Um 32 tonn af tóbaki enduðu í vörinni Jón Hákon Halldórsson skrifar 4. janúar 2017 06:30 Ungir karlmenn troða miklu í vörina á hverju ári. vísir/gva
Heildsöluverð á íslensku neftóbaki hækkaði um 60 prósent um áramótin. Fyrir áramót seldi ÁTVR verslunum tuttugu neftóbaksdósir saman á 29.260 krónur en 1. janúar fór verðið á þessum tuttugu dósum í 47.053 krónur. Dósin hækkaði því um 890 krónur og fór upp í 2.352 krónur. Eftir hækkunina fæst ein slík neftóbaksdós á 3.058 krónur í Hagkaup.Ástæðu hækkunar á neftóbaki má rekja til hækkunar á tóbaksgjaldi á neftóbak um síðustu áramót. Þá var tóbaksgjald á neftóbak hækkað úr 15,10 krónum á hvert gramm í 25,53, eða sem nemur 70 prósentum. Hækkunin var ákveðin að tillögu forstjóra ÁTVR í erindi hans til efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis. Í umsögninni er bent á að sala á neftóbaki hafi farið úr 16,9 tonnum árið 2007 í rúm 40 tonn árið 2016. Viðar Jensson, verkefnastjóri tóbaksvarna hjá Landlækni, fagnar hækkuninni. Tóbaksgjald á neftóbak hafi hækkað um helming áramótin 2012 og 2013 og þá hafi slegið verulega á eftirspurn eftir tóbakinu. „Þótt áhrifin hafi síðan dvínað, þá vitum við að verð hefur áhrif og sérstaklega á það við varðandi ungt fólk,“ segir Viðar. Viðar segir Landlækni hafa reiknað út að 70 til 80 prósent af þeim 40 tonnum sem seld eru af íslensku neftóbaki fari í munn á ungum karlmönnum. Í könnun sem gerð var árið 2012 hafi komið fram hversu mikils af neftóbaki var neytt sem neftóbaks og hversu mikils var neytt sem munntóbaks. „Svo endurtókum við þetta 2015 og þá sáum við á yngsta hópnum, 18 til 24 ára, að neysla þar hafði enn aukist,“ segir Viðar. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Tengdar fréttir 40 tonn seld af neftóbaki í ár Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins leggur til að tóbaksgjald hækki um allt að 69 prósent á hvert gramm tóbaks. 21. desember 2016 07:45 Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Fleiri fréttir Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Sjá meira
40 tonn seld af neftóbaki í ár Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins leggur til að tóbaksgjald hækki um allt að 69 prósent á hvert gramm tóbaks. 21. desember 2016 07:45