Lífið

Svala opinberar búninginn í nýju myndbandi: Er komin í „mega keppnisskap“

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Svala er stórglæsileg í búningnum, sem hún mun stíga á svið í, í keppninni.
Svala er stórglæsileg í búningnum, sem hún mun stíga á svið í, í keppninni. Vísir/Skjáskot
Svala Björgvinsdóttir, fulltrúi Íslands í Eurovision keppninni, hefur nú loksins opinberað þann búning, sem hún mun koma til með að stíga á svið í, þriðjudagskvöldið 9. maí næstkomandi, og má sjá myndband af honum hér fyrir neðan.

Hún segir að búningurinn tákni stöðu hennar sem bardagakona, hann sé hvítur vegna þess að hann sé tákn vonar. Hún upplifi sig sterka, valdamikla og óttalausa þegar hún fari í búninginn. Lag hennar sé fyrir alla þá sem upplifi erfiða tíma.

Þá segist Svala jafnframt vera tilbúin til að láta ljós sitt skína í keppninni og er hún komin í „mega keppnisskap,“ ef marka má nýja stöðuuppfærslu á Facebook síðu söngkonunnar, sem má sjá hér að neðan. 

Þar segir Svala frá því að hún sé orðin virkilega spennt fyrir morgundeginum, þar sem atriðið verður að sögn Svölu æft í fyrsta skipti fyrir alvöru, með öllu til staðar, sem mun fullkomna atriðið. Síðasta æfing hafi einungis verið svokölluð hljóðprufa.

Það er ljóst að Svala er greinilega í góðu skapi og lætur engan bilbug á sér finna, þrátt fyrir fregnir af einkunnagjöfum blaðamanna, en Svala tekur fram að keppnisskapið hljóti að mega rekja til þess að hún hafi verið staðsett of lengi í „Júrólandinu,“ í léttum dúr. 



Fréttastofa 365 verður með ítarlega umfjöllun frá Eurovision í Kænugarði næstu daga.

Fréttamennirnir Stefán Árni Pálsson og Benedikt Bóas Hinriksson verða með umfjöllun hér á Vísi, Stöð 2, Fréttablaðinu og á Bylgjunni á hverjum degi í gegnum alla keppnina. Þá verður sérstakur vefþáttur á Vísi alla dagana og hefur sá þáttur fengið nafnið Júrógarðurinn.

Hægt verður að fylgjast með ævintýrum Stefáns og Benedikts í Kænugarði á Twitter-reikningi Lífsins og á Snapchat-reikningi 365 sem heitir einfaldlega Snap-365.

Við minnum líka lesendur á að fylgjast með Facebook-síðu Lífsins, Facebook-síðu Vísis og Twitter-reikningi Vísis.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×