafíu.

Ólafía úr leik eftir að hafa misst flugið á lokaholunum

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er úr leik á PGA-meistaramótinu í golfi eftir ótrúlegan hring í kvöld. Hún var fyrir innan niðurskurðarlínuna er aðeins sjö holur voru eftir en þá fór allt á versta veg.

Vil sýna hvað ég spila vel

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir heldur áfram að vera brautryðjandi íslenskra kylfinga þegar hún hefur í dag keppni á stórmóti í golfi, fyrst íslenskra kylfinga. Hún hefur fundið fyrir ofþreytu eftir álag síðustu vikna.

Ólafía: Tilfinningin er æðisleg

Stöð 2 Sport er mætt til Chicago og hitti Ólafíu Þórunni Kristinsdóttir degi áður en hún brýtur enn eitt blaðið í íslenskri golfsögu.

Sjáðu glæsilegan fugl hjá Ólafíu

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er langt komin með sinn fyrsta hring á risamóti í golfi en hún tekur þátt á PGA-meistaramótinu í Chicago.

Skrautlegur fyrsti dagur hjá Ólafíu

Fyrsti dagur Ólafíu Þórunnar Kristinsdóttur á risamóti í golfi var nokkuð skrautlegur. Eftir frábæra byrjun missti hún flugið á seinni hlutanum á PGA-meistaramótinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×