Sport

Mayweather eldri: Ég er 64 ára og mun berja Conor í spað

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Mayweather eldri liggur sjaldnast á skoðunum sínum.
Mayweather eldri liggur sjaldnast á skoðunum sínum. vísir/getty
Mikið hefur verið rætt og ritað um mögulegan bardaga Floyds Mayweather og Conors McGregor.

Nú hefur faðir Mayweathers, Floyd Mayweather eldri, blandað sér í umræðuna og sagt að hann myndi sjálfur vinna Conor í hringnum.

„Hann er ekkert nema kjafturinn. Ég hef sagt fólki að gleyma Floyd. Setjum hann til hliðar,“ sagði Mayweather eldri.

„Hérna er ég, 64 ára gamall karl og ég mun rústa honum. Ég mun berja hann í spað. Ég er klár hvenær sem er,“ bætti sá gamli við.

Mayweather keppti sjálfur á sínum tíma og þjálfaði svo nokkra boxara, þ.á.m. son sinn.

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×