Kaffitár búið að fá tölvupósta og fleiri gögn frá Isavia Haraldur Guðmundsson skrifar 2. mars 2017 13:42 Aðalheiður Héðinsdóttir, stjórnarformaður Kaffitárs Vísir/Stefán
Stjórnendur Kaffitárs eru enn að kalla eftir gögnum frá Isavia um forval ríkisfyrirtækisins vegna útleigu á veitingarými í Leifsstöð sem lauk í september 2014. Isavia afhenti fyrirtækinu í janúar tölvupóstssamskipti, fundargerðir, samninga og önnur gögn sem tengjast samkeppninni um pláss í flugstöðinni og telja stjórnendur Isavia að búið að sé að afhenda öll gögn málsins. Kaffitár hefur þrátt fyrir það óskað eftir enn frekari gögnum. Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði í júní í fyrra að afhenda bæri gögn vegna forvalsins sem Kaffitár hafði þá óskað eftir. Málið vakti mikla athygli enda krafðist Aðalheiður Héðinsdóttir, stjórnarformaður Kaffitárs, rökstuðnings Isavia fyrir þeirri ákvörðun að neita fyrirtæki hennar um veitingarými í flugstöðinnni og aðgangs að gögnum sem aðrir umsækjendur sendu inn í forvalinu. Kaffitár var á þeim tíma með rekstur í Leifsstöð. Alls féllu sjö úrskurðir eða dómar í málinu og varaði Samkeppniseftirlitið við því að afhending gagnanna gæti verið brot á samkeppnislögum.Í frétt DV í október í fyrra kom fram að starfsmenn Kaffitárs höfðu þá ekki skoðað forvalsgögnin sem voru afhent þeim þremur mánuðum áður. Í svari Isavia við fyrirspurn Vísis segir að Kaffitár hafi óskað eftir frekari gögnun þann 5. desember og mánuði síðar fengið meðal annars tölvupóstssamskipti ríkisfyrirtækisins við aðra umsækjendur í forvalinu. „Isavia hefur nú afhent Kaffitári öll gögn sem tengjast samkeppninni sem fyrirtækið tók þátt í. Þannig hefur Isavia afhent enn meiri gögn en upplýsingalög kveða á um að skuli afhenda,“ segir í svarinu. „Beiðni Kaffitárs ehf. tók til nokkurs magns gagna sem Isavia er einungis að hluta til skylt að veita aðgang að á grundvelli upplýsingalaga, en að hluta er um vinnugögn að ræða sem undanþegin eru upplýsingarétti. Isavia ákvað engu að síður að veita fyrirtækinu aukinn aðgang, í samræmi við ákvæði 11. gr. laganna, að umbeðnum gögnum, að því marki sem aðrar reglur og lög standa því ekki í vegi.“ Í svari Isavia segir að ríkisfyrirtækið hafi haft samráð við aðra umsækjendur og strikað yfir viðkvæmar viðskiptaupplýsingar um einstök fyrirtæki. Þetta hafi verið gert með hliðsjón af bréfi Samkeppniseftirlitsins til Kaffitárs ehf. og Isavia frá 8. júlí 2016 þar sem reifuð eru sjónarmið um gögn sem þykja sérstaklega viðkvæm í samkeppnislegu tilliti þannig að miðlun þeirra geti falið í sér samkeppnisröskun í skilningi 10. gr. Samkeppnislaga. Aðalheiður Héðinsdóttir staðfestir í samtali við Vísi að fyrirtækið hafi á óskað eftir enn frekari gögnum. Engin niðurstaða sé því komin í það hvort skaðabótamál gegn Isavia verði höfðað. „Eitt skref í einu. Það verður örrugglega ekki niðurstaða fyrr en eftir einhver ár. Við fengum gögnin og kölluðum þá eftir umframgögnun og það var nú dráttur á því. Svo komu þau núna i janúar og okkur þótti þá ástæða til að kalla eftir enn frekari gögnum,“ segir Aðalheiður.Þið hafið þá ekki komist að niðurstöðu um hvort skaðabótamál verði höfðað gegn Isavia?„Við viljum ekkert segja um þetta á þessu stigi. Það er von innan tíðar á yfirlýsingu og við viljum bíða með þetta,“ segir Aðalheiður.
