Öskumökkur í Evrópu nær alltaf íslenskur Svavar Hávarðsson skrifar 7. janúar 2017 07:00 14. apríl hófst sprengigos í toppöskju Eyjafjallajökuls. Öskufall varð verulegt og náði allt til meginlands Evrópu. Farþegaflug lagðist þar niður að mestu í fimm sólarhringa og meira en 100.000 áætlunarferðum var aflýst. Gosið stóð í 39 daga. vísir/pjetur
Tíðar má vænta öskuskýja frá eldsumbrotum yfir Norður-Evrópu, jafnvel með tilheyrandi truflun á flugumferð, en áður var talið. Ný rannsókn, byggð á rannsóknum á allt að sjö þúsund ára gömlum ummerkjum eldgosa, sýnir að slíkra atburða megi vænta á 44 ára fresti að meðaltali. Rannsóknin sýnir jafnframt að sökudólgurinn fyrir slíkum eiturspýjum yfir norðurhluta álfunnar er jafnan Ísland – með fáeinum undantekningum í sögunni. Það er teymi vísindamanna við háskólann í Leeds sem hefur birt niðurstöður sínar í virtu tímariti. Þrátt fyrir að vísindamennirnir hafi rannsakað öskulög eldgosa svo gamalla sem sjö þúsund ára, eru helstu niðurstöður þeirra dregnar af ummerkjum sem eru þúsund ára og yngri. Ástæða rannsóknarinnar er þá aftur eldgosið í Eyjafjallajökli og þau miklu áhrif sem það hafði á flugumferð í Evrópu. Niðurstöður þeirra hvað uppruna öskunnar, eða gjóskunnar, varðar eru afdráttarlausar. Öskulögin voru það greinileg í mörgum tilfellum að auðvelt reyndist að máta þau við söguleg gögn. Alls fundust greinileg merki um 84 skipti þar sem öskuský breiddust yfir Norður-Evrópu – reyndust þau nær undantekningarlaust vera frá Íslandi en eldgos í Alaska og Rússlandi komu einnig við sögu. Þegar aðeins nýrri gögn voru rýnd eru töluverðar líkur á því að slíkra aðstæðna sé að vænta á hverjum áratug. Þessi gögn eru fyrst og síðast talin gagnast fyrirtækjum í flugrekstri og hjálpi til við áætlanagerð og fjárfestingar. Eins gagnast þau tryggingafélögum og almenningi. Gagnabankinn sem þegar var fyrir hendi var nokkuð yfirgripsmikill, en vísindamennirnir vildu kanna hversu margar eyður væri að finna og hvort ekki mætti fá fyllri mynd af þessum atburðum. Því var ferðast til nokkurra landa, þeirra á meðal Englands, Wales, Svíþjóðar og Póllands – þar sem borkjarna var aflað, bæði á landi og ekki síður var borað niður um botn stöðuvatna. Alls staðar sem bor bar niður fundust ummerki þessara eldsumbrota sem senda mökk sinn svo hátt í lofthjúpinn að hann berst með vindum svo víða sem raun ber vitni.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Fleiri fréttir Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða til tíðinda Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Sjá meira