Lentu í vandræðum við að koma upp kosningamiðstöð í Síðumúla Birgir Olgeirsson skrifar 4. mars 2017 20:00 Það reyndist lítið mál að losa bílinn úr þessum aðstæðum Aðsend
Framboð Lísbetar Sigurðardóttur lenti í smá erfiðleikum í hálkunni í dag. Lísbet sækist eftir formennsku í Heimdalli, félags ungra Sjálfstæðismanna í Reykjavík, á aðalfundi félagsins þann 10. mars næstkomandi, og er í óða önn að koma upp kosningamiðstöð í Síðumúla. Til verksins var fenginn flutningabíl til að flytja húsgögn að kosningamiðstöðinni en þegar aka átti bílnum upp að kosningamiðstöðinni rann hann til í hálku sem hafði myndast á rampinum í Síðumúla með eftirfarandi afleiðingum líkt og meðfylgjandi mynd sýnir.Guðmundur Oddur og Lísbet.„Við lentum bara í smávegis tjóni,“ segir Lísbet en fjölmargir hafa átt í vandræðum í færðinni í Reykjavík undanfarna daga. Hún segir það hafa verið lítið vesen að losa bílinn úr þessum aðstæðum. „Það var ekkert vandamál, það þurfti bara smá lagni við þetta,“ segir Lísbet. Í fjögur ár hefur hún verið í starfi ungra Sjálfstæðismanna í Reykjavík og stundar lögfræðinám þessa stundina við Háskóla Íslands. Guðmundur Oddur Eiríksson, viðskiptafræðinemi við Háskólann í Reykjavík, sækist eftir því að verða varaformaður Heimdallar. Á móti þeim hafa einnig boðið sig fram Friðrik Þór Gunnarsson, sem vill verða formaður, og Elísabet Inga Sigurðardóttir, sem sækist eftir því að verða varaformaður.Friðrik Þór og Elísabet Inga.Friðrik Þór er nemi í hagfræði en Elísabet Inga stundar laganám. 7.000 manns eru skráð í Heimdall en kosningaþátttaka er á bilinu 600 til 700 manns. Auk þeirra sem bjóða sig fram í stöðu formanns og varaformanns eru eftirfarandi í framboði til stjórnar Heimdallar:Aron Freyr Lárusson, viðskiptafræðingur hjá Vodafone, nemi í verðbréfamiðlun og dyravörður.Einar Karl Jónsson, leikari við Borgarleikhúsið og nemi við Verzlunarskóla Íslands.Jafet Máni Magnúsarson, leikari og ritari skólafélags Menntaskólans við Sund.Jónína Sigurðardóttir, nemi í uppeldis- og menntunarfræðum við Háskóla Íslands og formaður sviðsráðs menntavísindasviðs Stúdentaráðs Háskóla Íslands.Kristín Lilja Sigurðardóttir, fyrirsæta og formaður femínistafélags skólafélags Menntaskólans við Sund.Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir, nemi við Verzlunarskóla Íslands og meðlimur í ritstjórn Verzlunarskólablaðsins.Oddur Þórðarson, nemi við Menntaskólann í Reykjavík og starfsmaður Hagstofu Íslands.Steinar Ingi Kolbeins, nemi og Ármaður skólafélags Menntaskólans við Sund og sjónvarpsfréttaritari Nútímans.Vaka Vigfúsdóttir, dansari og nemi í sálfræði við Háskólann í Reykjavík.Þorsteinn Friðrik Halldórsson, nemi í hagfræði við Háskóla Íslands, blaðamaður og ritstjóri Hjálma, tímarits hagfræðinema.Andrea Björnsdóttir, viðskiptafræðinemi við Háskólann í Reykjavík,Andri Ingason, viðskiptafræðinemi við Háskólann í Reykjavík og gjaldkeri Markaðsráðs félags viðskiptafræðinema í HR,Anna Bryndís Zingsheim, nemandi við Verzlunarskóla Íslands,Anney Ýr Geirsdóttir, lyfjafræðinemi við Háskóla Íslands,Anton Andri Guðmundsson, hagfræðinemi við Háskólann í Reykjavík,Anton Reynir Hafdísarson, viðskiptafræðinemi við Háskólann í Reykjavík,Ólafur Freyr Ólafsson, viðskiptafræðinemi við Háskólann í Reykjavík,Helena Guðmundsdóttir, nemandi við Verzlunarskóla Íslands,Ólafur Hrafn Kjartansson, nemandi við Verzlunarskóla ÍslandsÚlfur Þór Andrason, laganemi við Háskóla Íslands.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Innlent Fleiri fréttir Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Sjá meira