Innlent

Kvöldfréttir Stöðvar 2 í beinni

Ritstjórn skrifar
Lækkandi vöruverð sýnir að íslensk verslun er þegar farin að bregðast við aukinni samkeppni sem fylgir Costco, segir formaður Neytendasamtakanna. Rætt verður við hann í kvöldfréttum Stöðvar tvö klukkan hálf sjö.

 

Þar fáum við líka nýjustu fréttir af sjómannadeilunni með sjávarútvegsráðherra í beinni útsendingu og kynnum okkur eftirspurn eftir svokölluðum heimskum farsímum, en Nokia 3310-síminn, sem verið hefur ófáanlegur í tólf ár, kemur brátt í verslanir á ný.

Loks verðum við í beinni frá síðustu æfingunni í gamla Mjölnishúsinu, með Gunnari Nelson, en Mjölnir opnar brátt stærstu bardagaæfingaaðstöðu heims í Öskjuhlíðinni. Þetta og meira til í kvöldfréttum Stöðvar tvö klukkan 18:30 í beinni útsendingu á Stöð 2, Bylgjunni og Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×