
Til hvers á að afnema ÁTVR? Hverjum þjónar það?
Sumir halda að úrval muni aukast. Það er 100% örugglega ekki rétt. Úrval mun minka um 70 til 80% í flestum búðum. Það munu vissulega opna sér vínbúðir með meira og vandaðra úrval, en það mun enginn einkaaðili hafa efni né vilja til að bjóða upp á jafn mikið magn og fæst í stærstu vínbúðunum. Aðrir segja að það sé eðlilegt að geta keypt bjór eða vín um leið og keypt er í matinn. Það verða örugglega gerða kröfur um aðskilin svæði þar sem það verða tveir þrír kassar fyrir áfengi og þar verða líklega enn meiri raðir en í vínbúðum þar sem kassarnir eru mun fleiri. Ég held einnig að hér sé líka smá blekking því í mjög mörgum tilfellum í dag, er vínbúð undir sama þaki og matvörubúðin, bara næstu eða þar næstu dyr.
Sumir heildsalar láta sig dreyma um að geta selt enn meira áfengi með sterkum tengslum við matvörubúðirnar. Ég held að það verði ekki almennt svo og síst á stóru (magn) merkjunum, því stóru keðjurnar munu gera kröfu til framleiðenda um að fá að kaupa beint, án milliliða og þá verður einungis eftir kaupmaðurinn á horninu sem mun selja lítið magn úr lokuðu rými og ef það á að fara að dreyfa smátt og víða, verða heildsalar og framleiðendur að hækka álagningu sína.
Hvað verður um verðmæti ÁTVR? Það nánast gufar upp. Það eina sem verður eftir af verðmæti ÁTVR verða fasteignir sem ÁTVR á nú þegar. Það verður ekki neitt til, til að selja, enginn "good will" ekkert, því ef lögunum verður breitt, þá mun ÁTVR einfaldlega hætta starfsemi og aðrir taka við. Stóru keðjurnar muna skoða sölutölur ÁTVR og byggja sitt framboð á þeim lista. Þeir munu ekki þurfa að fjárfesta í markaðskönnunum eða markaðssetningu. Þeir einfaldlega taka við sölusögu ÁTVR.
Fyrir rúmum 20 árum tóku forstjórar áfengiseinkasölufyrtækja Finnlands, Svíðjóðar, Noregs og Íslands ákvörðun til að fylgja nýjum tímum í kjölfar afnáms einkaleyfs á innflutningi og sölu áfengis til veitingahúsa og annara leyfishafa (vínbúðir, sendiráð og fríhafnir) að í smásölunni yrði þjónustan að breytast til að uppfylla meiri kröfu um þekkingu og þjónustu. Verslunum var breytt til að gera þær meira aðlaðandi, sjálfafgreiðsla var sett upp í nánast allar búðir og starfsfólk er í dag í stöðugri þjálfun, bæði í jákvæðri framkomu og vöruþekkingu. Sennilega munu stóru matvöruverslanir reyna að tryggja til að byrja með að einhver þekking verði til staðar, en með komandi tímum og aukinni framlegðarkröfu mun þekkingin hverfa. Man t.d. einhver eftir því að hafa fengið ráðgjöf síðast þegar keypt var áfengi í matvörubúð erlendis? Nei, ef þú vilt fá ráðgjöf, þá þarft þú að fara í SÉRVERSLUN; Já, eins og í dag.
Hvað verður um hagnaðinn af smásölunni? Í stað þess að 100% af hagnaði ÁTVR renni til þjóðarinnar, þá mun aðeins 20% renna til þjóðarinnar þ.e. 20% ef hagnaður er af smásölunni.
ÁTVR er klárlega ekki gallalaust, en þau reyna að hafa innkaupakerfið gegnsætt og réttlátt og auðvitað mun þjóðin lifa það af, að einkasalan yrði afnumin, en ég skil bara ekki alveg til hvers. Það er annsi erfitt að sjá ÞJÓÐARHAGINN við að afnema ÁTVR.
Skoðun

„Þú verður aldrei nóg“ - Ástæður þess að kerfið bregst innflytjendum
Ian McDonald skrifar

Rafbíllinn er ekki bara umhverfisvænn – hann er líka hagkvæmari
Óskar Páll Þorgilsson skrifar

Ofurgróði sjávarútvegs? – Hættið að afvegaleiða!
Elliði Vignisson skrifar

Laun kvenna og karla í aðildarfélögum ASÍ og BSRB árið 2024
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,Steinunn Bragadóttir skrifar

„Fáum við einkunn fyrir þetta?“
Hulda Dögg Proppé skrifar

Hrossakjöt, hroki og hleypidómar
Kristján Logason skrifar

Sjávarútvegur er undirstöðuatvinnuvegur – ekki einangruð tekjulind
Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Að byggja upp á Bakka
Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar

Fiskeldi og samfélagsábyrgð
Eyjólfur Ármannsson skrifar

Pólitískt raunsæi og utanríkisstefna Íslands
Ragnar Anthony Antonsson Gambrell skrifar

Vorstjarnan hans Gunnars Smára?
Guðbergur Egill Eyjólfsson skrifar

Fylgið fór vegna fullveldismáls
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Er Ísrael ennþá útvalin þjóð Guðs?
Ómar Torfason skrifar

Flokkurinn hans Gunnars Smára?
Guðbergur Egill Eyjólfsson skrifar

Raforkuverð: Stórnotendur og almenningur
Ingvar Júlíus Baldursson skrifar

Hætt við að hækka ekki skatta á almenning
Bryndís Haraldsdóttir skrifar

Skattafíkn í skjóli réttlætis: Tímavélin stillt á 2012
Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Hver borgar brúsann?
Ingibjörg Isaksen skrifar

Hvers vegna berðu kross?
Hrafnhildur Sigurðardóttir skrifar

Þannig gerum við þetta?
Ísak Ernir Kristinsson skrifar

Stærsta framfaraskref í námsmati íslenskra barna í áratugi
Guðmundur Ingi Kristinsson skrifar

Falleinkunn skólakerfis?
Helga Þórisdóttir skrifar

Þjónusta sem gleður – skilar sér beint í kassann
Margrét Reynisdóttir skrifar

Hvar er auðlindarentan?
Birta Karen Tryggvadóttir skrifar

Miðflokkurinn – Rödd skynseminnar í borginni
Ómar Már Jónsson skrifar

Virði barna og ungmenna
Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Sættir þú þig við þetta?
Jón Pétur Zimsen skrifar

Alþingi gleymir aftur fötluðum börnum
Lúðvík Júlíusson skrifar

Lægri gjöld, fleiri tækifæri
Bragi Bjarnason skrifar

Tölum um stóra valdaframsalsmálið
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar