Þriggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn stjúpdóttur Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 20. júní 2017 16:15 Hæstiréttur staðfesti þriggja ára fangelsisdóm yfir manninum. Vísir/Magnús Hlynur
Hæstiréttur staðfesti í dag þriggja ára fangelsisdóm yfir karlmanni sem var ákærður fyrir að brjóta kynferðislega gegn stjúpdóttur sinni þegar hún var 13 og 14 ára. Manninum var meðal annars gefið að sök að hafa í tvö skipti stungið fingri í leggöng stúlkunnar og notfært sér að hún gat ekki spornað við verknaðinum þar sem hún var sofandi. Þá hafði hann einnig ítrakað áreitt hana með kynferðislegu og ósiðlegu orðbragði. Meðal annars með því að segja við hana að hún væri ekki hrein mey, að hún væri ekki heil og ekki hrein og einnig með því að spyrja hana hvort hún væri orðin háð samförum þar sem brjóst hennar væru komin lægra niður. Þá hafi hann í eitt skipti, þegar stúlkan lá sofandi í rúmi sínu, hvíslað að henni hvort hún vildi hafa samfarir við hann en þá hafi stúlkan vaknað. Móðir stúlkunnar lagði hart að dóttur sinni að draga frásögn sína til baka um misnotkunina. Við aðalmeðferð málsins breyttu bæði maðurinn og stúlkan framburði sínum og sögðu hann hreinan uppspuna. Maðurinn var þó sakfelldur í héraðsdómi þar sem tveir vitnisburðir stúlkunnar lágu fyrir sem gögn í málinu þar sem hún er sögð hafa lýst atvikum mjög nákvæmlega. Maðurinn játaði tvisvar í yfirheyrslum hjá lögreglu og bar fyrir sig áhyggjur af því að stúlkan væri byrjuð að stunda kynlíf. Hann hefði varla sofið og viljað athuga hvort meyjarhaftið væri enn órofið. Framburður hans fyrir dómi þótti bæði ruglingslegur og ekki eiga sér neina stoð í raunveruleikanum. Maðurinn var dæmdur í þriggja ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 16. mars síðastliðinn. Hæstiréttur staðfesti þann dóm og gerði manninum einnig skylt að greiða samtals 941.100 krónur af áfrýjunarkostnaði málsins.Dóm Hæstaréttar má lesa í heild sinni hér.
Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Sjá meira