Jónína Ben úthrópuð og Sigmar fékk sinn skammt fyrir viðtalið Jakob Bjarnar skrifar 31. mars 2017 13:40 Ólafur, Finnur og Valgerður létu öll að því liggja að Jónína væri rugluð og Sigmar fékk miklar skammir fyrir viðtalið.
Í aprílmánuði árið 2005 var Jónína Benediktsdóttir athafnakona í viðtali í Kastljósi. Viðtalið vakti mikla athygli og kallaði fram fordæmingu fjölmargra í bankageiranum. Finnur Ingólfsson og Ólafur Ólafsson voru ekki kátir og létu að því liggja að best væri að leggja Jónínu inn; hún þyrfti að leita sér hjálpar.Sigmar sætir skömmum og blammeringum „Viðbrögðin sem ég fékk við þessu viðtali við Jónínu voru verulega harkaleg, enda var hún svosem ekkert að sykurhúða hlutina. Ekki síst fékk ég viðbrögð úr bankaheiminum, jafnvel skammir og blammeringar, þar sem var býsnast yfir því að Jónína hafi fengið að gagnrýna söluna á bankanum með þessum hætti. Hún sagði margt í þættinum, en nú er ljóst að það sem hún sagði um bankasöluna, var að mestu leyti kórrétt,“ segir Sigmar Guðmundsson í samtali við Vísi.DV fjallaði um hið umdeilda viðtal og leitaði viðbragða hjá þeim Ólafi og Finni. Þeir vísuðu orðum Jónínu út í hafsauga og furðuðu sig á því að RUV væri að birta viðtal á borð við þetta.Jónína greindi meðal annars frá, og sagðist hafa heimildir fyrir því að sala Búnaðarbankans væri svikamylla og Ólafur og Finnur hefðu í raun stolið bankanum með brögðum. Hún vildi sem sagt meina að ýmsum vildarvinum ríkisstjórnarflokkanna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, hafi verið fengin fyrirtæki á silfurfati og nefndi hún nöfn Ólafs, sem á þeim tíma var starfandi stjórnarformaður Samskipa og Finns Ingólfssonar þá forstjóra VÍS í því sambandi.Ekki flugufótur fyrir ávirðingunumDV fjallaði um málið og leitaði viðbragða þeirra Ólafs og Finns. „Ég met það svo að kröftum mínum sé varið í annað og betra en að eltast við Jónínu Ben. Hún þarf örugglega á aðstoð annarra að halda í sínum málum en mér. Það að fá yfir sig lögsókn er ekki til þess fallið að byggja hana upp," sagði Ólafur. En Finnur sendi frá sér yfirlýsingu sem var á eina leið; málflutningur Jónínu væri uppspuni og ósannindi: „Í Kastljósi Sjónvarpsins síðastliðið sunnudagskvöld var dengt yfir þjóðina ótrúlegri blöndu af samhengislausum fullyrðingum, dylgjum, ósannindum og hreinum uppspuna um nafngreinda menn og fyrirtæki. Þar á meðal kom undirritaður við sögu en einnig fyrirtækið sem ég er í forsvari fyrir og var reyndar ranglega útnefndur eigandi að! Það hljóta fleiri en ég að spyrja sig á hvaða leið við erum í þjóðmálaumræðunni þegar það þykir ekki lengur tiltökumál að saka fólk um stórfelld afbrot á opinberum vettvangi án þess flugufótur sé fyrir ávirðingunum.“Sigmar átti undir högg að sækja í kjölfar viðtalsins og Valgerður vandaði hvorki honum né RUV kveðjurnar.Valgerði ofbýður dylgjurnarÍ DV segir einnig frá því, í tengdri frétt, að Valgerður Sverrisdóttir þá bankamálaráðherra, hafi mætt orðum Jónínu, um glæpsamlega hegðun stjórnvalda við einkavinavæðinguna, af mikilli hörku. Og Sigmar vær ákúrur fyrir orð viðmælanda síns. „Mér er ómögulegt að skilja hvaða hvatir ráða því að Sjónvarpið kýs að senda út þátt eins og þann sem landsmönnum var boðið upp á í gærkveldi, þ.e. drottningarviðtal í Kastljósi við Jónínu Ben. Ef svarið er að þátturinn hafi verið í beinni útsendingu þá er það ekkert svar. Þeir sem hafa fylgst með skrifum Jónínu Benediktsdóttur vita um afstöðu hennar til mála. Er allt leyfilegt þegar Framsóknarflokkurinn er annars vegar eða menn honum tengdir, eða sagðir tengdir? Það er augljóslega verið að reyna að hafa áhrif á umræðuna í þjóðfélaginu," sagði Valgerður á heimasíðu sinni og bætti því við að henni ofbjóði vitleysan og dylgjurnar sem bornar eru á borð fyrir alþjóð.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Fleiri fréttir Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Sjá meira