Tengdar fréttir Héraðsdómur úrskurðar að Isavia skuli afhenda Kaffitári útboðsgögn Héraðsdómur Reykjavíkur hefur staðfest úrskurð úrskurðarnefndar um upplýsingamál þess efnis að Isavia skuli afhenda Kaffitári útboðsgögn vegna leigu á verslunar-og veitingahúsnæði í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. 15. júní 2016 11:57 Forstjóri Kaffitárs: Segir Isavia hafa reynt að koma í veg fyrir að afhenda gögn vegna Leifstöðvarmálsins þrátt fyrir úrskurð Héraðsdóms Isavia hafði samband við Samkeppnisstofnun og sögðu að gögnin væru trúnaðargögn. Samkeppnisstofnun sendi erindi til Kaffitárs í kjölfarið. 15. júlí 2016 20:22 Íhuga skaðabótamál gegn Isavia Að minnsta kosti þrjú fyrirtæki hafa til skoðunar að höfða skaðabótamál gegn Isavia vegna forvals um verslunarpláss í Leifsstöð sem fram fór árið 2014. 18. júlí 2016 19:35 „Núna þegar maður er búinn að sjá gögnin veit maður af hverju maður mátti ekki sjá þau“ Aðalheiður Héðinsdottir og Guðni Sigurðsson ræddu gagnadeilu Kaffitárs og Isavia. 20. júlí 2016 11:47 Isavia afhenti Kaffitári gögnin í morgun Kaffitár hafði farið fram að fá gögnin afhent með beinni aðfarargerð en áður en til þess kom boðsendi Isavia gögnin. 15. júlí 2016 11:16 Kaffitár bíður enn eftir gögnum frá Isavia: „Þeir verða að afhenda gögnin“ Isavia segist vera að skoða stöðu sína með lögmönnum. 12. ágúst 2015 16:53 Mest lesið „Það er bara ólöglegt“ Viðskipti innlent „Heimsmarkaðsverð eitt og sér stýrir ekki verði úti í búð” Neytendur Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Viðskipti innlent Fjöldi apóteka sameinast undir vörumerki Apótekarans Viðskipti innlent Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Viðskipti innlent Fara fram á lögbann á Isavia Viðskipti innlent Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Viðskipti innlent „Annar er létt geggjaður og skemmtilegur og hinn alveg grjótharður“ Atvinnulíf Eiga í viðræðum um sjónvarpsinnviðafélag Viðskipti innlent Spá líka vaxtahækkun en enn meiri verðbólgu Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Það er bara ólöglegt“ Fjöldi apóteka sameinast undir vörumerki Apótekarans Fara fram á lögbann á Isavia Engar forsendur fyrir því að hækkanir skili sér að fullu út í bensínverð Framtalsfrestur að renna út: „Það gengur alveg rosalega vel“ Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Bjartur og Vésteinn Örn til SFF Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Snarpri en verðmætri loðnuvertíð að ljúka Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Magnús hættir hjá Orkusölunni Eiga í viðræðum um sjónvarpsinnviðafélag Hulda tekur við nýrri deild hjá Eimskip „Dómstólar staðfesta að ostur er ostur“ Stefna á að banna gervigreindarklám í Evrópu Spá líka vaxtahækkun en enn meiri verðbólgu Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Telja bensínlítrann tuttugu krónum of dýran „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Opna menningarmiðstöð í Smáralind Spá 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Óskar Ingi fjármálastjóri Beru „Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Húrra dregur saman seglin Innleiða gervigreindina í MS Krónan oftar en ekki sveiflast minna en dollar, evran og pundið Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Sjá meira
Héraðsdómur úrskurðar að Isavia skuli afhenda Kaffitári útboðsgögn Héraðsdómur Reykjavíkur hefur staðfest úrskurð úrskurðarnefndar um upplýsingamál þess efnis að Isavia skuli afhenda Kaffitári útboðsgögn vegna leigu á verslunar-og veitingahúsnæði í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. 15. júní 2016 11:57
Forstjóri Kaffitárs: Segir Isavia hafa reynt að koma í veg fyrir að afhenda gögn vegna Leifstöðvarmálsins þrátt fyrir úrskurð Héraðsdóms Isavia hafði samband við Samkeppnisstofnun og sögðu að gögnin væru trúnaðargögn. Samkeppnisstofnun sendi erindi til Kaffitárs í kjölfarið. 15. júlí 2016 20:22
Íhuga skaðabótamál gegn Isavia Að minnsta kosti þrjú fyrirtæki hafa til skoðunar að höfða skaðabótamál gegn Isavia vegna forvals um verslunarpláss í Leifsstöð sem fram fór árið 2014. 18. júlí 2016 19:35
„Núna þegar maður er búinn að sjá gögnin veit maður af hverju maður mátti ekki sjá þau“ Aðalheiður Héðinsdottir og Guðni Sigurðsson ræddu gagnadeilu Kaffitárs og Isavia. 20. júlí 2016 11:47
Isavia afhenti Kaffitári gögnin í morgun Kaffitár hafði farið fram að fá gögnin afhent með beinni aðfarargerð en áður en til þess kom boðsendi Isavia gögnin. 15. júlí 2016 11:16
Kaffitár bíður enn eftir gögnum frá Isavia: „Þeir verða að afhenda gögnin“ Isavia segist vera að skoða stöðu sína með lögmönnum. 12. ágúst 2015 16:53