Kominn með enn eina fyrirsætuna upp á arminn Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar 20. desember 2017 20:00 Leo og Cami eru nýtt par. Vísir / Getty Images
Óskarsverðlaunahafinn Leonardo DiCaprio er byrjaður með fyrirsætunni Cami Morrone samkvæmt frétt tímaritsins Us Weekly. 23ja ára aldursmunur er á parinu en Leonardo er 43ja ára og Cami tvítug. Heimildarmaður Us Weekly segir að þau hafi sést yfirgefa heimili Cami síðasta laugardag og farið síðan í verslunarferð í Barneys í Los Angeles. Þetta er langt frá því að vera í fyrsta sinn sem Leonardo deitar fyrirsætu, en það virðist vera orðið hans einkennismerki í ástarlífinu. Leonardo og Gisele á meðan allt lék í lyndi.Vísir / Getty Images Leikarinn hætti með Sports Illustrated-fyrirsætunni Ninu Agdal í maí, eftir eins árs samband. Þá var hann yfir sig ástfanginn af brasilísku fyrirsætunni Gisele Bundchen á árunum 2000 til 2005 og kom það mörgum í opna skjöldu þegar þau slitu samvistum. Leo og Bar höfðu gaman að því að fara á kappleiki saman.Vísir / Getty Images Því næst byrjaði Leonardo með fyrirsætunni Bar Refaeli og var í sambandi með henni á árunum 2006 til 2011. Svo var það Victoria’s Secret-engillinn Erin Heatherton sem stal hjarta hans í tíu mánuði árið 2012. Árið 2014 felldi hann og þýska fyrirsætan Toni Garrn síðan hugi saman og entist það samband í átján mánuði. Sama ár og Leo og Toni hættu saman byrjaði leikarinn með Kelly Rorbach, sem einmitt starfar sem fyrirsæta, en samband þeirra entist stutt. Hér sjást Naomi og Leonardo með tískugúrúinum Donatellu Versace.Vísir / Getty Images Þess má geta að háværar sögusagnir voru uppi um að Leonardo væri í sambandi með ofurfyrirsætunni Naomi Campbell um miðbik tíunda áratugar síðustu aldar. Ekkert var þó staðfest í þeim efnum.
Tengdar fréttir Leonardo DiCaprio er hinn fullkomni kærasti Nina Agdal hefur svo sannarlega nælt sér í "Instagram Husband". 13. október 2016 13:00 Mest lesið „Ég hef aldrei reynt að verða nokkur skapaður hlutur“ Tónlist Segir hjálminum að þakka að hann sé á lífi Lífið Lofar svakalegri veislu Tónlist Inga Tinna og Logi greina frá kyni barnsins Lífið Krakkatían: Níu líf, karfan og víkingar Lífið „Þetta er enginn helvítis félagskvíði, það bara þolir mig enginn“ Áskorun Hvers vegna tölum við um bongóblíðu? Lífið Heiður Ósk og Davíð eru nýtt par Lífið Fékk skyndihugmynd og er nú í blómahafi heima fyrir Lífið Fréttatía vikunnar: Skúlptúrar, ráðherrarifrildi og EM Lífið Fleiri fréttir Heilmikil skemmtidagskrá og samsöngur á Þingvöllum í dag Inga Tinna og Logi greina frá kyni barnsins Segir hjálminum að þakka að hann sé á lífi Krakkatían: Níu líf, karfan og víkingar Hvers vegna tölum við um bongóblíðu? Tólf klukkustunda gjörningur í Hörpu í dag Torfbærinn í Vesturbænum sem stóð fram á níunda áratuginn Bubbi hrærður: Trúir því að Níu líf muni á endanum vakna að nýju Fréttatía vikunnar: Skúlptúrar, ráðherrarifrildi og EM Arnar Þór selur Arnarneshöllina Á 90 þúsund servíettur í Hafnarfirði Heiður Ósk og Davíð eru nýtt par Fékk skyndihugmynd og er nú í blómahafi heima fyrir Einstakur Fender Telecaster í Hljóðfærahúsinu Fólk ferðist alla leið frá Ástralíu til að sækja Víkingahátíðina Tignarleg miðbæjaríbúð Helgu Ólafs til sölu Íslensk lopapeysa flutt milli heimsálfa vegna mestu eftirsjár ævinnar Breytti hænsnahúsi í verkstæði sitt Teknóhátíð á Radar alla helgina Enn neisti hjá Bad Bunny og Kendall Jenner Banjóleikari frá Nashville með Baggalúti og Sinfó Hugsar hlýtt til áranna í Los Angeles Aníta Briem og Hafþór eiga von á barni Selur húsið í Garðabæ eftir kaupin á glæsihúsi Ingu Lindar Sjö daga afmælissæla í Reykjanesbæ Þrjú hundruð börn reyna að dorga furðulegasta fiskinn Bara 33 ára og lífið á eftir að koma í ljós Daði keypti hús Jóns Jónssonar með mömmu sinni á yfirverði „Ég væri ekkert án þeirra“ Gekk í tvo tíma að flugvellinum til að komast hjá leigubílagjaldi Sjá meira
Leonardo DiCaprio er hinn fullkomni kærasti Nina Agdal hefur svo sannarlega nælt sér í "Instagram Husband". 13. október 2016 13:00