Árangur í Vestur-Afríku Ragnar Schram skrifar 22. maí 2017 07:00 Frá 2012 hefur örlítið brot af skattgreiðslum landsmanna farið í að hjálpa sárafátækum einstæðum foreldrum í Gíneu Bissá til fjárhagslegs sjálfstæðis. Fyrir vikið fá börn nú menntun sem áður sátu heima og börn sem áður fengu bara eina máltíð á dag fá nú oftar að borða. Þessi hjálp var veitt undir merkjum Fjölskyldueflingar SOS Barnaþorpanna og fjármögnuð að fullu frá Íslandi. Auk framlags frá hérlendum stjórnvöldum (73%) studdu Fjölskylduvinir SOS hér á landi (27%) verkefnið með mánaðarlegum framlögum sínum.Góður árangur af verkefninu Verkefninu lauk í lok mars sl. og verður að segjast eins og er að það gekk vel. Það sýnir m.a. úttekt sem unnin var af óháðum íslenskum sérfræðingi. Alls fengu 400 börn og foreldrar þeirra aðstoð í formi fræðslu, matvælagjafa, skólagjalda, heilbrigðisþjónustu, ráðgjafar o.fl. sem nýttist fjölskyldunum á leið þeirra til fjárhagslegs sjálfstæðis. Áður gátu foreldrarnir ekki séð fyrir daglegum þörfum barna sinna en að verkefni loknu gátu tveir þriðju foreldra mætt þeim þörfum óstuddir.Íslendingar hækki framlagið Íslendingar geta því gengið frá þessu verkefni með bros á vör, vitandi að framlög þeirra leiddu til góðs og hjálpuðu áþreifanlega börnum sem liðu skort vegna sárafátæktar. Og í nafni gagnsæis og trausts geta allir nálgast skýrslu áðurnefndrar úttektar auk ársreikninga samtakanna á vefsíðunni sos.is. Í ljósi þess að Íslendingar hafa í áraraðir stutt markmið Sameinuðu þjóðanna um 0,7% framlag af vergum þjóðartekjum til þróunarsamvinnu er það von mín að Íslendingar, með stjórnvöld í broddi fylkingar, sýni hug sinn í verki og hækki hlutfallið úr þeim 0,26% sem við nú virðumst föst í. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Vegið að æru embættismanna Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir Skoðun Til óákveðinna kjósenda Eygló Halldórsdóttir Skoðun Opið bréf til forsetaframbjóðenda Elín Erna Steinarsdóttir Skoðun Afhverju viltu fá trúð á Bessastaði? Diljá Ámundadóttir Zoega Skoðun Sameiningaraflið Katrín Jakobsdóttir Kári Bjarnason Skoðun Snúningshurðin í ráðuneytinu Jón Kaldal Skoðun A Letter of Encouragement for Voters of Foreign Origin. Nichole Leigh Mosty Skoðun Ómetanleg leiðsögn Magnús Ingi Óskarsson Skoðun Sjókvíafúskið mikla Rán Flygenring Skoðun Það þarf þyrlupall við þjóðarsjúkrahúsið Hópur lækna á þyrlum Landhelgisgæslunnar Skoðun Skoðun Skoðun Pólítísk aflúsun Ólafur Þór Ólafsson skrifar Skoðun Að vaxa inn í framtíðina Viðar Hreinsson skrifar Skoðun A Letter of Encouragement for Voters of Foreign Origin. Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Sameiningaraflið Katrín Jakobsdóttir Kári Bjarnason skrifar Skoðun Snúningshurðin í ráðuneytinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Til óákveðinna kjósenda Eygló Halldórsdóttir skrifar Skoðun Opið bréf til forsetaframbjóðenda Elín Erna Steinarsdóttir skrifar Skoðun Ómetanleg leiðsögn Magnús Ingi Óskarsson skrifar Skoðun Vegið að æru embættismanna Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hverjum treystum við fyrir fjöreggjunum okkar? skrifar Skoðun Stöndum í lappirnar! Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Gjöf sem gefur Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Vegna hvers kýs ég Katrínu Jón Kristjánsson skrifar Skoðun Hvar er sómakenndin? Blakleikur Ísraels og Íslands Hrönn Guðmundsdóttir,Ragnhildur Hólmgeirsdóttir skrifar Skoðun Alþingi slátrar jafnræðisreglunni Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Málfarslöggan verk sín vann Ari Páll Kristinsson skrifar Skoðun Verðmæti Döff kjósenda Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Nýja hægrið Davíð Bergmann skrifar Skoðun Afhverju viltu fá trúð á Bessastaði? Diljá Ámundadóttir Zoega skrifar Skoðun Heldur þann besta en þann næstbesta! Vilhjálmur B. Bragason skrifar Skoðun Vel gert! Halla Signý Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Halla Hrund; vörður auðlinda og nýsköpunar Valdimar Össurarson skrifar Skoðun Forsetabaráttan: Hin fimm fræknu og leiðtogafræðin Sigurður Ragnarsson skrifar Skoðun Sýnileiki og styrkur þjóðar Ásdís Þórhallsdóttir skrifar Skoðun Velferð fólks framar markaðsvæddri netsölu áfengis Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar Skoðun Halla Hrund, Halla Tómasdóttir eða Katrín Jakobsdóttir? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Það þarf þyrlupall við þjóðarsjúkrahúsið Hópur lækna á þyrlum Landhelgisgæslunnar skrifar Skoðun Vonandi endurtekur sagan sig! Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Halla Hrund - Þarf fólk eins og þig, fyrir fólk eins og mig? Tómas Ellert Tómasson skrifar Skoðun Kjósum sterkan leiðtoga Guðlaug Hrönn Jóhannsdóttir skrifar Sjá meira
Frá 2012 hefur örlítið brot af skattgreiðslum landsmanna farið í að hjálpa sárafátækum einstæðum foreldrum í Gíneu Bissá til fjárhagslegs sjálfstæðis. Fyrir vikið fá börn nú menntun sem áður sátu heima og börn sem áður fengu bara eina máltíð á dag fá nú oftar að borða. Þessi hjálp var veitt undir merkjum Fjölskyldueflingar SOS Barnaþorpanna og fjármögnuð að fullu frá Íslandi. Auk framlags frá hérlendum stjórnvöldum (73%) studdu Fjölskylduvinir SOS hér á landi (27%) verkefnið með mánaðarlegum framlögum sínum.Góður árangur af verkefninu Verkefninu lauk í lok mars sl. og verður að segjast eins og er að það gekk vel. Það sýnir m.a. úttekt sem unnin var af óháðum íslenskum sérfræðingi. Alls fengu 400 börn og foreldrar þeirra aðstoð í formi fræðslu, matvælagjafa, skólagjalda, heilbrigðisþjónustu, ráðgjafar o.fl. sem nýttist fjölskyldunum á leið þeirra til fjárhagslegs sjálfstæðis. Áður gátu foreldrarnir ekki séð fyrir daglegum þörfum barna sinna en að verkefni loknu gátu tveir þriðju foreldra mætt þeim þörfum óstuddir.Íslendingar hækki framlagið Íslendingar geta því gengið frá þessu verkefni með bros á vör, vitandi að framlög þeirra leiddu til góðs og hjálpuðu áþreifanlega börnum sem liðu skort vegna sárafátæktar. Og í nafni gagnsæis og trausts geta allir nálgast skýrslu áðurnefndrar úttektar auk ársreikninga samtakanna á vefsíðunni sos.is. Í ljósi þess að Íslendingar hafa í áraraðir stutt markmið Sameinuðu þjóðanna um 0,7% framlag af vergum þjóðartekjum til þróunarsamvinnu er það von mín að Íslendingar, með stjórnvöld í broddi fylkingar, sýni hug sinn í verki og hækki hlutfallið úr þeim 0,26% sem við nú virðumst föst í.
Skoðun Hvar er sómakenndin? Blakleikur Ísraels og Íslands Hrönn Guðmundsdóttir,Ragnhildur Hólmgeirsdóttir skrifar