LeBron James fór út á lífið í Miami strax eftir leik og spilaði ekki kvöldið eftir Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. apríl 2017 10:00 LeBron James var þreytulegur daginn eftir. Vísir/Getty
NBA-leikmennirnir ættu nú ekki að vera eyða orkunni á skemmtistöðum þessa dagana þegar mikið er undir í lokaleikjum deildarkeppninnar og úrslitakeppnin að hefjast um næstu helgi. LeBron James og tveir bestu vinir hans í Cleveland Cavaliers liðinu voru ekki alveg á sama máli þótt að liðið þeirra væri að spila kvöld eftir kvöld og enn í baráttunni við Boston Celtics um fyrsta sætinu í Austurdeildinni. Cleveland missti niður 26 stiga forystu í fjórða leikhluta og tapaði í framlengingu á móti Atlanta Hawks á sunnudagskvöldið. James var með þrennu og spilaði í 47 mínútur í leiknum en það dugði ekki til. Daginn eftir var hann síðan forfallaður í tapi á móti Miami Heat og sagður vera meiddur á kálfa. Washington Post skrifar um það sem gerðist þennan sólarhring. Fljótlega bárust þó fréttir af því að sést hafði til James ásamt þeim J.R. Smith og Tristan Thompson í næturklúbbi í Miami. Félaganir höfðu stokkið beint upp í flugvél eftir Atlanta-leikinn og heimildarmaður TMZ-síðunnar staðfesti að James, Smith og Thompson hafi verið komnir í næturklúbbinn LIV í Miami seinna um kvöldið. Lokaleikur LeBron James og félaga er í kvöld á móti Toronto Raptors. Hann hefur hvílt í lokaleik tímabilsins frá 2007 og það ætti ekki að koma mikið á óvart að sjá hann í borgaralegum klæðum í síðasta deildarleik tímabilsins. Fyrsti leikur úrslitakeppninnar hjá Cleveland verður annaðhvort á laugardaginn eða sunnudaginn. Það hefur lítið gengið hjá Cleveland Cavaliers að undanförnu og þessar fréttir eru ekki að hjálpa til í pressunni sem er að myndast á NBA-meisturunum fyrir úrslitakeppnina. Næturklúbburinn LIV kom líka við sögu þegar Odell Beckham Jr. og félagar í NFL-liðinu New York Giants fóru út á lífið eftir lokaleik deildarkeppninnar og duttu síðan út úr úrslitakeppninni í fyrstu umferð helgina á eftir. Ef eitthvað er að marka þá þróun mála ættu Cleveland-menn að hafa smá áhyggjur.
NBA Mest lesið John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Tileinkaði Úkraínu sigurinn Sport Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Körfubolti Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Körfubolti „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Enski boltinn Kláruðu leikinn með síðustu spyrnu leiksins Fótbolti Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Fleiri fréttir Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Sjá meira