Flugeldur endaði í svefnherbergi: „Guði sé lof að ég lá ekki í rúminu“ Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 4. janúar 2017 20:00 Tjónið vegna flugeldsins er töluvert Vísir/Skjáskot
Ásta Erla Jónsdóttir segir að betur hafi farið en á horfðist þegar flugeldur skaust inn um svefnherbergisgluggann á íbúð hennar fyrr í dag með þeim afleiðingum að eldur kviknaði í rúmi hennar. Ásta telur að flugeldinum hafi verið kastað inn í íbúðina og segist vilja vekja athygli á alvarleika málsins. „Við erum mjög skelkuð hérna. Það varð bara eldur, þetta var hræðilegt. Guði sé lof að ég lá ekki í rúminu því þetta hefði farið í andlitið á mér. Hann sprakk á koddanum sem varð alelda,“ segir Ásta í samtali við Vísi. Ásta Erla auglýsti eftir vitnum af atburðinum í hverfishóp Langholtshverfis á Facebook. Hún segist hafa hringt í neyðarlínuna og að slökkvilið hafi komið á vettvang ásamt lögreglu, sem tók af þeim skýrslu. „Kærastinn minn hljóp út og reyndi að sjá eitthvað, en við vitum ekki neitt,“ segir Ásta, sem segist ekki vilja trúa því að fullorðnu fólki detti slíkt í hug og grunar þess vegna að krakkar gætu verið að verki. „Mig grunar að þetta sé hrekkur og að börnum finnist þetta fyndið.“ Ásta segir töluvert tjón vera eftir flugeldinn, sem skaust undir fataskáp í herberginu og að mikil reyklykt sé af eigum þeirra. „Það hefði getað orðið alvarlegt slys hérna. Það var mikill blossi og mikill hvellur. Vonandi er þetta einhverjum víti til varnaðar að gera ekki svona.“
Mest lesið Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Innlent Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Mesti snjór í New York í fjögur ár Erlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Erlent Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Innlent Þrír létust í óveðrinu Erlent Líkamsárás í miðbænum Innlent Fleiri fréttir „Gamla góða Ísland, bara betra“ Gróður farinn að grænka fyrir norðan Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Margfaldur þungi í loftárásum og kyntákn kveður Afbrot, fjölmiðlastyrkir og stefna Miðflokksins Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Líkamsárás í miðbænum Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Sjá meira