Það er alltaf glettilega skemmtilegt að leita að tvíförum í röðum fræga fólksins og förum við yfir nokkra slíka hér að neðan. Lumið þið á sniðugum tvíförum?

Leikkonan Elisabeth Moss leikur aðalhlutverkið í einum besta sjónvarpsþætti síðari tíma, The Handmaid’s Tale. Ferilsskrá hennar er orðin ansi löng, þrátt fyrir ungan aldur, og inniheldur meðal annars sjónvarpsþættina Mad Men og The West Wing og kvikmyndirnar Girl, Interrupted og Chuck.
Alþingiskonan Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir hefur líka afrekað mikið á stuttri ævi, hefur unnið sem lögregluþjónn, verið formaður Heimdallar og ritari Sjálfstæðisflokksins svo fátt eitt sé nefnt. Þær Elisabeth eiga ekki aðeins dugnaðinn sameiginlegan heldur eru þær einnig fáránlega líkar.

Það er eiginlega ekki hægt að fara í tvífarapælingar nema að minnast á þá staðreynd að söngkonan Birgitta Haukdal og leikkonan Natalie Wood eru nánast alveg eins.
Birgitta er að sjálfsögðu ein okkar ástælasta söngkona og gerði fyrst garðinn frægan með hljómsveitinni Írafár. Á síðari árum hefur hún meira einbeitt sér að barnabókaskrifum.
Natalie var þekkt fyrir hlutverk sín í Miracle on 34th Street, Rebel Without a Cause og West Side Story en hún lést í nóvember árið 1981.

Conchita Wurst kom, sá og sigraði í Eurovision árið 2014 með laginu Rise Like a Phoenix. Conchitu, sem er sviðsnafn listamannsins Thomas Neuwirth, hefur vegnað vel síðan þá og treður reglulega upp út um alla Evrópu.
Færri vita það að Conchita á tvífara á Íslandi, nefnilega Roald Viðar Eyvindsson, blaðamann, bókmenntafræðing og ritstjóra, sem er líka afskaplega hæfileikaríkur, þó hann taki kannski seint þátt í Eurovision.

Fjölmiðlakonan Eva María Jónsdóttir er áberandi á sjónvarpsskjám landsmanna um þessar mundir eftir að hún heimsótti Zaatari-flóttamannabúðirnar í Jórdaníu á vegum UN Women.
Tvífari hennar í Ameríku hefur þó lítið sést á sjónvarpsskjánum eftir að hún sló í gegn í goðsagnakenndu sjónvarpsseríunni Beverly Hills 90210. Við erum að tala um Jennie Garth sem brá sér í hlutverk vinsælu stelpunnar Kelly.

Fótboltakempan Per-Mathias Hogmo hefur þjálfað bæði kvenna og karla landslið Noregs í fótbolta en ekki er á allra vitorði að hann á ansi þekktan tvífara hér á Íslandi.
Við erum að sjálfsögðu að tala um Sigurð Einarsson, einn umdeildasta bankamann Íslands eins og hann hefur stundum verið kallaður. Óvíst er hvort Sigurður kann eitthvað að sparka í tuðru - eitthvað sem tvífari hans gæti vel kennt honum.

Tónlistarmanninn Sting þarf vart að kynna, enda hefur hann heillað heimsbyggðina með ljúfum tónum síðustu áratugina.
En getur verið að Sting eigi fjarskyldan ættingja á Íslandi? Nefnilega rithöfundinn Jón Kalman Stefánsson?
Það má varla á milli sjá hvor er hvor þegar litið er á þá Sting og Jón. Algjörlega magnaðir tvífarar, svo ekki sé minnst á hve fjölhæfir listamenn þeir eru.