Danskur piltur fékk tveggja ára dóm fyrir að nauðga íslenskri stúlku Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 11. janúar 2017 15:39 Stúlkunni var nauðgað í bílskúr í Óðinsvéum í júlí 2015. Wiki Commons
Sextán ára danskur piltur frá Óðinsvéum á Fjóni í Danmörku hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir að hafa nauðgað fimmtán ára íslenskri stúlku í júlí 2015. Tvítugur vinur hans fékk eins og hálfs árs dóm en eitt ár af refsingunni er skilorðsbundinn. Pressan greindi fyrst fráog vísar í umfjöllun danskra miðla. Báðir voru sakfelldir fyrir brot sín í september síðastliðnum og var þá reiknað með því að dómur yrði kveðinn upp í október. Uppkvaðningin dróst hins vegar þar til nú meðal annars vegna geðmats á yngri piltinum sem var fimmtán ára þegar brotið átti sér stað. Hann var metinn sakhæfur.Var í leit að sígarettum Í dönskum miðlum hefur komið fram að stúlkan, sem var í heimsókn hjá ættingjum sínum í Danmörku, hefði farið í göngutúr um hverfið að kvöldi til í þeim tilgangi að kaupa sígarettur. Hún hefði hitt tvo stráka sem hefðu lokkað hana að bílskúr þangað sem þeir neyddu hana inn. Samkvæmt heimildum Vísis var um samantekin ráð þess tvítuga og fimmtán ára að ræða þar sem þeir voru í samskiptum með SMS-skilaboðum. Var stúlkunni þvingað inn í bílskúrinn af eldri piltinum og skömmu síðar mætti sá yngri þangað. Stúlkan hefur sagst hafa verið neydd til munnmaka og kynmaka. Á sama tíma notaði eldri pilturinn vasaljósið á símanum til að lýsa upp dimman bílskúrinn. Sagði stúlkan ítrekað nei og sparkaði í þá á meðan henni var nauðgað.Afar trúverðugur framburður Jacob Thaarup, saksóknari í málinu, sagði vitnisburð stúlkunnar hafa verið afar trúverðugan en hið sama verði ekki sagt um frásögn piltanna sem breyttu endurtekið framburði sínum. Þeir neituðu báðir sök og sögðu stúlkuna hafa stundað kynlíf með þeim af frjálsum vilja. Yngri pilturinn var sömuleiðis ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku á göngustíg í Danmörku. Var hann sýknaður af ákæru þar sem ekki þótti hafið yfir allan vafa að hann hefði nauðgað stúlkunni þar sem frásögn hennar var óskýr.
Tengdar fréttir Fimmtán ára íslenskri stúlku nauðgað í Danmörku Tveir piltar sakfelldir. 21. september 2016 07:19 Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Fleiri fréttir Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Sjá meira