Stjörnuspá Siggu Kling – Steingeitin: Þú þarft ekki fimm háskólagráður 6. október 2017 09:00
Elsku hjartans duglega Steingeitin mín. Þú hefur unnið svo marga sigra og ert með sigurvegaramerkið um hálsinn á þér, ekki breyta því merki í hengingaról og láta orku Steingeitarinnar draga þig niður í kassalaga Excel-pakka. Þær manneskjur sem hafa hjálpað mér að ná mestum árangri í lífinu hafa verið í þessu merki. Og uppáhaldsvinkona mín, sem er fimmtug og skildi nú á dögunum, sagði við mig: „Mikið er ég spennt því að ég er í raun og veru pokakona!“ Hún ákvað að leigja út húsið sitt og búa bara þar sem veröldin myndi bjóða henni samastað hverju sinni, hún neyddist til að taka þá ákvörðun út af kringumstæðum og ótrúum eiginmanni. Síðan þetta gerðist hefur líf hennar virkilega farið á skrið, hún lítur út eins og sautján ára (skilnaðarútlit myndu margir segja). En í þessu ferli og tímabili sem hún er að flakka á milli staða býðst henni alltaf eitthvað nýtt og meira spennandi en hana grunaði. Þessi vinkona mín er að gera hluti og brjóta reglur sem hún hefði alls ekki gert nema af því að hún var svo heppin að veröldin gaf henni í raun nýtt tækifæri. Og hún er listamaður ‚par excellence‘ og hefur aldrei verið frjórri en nú. Láttu ekki svona uppgjör, sama hvaða nöfnum það nefnist, þurfa að gerast til að þú breytir lífsstefnu þinni eða skorir sjálfa þig á hólm og gerir það sem byggir upp sál þína. Það er svo algengt að þú sleppir þér ekki lausri fyrr en liðið er á miðja ævina. Öryggi, öryggi, öryggi er þér of mikilvægt, en heftir þig í að gera það sem þú í raun og veru treystir þér til. Októbermánuður sendir þér mikla strauma af orku og hvatvísi og sérstaklega byrjun október getur gefið þér nægilegt hugrekki til að margfalda allt sem þú getur fyrir. Tækifærin koma, svo gríptu þau því að annars fara þau frá þér, þá gætir þú séð eftir því að breyta ekki því sem þarf að breyta. Þegar maður er í skóla í lífinu, þá fær maður mesta athygli ef maður réttir upp hönd, spyr og vill fá útskýringar, annars er jafnvel ekki tekið eftir manni. Þinn tími er núna. Láttu ljós þitt skína og krefstu þess að þú fáir það sem þú átt skilið, þá er líka svo mikilvægt að þú vitir að þú átt miklu betra skilið en þú heldur. Veraldleg gæði munu gefa þér öryggi en ekki hamingju svo ekki kaupa neitt á afborgunum til 30 ára. Ekki hugsa of langt fram í tímann vegna þess að þú heldur að þú neyðist til þess. Og þú þarft heldur ekki fimm háskólagráður til að vera fullkominn. Þú ert svo leiðandi afl og ef þú tækir þátt í kosningunni þá myndi ég ‚X-a‘ við Steingeitina. Næsta hálfa árið er krafturinn í kringum þig tveir ásar, þetta tengist talnaspeki sem er indversk leið til að tímasetja hvað er að fara að gerast. Tímabilið fram undan sýnir þér að þú átt miklu fleiri aðdáendur og fylgjendur en þú gerir þér nokkurn tímann grein fyrir, svo stattu upp úr sófanum og segðu: „Ég ætla að nenna þessu.“ Í ástinni, hvort sem þú ert á lausu eða í sambandi, þarftu að hafa það mjög skýrt hvernig þú vilt hafa hlutina, og þú átt eftir að verða mjög hissa hvað það mun gagnast þér vel, elsku ástin mín.Frægar Steingeitur: Guðjón Pétur Lýðsson markakóngur, Svava Johansen í Sautján, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, dr. Kristín Ólafsdóttir og Davíð Oddsson, Jón Gnarr, Elvis Presley, Gunnar Þórðarson, Tómas Guðbjartsson læknahetja, Lovísa Tómas, Dorrit Moussaieff forsetafrú, Þuríður Blær Jóhannsdóttir, leikkona og Reykjavíkurdóttir, Jesús og Simmi á Fabrikkunni, Óttar Proppé, Ingveldur Ægissdóttir módir og kvunndagshetja, Hendrika Waage hönnuður.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Lífið Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Lífið „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Lífið Stelpurnar snúa aftur Bíó og sjónvarp Ekkert offors hjá Fors Lífið Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Bíó og sjónvarp Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning Kát á kynfræðslukarnivali Menning Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Lífið samstarf Fleiri fréttir Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Sjá meira