Júlíspá Siggu Kling - Steingeitin: Hefur mikinn eldmóð og óbilandi hugrekki 7. júlí 2017 09:00
Elsku Steingeitin mín, alls ekki herpa bossann of mikið. Slakaðu bara á því að þitt er lífið og mátturinn. Þú hefur oft lent í erfiðum aðstæðum og erfiðleikar hafa bankað upp á hjá þér, en þú nærð alltaf að forða þér, það er bara í eðli þínu. En það er alveg sama hversu vel gengur, þú finnur samt alltaf leið til að stressa þig og hafa áhyggjur af næstu dögum. Þar af leiðandi er mjög líklegt að þú getir fengið áunna streitukennda sjúkdóma, höfuðverki, magaverki eða eitthvað sem kemur út af stressi eða áhyggjum. Líkaminn endurspeglar alltaf hvað er að gerast hjá þér og mikil fyrirmynd mín, hún Louise L. Hay, gaf út bók fyrir mörgum árum þar sem hún skilgreindi af hverju þú værir með verk þarna eða á hinum staðnum, skoðaðu það. Þú ert týpa sem hefur mikinn eldmóð og óbilandi hugrekki, þú þrífst á áskorunum svo þess vegna lætur lífið þig oft horfast í augu við margslungna hluti til þess að þú getir verið á tánum. Þú vilt elska, en samt ekki, en það er svo mikilvægt að þú gefir þig alla og slakir á og vitir að fólk vill þér vel og hefur rosalega mikla trú á þér. Þú ert orðheppin og elskuð en dettur svo oft í gírinn að vera ringluð og trúa því ekki að allt sé að ganga vel. Þín allra stærsta lexía í lífinu snýst um að elska, og til þess að elska verður þú að elska sjálfa þig jafn mikið og þann sem þú vilt fá inn í líf þitt. Ekki vera heltekin af einhverju gömlu því það fyllir huga þinn og hleypir engu nýju inn. Gefðu ástinni tækifæri, opnaðu þig fyrir nýjum ævintýrum og skoðaðu betur. Það er svo sérkennilegt með þig, elsku Steingeitin mín, að eins trú og trygg og þú ert áttu erfitt með að binda þig. Þú leggur allt þitt líf og kærleika í ástina og ef það gengur ekki upp þá ertu ekki nógu fljót að gleyma og skoða að eitthvað annað gæti fært þér hamingju. Hættu að vera svona rosalega hreinskilin, það er enginn að biðja um það, settu mýkt í orðin og þá færðu það sem þú vilt. Númer eitt, tvö og þrjú ertu fjölskyldumanneskja og tekur allar skyldur því tengdar 100%. Þess vegna er mikilvægt að velja á milli fjölskyldu og vinnu, og finna leiðir til að sameina þetta tvennt. Ef þú ert á lausu áttu létt með að ná þér í ástargyðju eða goð, en þú verður fyrst og fremst að nenna því og leggja þig alla fram, þetta er sumarið þitt. Mottóið þitt er: Breiddu út faðminn og brátt sérðu að þú hefur byrjað hamingjuferð. Ást og friður, Sigga Kling Frægar Steingeitur: Guðjón Pétur Lýðsson markakóngur, Svava Johansen í Sautján, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, dr. Kristín Ólafsdóttir og Davíð Oddsson, Jón Gnarr, Elvis Presley, Gunnar Þórðarson, Tómas Guðbjartsson læknahetja, Lovísa Tómas, Dorrit Moussaieff forsetafrú, Þuríður Blær Jóhannsdóttir, leikkona og Reykjavíkurdóttir, Jesús og Simmi á Fabrikkunni, Óttar Proppé, Ingveldur Ægissdóttir módir og kvunndagshetja, Hendrika Waage hönnuður.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Tapaði ellefu milljónum Lífið „Mig langaði bara að deyja alla daga“ Lífið Stefnir Cameron fyrir að stela andliti hennar Bíó og sjónvarp Dóra og Glassriver náðu samkomulagi Bíó og sjónvarp Fortíðin þvælist ekki fyrir Ara sem gefur í á Tik-Tok Lífið Mikil hvatning ef fólk hlær að fötunum Tíska og hönnun Hvað veistu um… pasta? Lífið Bílahátíð ársins á Kletthálsi: Ofurtilboð í þrjá daga Lífið samstarf Kim tekur sér pásu frá lögfræðinni Lífið Oddvitaáskorunin: Dreymir um skautasvell á torginu Lífið Fleiri fréttir „Mig langaði bara að deyja alla daga“ Fortíðin þvælist ekki fyrir Ara sem gefur í á Tik-Tok Oddvitaáskorunin: Dreymir um skautasvell á torginu Kim tekur sér pásu frá lögfræðinni Tapaði ellefu milljónum Oddvitaáskorunin: Á í haltu mér - slepptu mér sambandi með morgunmat Hvað veistu um… pasta? Almar í kassanum ætlar að sækja um hjá Fox-sjónvarpsstöðinni Oddvitaáskorunin: Kleinan toppurinn á tilverunni Eldpiparshausar í átkeppni Læknuð af þrálátum hita og margra mánaða orkuleysi eftir jógaferð Ellefu ára þegar fyrrverandi maður Mariuh Carey vildi gera hana að stjörnu Sanna hét áður Díana Oddvitaáskorunin: Heillaðist alveg af Guðrið Sigfús Pétursson Álftagerðisbróðir látinn Innipúkar geti farið á „tryllt djamm“ í Austurbæjarbíói í annað sinn Oddvitaáskorunin: Hefði viljað verja meiri tíma í tónlistina Blómstrar á Ítalíu og venst skömmum innfæddra Skráðu dótturina á spjöld sögunnar Gráhærð og aldrei glæsilegri Oddvitaáskorunin: Nína ekki eins miðaldra Mætti með sextán ára gamalt prump bróður síns „Agaleysið er algjört“ Glæsileg hæð í einu fallegasta húsi Hlíðanna Oddvitaáskorunin: Mistök að kenna hundinum á klukku „Lítill verkalýðsprins synti í heiminn“ „Maður hefur verið í feluleik að lifa tvöföldu lífi“ Lively og Baldoni náðu sáttum Bombur landsins fóru í bíó, bað og barre Sigga hefur starfað lengi á toppnum hjá IKEA en ákvað 54 ára að fara í nám Sjá meira