Efna til söfnunar fyrir Fannar Frey sem slasaðist alvarlega í bílslysi Birgir Olgeirsson skrifar 18. desember 2017 19:02 Fannar Freyr Þorbergsson er sagður mikill baráttujaxl sem hefur nú þegar náð mun meiri árangri en læknar gerðu ráð fyrir. Facebook
Fannar Freyr Þorbergsson, 28 ára gamall Ísfirðingur, lenti í alvarlegu bílslysi 19. október síðastliðinn þar sem hann hlaut skaða á mænu og er fram undan löng og ströng endurhæfing. Ísfirðingar og nærsveitungar hafa nú efnt til söfnunar til að styðja við Fannar. Að baki þessari söfnun standa forsvarsmenn líkamsræktarstöðvarinnar Studio Dan á Ísafirði en söfnunin gengur undir heitinu Gerum Gagn. Um er að ræða stöðvaæfingagleði sem fer fram í Studio Dan á Þorláksmessu og kostar 2.000 krónur að vera með. Rennur upphæðin sem kemur inn óskipt til Fannars. Fannar slasaðist alvarlega í bílveltu í Álftafirði seint að kvöldi 19. október síðastliðinn. Björgunarsveitir á norðanverðum Vestfjörðum höfðu verið kallaðar út til að leita að Fannari sem hafði verið á leið til Ísafjarðar en ekkert spurst til. Bíllinn fannst utan vegar í Álftafirði og var Fannar fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið á Ísafirði. Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti Fannar síðan á Landspítalann í Fossvogi í Reykjavík. Á Facebook-síðu söfnunarinnar kemur fram að það sé dýrt að slasast og vera veikur á Íslandi og þess vegna efnt til þessa átaks. Fannar er þar sagður mikill baráttujaxl og þegar búinn að ná meiri árangri en læknar gerðu ráð fyrir.Nánar um átakið hér.
Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Fleiri fréttir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Sjá meira