Tala látinna hækkar eftir skjálftann í Mexíkó Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 8. september 2017 22:19 Jarðskjálftinn er sá öflugasti í Mexíkó í hálfa öld. vísir/getty
Að minnsta kosti 58 eru látnir eftir skjálftann sem skók Mexíkó í gær rétt fyrir miðnætti að staðartíma, í morgun að íslenskum tíma. Jarðskjálftinn er sá öflugasti í landinu í heila öld en hann var 8,1 að stærð og átti upptök sín 165 kílómetra vestur af fylkinu Chiapas. Íbúðahús eyðilögðust, spítalar og opinberar byggingar skemmdust og fjöldi fólks hefur þurft að yfirgefa heimili sín. Allir þeir sem hafa fundist látnir voru í ríkjunum þremur í kringum upptökin. 45 eru látnir í Oaxaca, tíu í Chiapas og þrír í Tabasco, þar af tvö börn. Reyndar hefur fylkisstjórinn í Chiapas, Manuel Velasco, sagt að tólf manns hafi látist þar sem myndi hækka tölu látinna upp í 60 manns. Óttast er að tala látinna eigi enn eftir að hækka. Að minnsta kosti ein milljón manna var án rafmagns strax eftir skjálftann en yfirvöld hafa í dag náð að koma rafmagni aftur hjá að minnsta kosti 800 þúsund íbúum. Enrique Peña Nieto, forseti Mexíkó, hefur hvatt fólk til að vera á varðbergi og til að kanna gasbirgðir og veggi og súlur húsa sinna. Um tuttugu eftirskjálftar sem voru yfir fjórir að stærð mældust á fyrstu fimm klukkutímunum eftir þann stóra og varaði Nieto íbúa landsins við því að eftirskjálfti upp á allt að 7,2 gæti orðið.
Tengdar fréttir Risaskjálftinn í Mexíkó: Flóðbylgjuviðvörun gefin út í allri Mið-Ameríku Staðfest er að sjö eru látnir eftir skjálftann vestur af Mexíkó í nótt sem mældist 8,2 að stærð. 8. september 2017 08:32 Öflugasti jarðskjálftinn í Mexíkó í heila öld Minnst 33 eru látnir og mikill fjöldi slasaður eftir jarðskjálfta sem reið yfir Mexíkó í nótt. 8. september 2017 20:00 Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Sjá meira
Risaskjálftinn í Mexíkó: Flóðbylgjuviðvörun gefin út í allri Mið-Ameríku Staðfest er að sjö eru látnir eftir skjálftann vestur af Mexíkó í nótt sem mældist 8,2 að stærð. 8. september 2017 08:32
Öflugasti jarðskjálftinn í Mexíkó í heila öld Minnst 33 eru látnir og mikill fjöldi slasaður eftir jarðskjálfta sem reið yfir Mexíkó í nótt. 8. september 2017 20:00