Skammar dóttur sína fyrir ekki nógu Trumplega baráttu Stefán Ó. Jónson skrifar 25. apríl 2017 10:53 Jean-Marie og Marine ávarpa mannfjöldann á Verkalýðsdaginn árið 2015. Vísir/Getty
Fyrrverandi formaður frönsku Þjóðfylkingarinnar og faðir forsetaframbjóðans Marine Le Pen, Jean-Marie Le Pen, vandaði dóttur sinni ekki kveðjurnar í samtali við RTL útvarpsstöðina í morgun. Sagði hann kosningabaráttu Marine, í aðdraganda fyrri umferðar frönsku forsetakosninganna á sunnudag, hafa verið alltof hófstillta og ekki nógu mikið í anda hins bandaríska Donalds Trump. Gagnrýni föður hennar kemur í kjölfar yfirlýsingar Marine Le Pen í gærkvöldi að hætta sem formaður Þjóðfylkingarinnar til að einbeita sér að einvígi hennar og miðjumannsins Emmanuel Macron. Seinni umferð forsetakosninganna fara fram þann 7. maí næstkomandi og ef marka má kannannir er á brattann að sækja fyrir Le Pen. Greiningafyrirtækið Ipsos áætlar að Macron muni standa uppi með 62% atkvæða en að Le Pen hljóti 38%.Sjá einnig: Le Pen stígur til hliðarJean-Marie var einn af stofnmeðlimum flokksins en dóttir hans velti honum úr stóli formanns í hreinsunum í aðdraganda forsetaframboðsins hennar. Voru þær taldar nauðsynlegar til að mýkja ásýnd Þjóðfylkingarinnar sem í hugum margra var táknmynd kynþáttafordóma og mismununar. Jean-Marie er þó enn mikill áhrifamaður innan flokksins. „Mér fannst baráttan hennar of hófstillt. Væri ég hún hefði ég haft baráttuna Trump-legri, opnari og miklu harðfylgnari gegn þeim sem bera ábyrgð á hnignun landsins, hvort sem þeir eru til vinstri eða hægri,“ sagði Jean-Marie Le Pen í samtali við RTL í morgun. Hann er alls ekki ókunnur árangursríkum kosningabaráttum en árið 2002 kom Jean-Marie Le Pen mörgum í opna skjöldu þegar hann náði í seinni umferð frönsku forsetakosninganna. Jasques Chirac sigraði hann þó með yfirburðum, 82% gegn 18%.
Tengdar fréttir Le Pen og félagar stilla miðið á Macron Miðjumaðurinn Emmanuel Macron er hrokafullur og enginn föðurlandssvinur ef marka má orð eins helsta ráðgjafa Marine Le Pen. Kosningabaráttan fyrir seinni umferð frönsku forsetakosninganna er strax hafinn og verður hún hörð af ummælum ráðgjafa Le Pen að dæma. 24. apríl 2017 12:50 Einstök staða í frönskum stjórnmálum Verðbréfamarkaðir í Frakkalandi tóku við sér á mánudagsmorgun og evran náði sínu hæsta verðgildi gagnvart Bandaríkjadal frá því í nóvember. 25. apríl 2017 07:00 Le Pen stígur til hliðar Marine Le Pen hefur ákveðið að segja af sér formennsku í Franska þjóðarflokknum. 24. apríl 2017 19:31 Mest lesið Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Innlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Fleiri fréttir Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Sjá meira
Le Pen og félagar stilla miðið á Macron Miðjumaðurinn Emmanuel Macron er hrokafullur og enginn föðurlandssvinur ef marka má orð eins helsta ráðgjafa Marine Le Pen. Kosningabaráttan fyrir seinni umferð frönsku forsetakosninganna er strax hafinn og verður hún hörð af ummælum ráðgjafa Le Pen að dæma. 24. apríl 2017 12:50
Einstök staða í frönskum stjórnmálum Verðbréfamarkaðir í Frakkalandi tóku við sér á mánudagsmorgun og evran náði sínu hæsta verðgildi gagnvart Bandaríkjadal frá því í nóvember. 25. apríl 2017 07:00
Le Pen stígur til hliðar Marine Le Pen hefur ákveðið að segja af sér formennsku í Franska þjóðarflokknum. 24. apríl 2017 19:31