Hundurinn Tinna týnd í fjóra daga: Eigandinn býður 200 þúsund krónur í fundarlaun Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 2. janúar 2017 14:49 Andrea sá þessi fótspor í snjónum skammt frá Vogum í gær. Hún hætti því ekki að leita fyrr en það var orðið dimmt, en þá voru björgunarsveitarmenn farnir að leita að Andreu.
Hátt í fjörutíu manns leita nú að hundinum Tinnu sem týndist á Suðurnesjum fyrir fjórum dögum síðan. Eigandi hundsins, Andrea Björnsdóttir, segist vera orðin örvæntingarfull og ætlar að greiða hverjum þeim sem finnur hundinn, dauðan eða lifandi, tvö hundruð þúsund krónur. „Meðlimir í Facebook-hópnum Hundasamfélagið hafa verið mjög duglegir við að aðstoða við leitina. Við höfum verið að skipta liði og skipta með okkur svæðum og sífellt fleiri að bætast í hópinn, sem ég er mjög þakklát fyrir,“ segir Andrea í samtali við Vísi, en hópurinn hefur fyrst og fremst leitað á Suðurnesjum. Tinna var í pössun í Keflavík á meðan eigendur hennar voru í útlöndum. Andrea hafði óskað eftir pössun fyrir hundinn í gegnum Hundasamfélagið, en þar ræða hundaeigendur ýmis málefni tengd dýrunum, skipuleggja gönguferðir og fleira. „Ég er rosalega svekkt yfir því að hafa treyst konunni. Hún lét okkur ekki vita að Tinna væri týnd fyrr en við komum heim 31. desember en þá hafði hún verið týnd í einn og hálfan sólarhring. Kannski hafði hún verið týnd lengur, við vitum það ekki.“Tinna er afskaplega ljúf og góð. Hún er þriggja ára og er blanda af tegundunum Mini Schnauzer og Toy Puddle.Þyrlan ræst út vegna Andreu Andrea hefur leitað myrkranna á milli og var í raun svo lengi úti í gær að björgunarsveitir auk þyrlu Landhelgisgæslunnar voru kallaðar út, en farsími Andreu hafði þá verið rafmagnslaus um nokkra stund. „Ég var búin að labba frá klukkan sjö um morguninn, frá Vogum og að álverinu, til um það bil níu um kvöldið. Síminn varð mjög fljótt batteríslaus því ég var að nota ljósið á honum. Ég var svolítið lengi að labba yfir því ég sneri mig á fætinum, en ég hélt samt að allir vissu hvar ég væri. Ég var alveg miður mín þegar ég frétti af því að það hefði verið útkall út af mér,“ segir hún. „Ég vildi bara ekki hætta að leita. Ég sá einhver fótspor þannig að ég hélt alltaf áfram og ég ætlaði mér svo innilega að finna hana. Við héldum áfram að leita að Tinnu til klukkan þrjú í nótt og byrjuðum aftur klukkan sjö í morgun.“ Andrea segist vera orðin örvæntingarfull og tók því ákvörðun að bjóða fundarlaun fyrir Tinnu. „Þetta er ekki neitt miðað við hvað hún er dýrmæt okkur. Hún er ómetanleg og alveg einstakur hundur. Við viljum fá hana í hendurnar sem fyrst og jafnvel þó hún sé ekki á lífi þá verðum við bara að vita hvar hún er.“ Tinna er blanda af Miniature Schnauzer og Toy Puddle. Hún er að sögn Andreu afskaplega ljúf og góð og svarar kalli, en er svolítið feimin við ókunnuga. Andrea biður fólk um að leita í skúrum hjá sér og görðum, og að hafa samband í síma 846-6613 telji það sig hafa séð hundinn.
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Innlent Fleiri fréttir Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Sjá meira