Nýársspá Siggu Kling – Sporðdreki: Þú þarft að sleppa tökum, láta þig fljóta og fyrirgefa. 6. janúar 2017 09:00
Elsku Sporðdrekinn minn, þetta ár hefur svo merkilegan tilgang í lífi þínu. Það er komið til að heilsa þér með nýjum tækifærum og í raun og veru er þetta tímabil nú þegar hafið. Gamlir vinir munu skjóta upp kollinum og tengingar við vinnustaði eða skóla eða eitthvað þaðan af merkilegra. Þessar persónur munu skjóta upp kollinum á hárréttum tíma og þú þarft að læra að treysta, því það er besta orkan fyrir þig á árinu 2017. Þú þarft að fara eftir því sem hjartað segir þér og gera það sem þér finnst skemmtilegt. Efnahagslega og andlega verður þú miklu sterkari þegar við lítum á þetta ár. Það gætu líka verið tengsl á milli andlegu hliðarinnar og efnahagsins og á áttunda mánuði ársins, blessuðum ágúst, sendir lífið þér einhvers konar völd og þá þarft þú að hafa þá víðsýni til að velja réttu leiðina. Þú þarft alltaf að spyrja hjartað, ekki fara bara eftir því sem er hagkvæmt, heldur því sem þú elskar. Þetta verður ástríðufullt ár og spennandi tímabil, sama hvort þú ert í sambandi eða á lausu. Þeir sem eru að leita sér að maka þurfa að gera það nákvæmlega eins og þeir væru að leita sér að appelsínugulum buxum með vasa á hliðinni á Ali Express. Þú þarft að vita hvernig maka þú vilt og ástin í lífinu hefur greinilega ekki gengið upp ef þú ert á lausu núna. Ástamálin hafa verið sprengjusvæði og þú þarft að segja það mjög skýrt við sjálfan þig og við veröldina hvernig maki þinn á að vera. Því það skiptir þig máli, elsku Sporðdrekinn minn, að vera í traustu sambandi og þetta ár gefur þér þær ástríður sem þig vantar upp á til að stofna til nýs sambands. Þetta er meira yfir sumartímann. Miklir möguleikar, t.d. á þjóðhátíð í Eyjum því að þar hafa margir Sporðdrekar nefnilega náð sér í maka. Það eru mikilvæg skilaboð til þín ef þú hefur glímt við hjartasorg eða missi, þá þarftu að skilja þann poka eftir í fortíðinni þar sem hann á heima. Þú gerir það nákvæmlega með því að segja við hug þinn þegar þú ert að hugsa um sorgina: Nei! – og setja aðra hugsun inn. Þú þarft að sleppa tökum, láta þig fljóta og fyrirgefa. Þessu ári má líkja við fæðingu, fæðingu frelsis, sjálfstrausts og svo margs sem þú munt uppgötva hjá sjálfum þér sem þú hefur ekki tekið eftir fyrr. Þó að þú sért búinn að fara í gegnum mikla erfiðleika þá vinnur þú akkúrat úr þeim á þessu herrans ári 2017. Þá sérðu og sýnir þeim manni sem þú hefur að geyma meiri virðingu, öðlast betra minni og verður skipulagðari. Þú munt taka hlutunum léttar og þá vil ég sérstaklega benda á vorið eða hreinlega bara allt árið. Knús og klapp, Sigga KlingFrægir Sporðdrekar: Birkir Már Sævarsson landsliðsmaður, Dísa í World Class, Helga Braga Jónsdóttir leikkona, Björk Guðmundsdóttir söngkona, Scarlett Johansson leikkona, Whoopie Goldberg leikkona, Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir sjónvarpskona, Emmsjé Gauti rappari, Björk, Indira Ghandi, Karl bretaprins, Hillary Clinton, Leonardo DiCaprio, Magnús Scheving, Steingrímur Sævarr Ólafsson fjölmiðlaráðgjafi.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Hvað kýs fræga fólkið? Lífið Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Lífið Stjörnufans á frumsýningu Um tímann og vatnið Bíó og sjónvarp Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Lífið Komin á eftirlaun og með skotheldar leiðir til að ferðast ódýrt um Ítalíu Ferðalög Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Lífið Hvað veistu um… Dolly Parton? Lífið Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Lífið Rödd Eyrnaslapa og Optimusar Prime er öll Bíó og sjónvarp Líkindi með Grand Theft Auto og Red Dead Redemption Leikjavísir Fleiri fréttir Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Laufey fagnaði Laufeyjardeginum á Íslandi „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Stjörnum prýtt svitapartý Hvað veistu um… bæjarhátíðir? Fullt út úr dyrum í prjónapartýi ársins Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Léttist við stöðugt pizzuát „Hún sagði já“ Orðin háð því að vera „enginn“ Stjörnulífið: Afmælið endaði með ælu Sjá meira