Umræðan um heilbrigðiskerfið Jón H. Guðmundsson skrifar 18. febrúar 2016 00:00 Það er heldur betur fróðlegt að fylgjast með umræðunni um heilbrigðiskerfið um þessar mundir, þökk sé Kára Stefánssyni. Nú þegar undirskriftasöfnunin hefur staðið um hríð er rétt að minna á umræðuna sem var fyrri hluta síðastliðins árs. Þá einkenndist hún af þeim erfiðlekum sem verkföll heilbrigðisstétta olli. Þá var kvartað hástöfum yfir því ástandi og hvað það kæmi illa við viðkomandi stofnanir, sérstaklega var kvartað undan rekstrinum og erfiðleika með mönnun. Í þessari umræðu var sjaldnast minnst á sjúklinga og hvað ástandið hefði á andlegu og líkamlega líðan þeirra. Þetta ástand fjaraði svo út er líða tók á árið. Fór umræðan þá að snúast um fjármál heilbrigðiskerfisins og sitt sýndist hverjum. Þegar farið var að bera okkar kerfi við þau erlendu og því haldið fram að okkar kerfi væri með þeim betri í heimi er rétt að staldra við. Það er varla hægt að halda því fram að kerfi sem ekki getur þjónustað veika og slasaða einstaklinga sé þess heiðurs aðnjótandi. Að einstaklingur geti ekki fengið greiningu á sínum veikindum, komist ekki í aðgerð, eigi það á hættu að vera sendur heim og komist ekki í eftirmeðferð. Að ekki sé nú talað um að bíða í eitt til tvö ár eftir því að komast í aðgerð. Svona er nú okkar ágæta heilbrigðiskerfi. Ef það er með þeim bestu, hvernig eru þá þau erlendu? Svo má spyrja áfram, hverjir hafa stjórnað því og með hvaða markmiði? Er það mat stjórnenda að kerfi sem sinnir sjúklingum ekki betur en raun ber vitni, flokkist með þeim betri í heimi? Hvers vegna var nánast aldrei minnst á líðan sjúklinga í allri þessari umræðu?Á að snúast um líðan fólks Í grein sem Kári Stefánsson ritaði í upphafi undirskriftar sinnar, komst hann svo að orði, svo vitnað sé orðrétt í grein hans. „Nefndin virðist gleyma því að Páll er ekki að tala um göt í gegnum fjöll eða sendiráð í Tókíó heldur SJÚKDÓMA FÓLKSINS Í LANDINU, SÁRSAUKA, KVÍÐA, ANGIST OG LÍF OG DAUÐA“. Þetta er í fyrsta sinn sem ég sé svo afgerandi fullyrðingu á prenti frá manni sem er svo tengdur heilbrigðiskerfinu. Þessi málaflokkur á ekki að snúast um stofnun, kerfi, rýni eða rúm, heldur líðan þess fólks sem einhverra hluta vegna varð svo ólánsamt að greinast með sjúkdóm eða hefur orðið fyrir slysum. Koma því til hjálpar, lina þjáningar þess og sjá til að það nái bata. Það er sárgrætilegt til þess að hugsa að stjórnvöld hverju sinni skuli ekki sjá sóma sinn í því að trygga nægilegt fjármagn til að koma í veg fyrir allar þær þjáningar sem sjúklingar þurfa að ganga í gegnum, að ekki sé talað um ótímabæran dauða. Verst af öllu er að vita, að með auknu fjármagni er hægt að koma í veg fyrir þetta ástand. Þess vegna er ekki annað hægt en að dást að framgöngu Kára Stefánssonar. En nú heyrist sú rödd frá Kára að undirskriftin sé ekki að skila þeim árangri sem hann vonaðist eftir. Telur hann að það þurfi verulegan fjölda til viðbótar svo það takist. Einu hefur þetta átak nú þegar skilað, aukinni umræðu og að hún eigi að snúast um líðan fólks. Ef fer sem horfir að ekki safnist nægilega margar undirskriftir verður að taka undir með Kára að sá hluti þjóðarinnar sé sáttur við heilbrigðiskerfið eins og það er í dag, því miður. Takið ykkur nú tak og skrifið undir, við viljum meira fjármagn til heilbrigðiskertisins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ég hef borgað í áratugi af húsnæðisláni en skulda samt Sigurður H. Einarsson Skoðun Glæpahundurinn Jónatan Ljónshjarta Heimir Eyvindarson Skoðun Vöknum, foreldrar, afar og ömmur! Jón Pétur Zimsen Skoðun Sundlaugar Reykjavíkurborgar – afturför og sóðaskapur Sigfús Aðalsteinsson,Hlynur Áskelsson Skoðun Hver er raunmæting íslenskra grunnskólanema? Ragnheiður Stephensen Skoðun Upp úr reyknum rísi Fönix hins nýja Landspítala, fullt af nýjum hjúkrunarheimilum og allt verður frábært...eða hvað? Bryndís Logadóttir Skoðun Þeir vissu sannleikann en seldu okkur efasemdir Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Borgarlína eða lífæð? Við erum að velja vitlaust Jón Þór Guðjónsson Skoðun Velferðin og valkyrjurnar Rósalind Signýjar Kristjánsdóttir Skoðun Hvað er heit vinna? Sigrún A. Þorsteinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Vöknum, foreldrar, afar og ömmur! Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Glæpahundurinn Jónatan Ljónshjarta Heimir Eyvindarson skrifar Skoðun Ég hef borgað í áratugi af húsnæðisláni en skulda samt Sigurður H. Einarsson skrifar Skoðun Bestum borgina með fólkið í forgrunni Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar Skoðun Velferðin og valkyrjurnar Rósalind Signýjar Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Um stafrænt skólaumhverfi barna í Kópavogi Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Upp úr reyknum rísi Fönix hins nýja Landspítala, fullt af nýjum hjúkrunarheimilum og allt verður frábært...eða hvað? Bryndís Logadóttir skrifar Skoðun Fögnum úrbótum án afslátta Jóna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Samfélagsgróðurhús Árný Fjóla Ásmundsdóttir,Berglind Ósk Guttormsdóttir,Halldór Grétar Einarsson,Þorsteinn Hjartarson skrifar Skoðun Hver er raunmæting íslenskra grunnskólanema? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Áhrifum fylgir ábyrgð Ása Valdís Árnadóttir skrifar Skoðun Að kljúfa þjóð í herðar niður Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Borgarlína eða lífæð? Við erum að velja vitlaust Jón Þór Guðjónsson skrifar Skoðun Rósin hefur ekki sagt sig úr flokknum aðeins úr Fulltrúaráði hans í Reykjavík Birgir Dýrfjörð skrifar Skoðun Holland í sókn en stjórnmálin hikandi Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Valdið í reykfylltum bakherbergjum: Kerfisvandi sem krefst uppskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er heit vinna? Sigrún A. Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Sundlaugar Reykjavíkurborgar – afturför og sóðaskapur Sigfús Aðalsteinsson,Hlynur Áskelsson skrifar Skoðun Virðisaukaskattur, ferðaþjónusta og hættulegur misskilningur Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Klúðrið hjá Guði Þröstur Hrafnkelsson skrifar Skoðun Sérlausnir á grundvelli 349. greinar Sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins? Spyrjið Möltu Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þeir vissu sannleikann en seldu okkur efasemdir Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Treystum foreldrum Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Það vex eitt blóm fyrir vestan Sif Huld Albertsdóttir skrifar Skoðun Hversu mörg líf þarf áður en kerfið vaknar? Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju þurfum við páska? Matthildur Bjarnadóttir skrifar Skoðun Íþrótta- og menningarbærinn Hafnarfjörður Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Hvað fæst fyrir skattpeningana? Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Kosningar eða Eurovision? Þorsteinn Haukur Harðarson skrifar Skoðun Viltu vita? Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar Sjá meira
Sundlaugar Reykjavíkurborgar – afturför og sóðaskapur Sigfús Aðalsteinsson,Hlynur Áskelsson Skoðun
Upp úr reyknum rísi Fönix hins nýja Landspítala, fullt af nýjum hjúkrunarheimilum og allt verður frábært...eða hvað? Bryndís Logadóttir Skoðun
Skoðun Upp úr reyknum rísi Fönix hins nýja Landspítala, fullt af nýjum hjúkrunarheimilum og allt verður frábært...eða hvað? Bryndís Logadóttir skrifar
Skoðun Samfélagsgróðurhús Árný Fjóla Ásmundsdóttir,Berglind Ósk Guttormsdóttir,Halldór Grétar Einarsson,Þorsteinn Hjartarson skrifar
Skoðun Rósin hefur ekki sagt sig úr flokknum aðeins úr Fulltrúaráði hans í Reykjavík Birgir Dýrfjörð skrifar
Skoðun Valdið í reykfylltum bakherbergjum: Kerfisvandi sem krefst uppskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Sundlaugar Reykjavíkurborgar – afturför og sóðaskapur Sigfús Aðalsteinsson,Hlynur Áskelsson skrifar
Skoðun Sérlausnir á grundvelli 349. greinar Sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins? Spyrjið Möltu Erna Bjarnadóttir skrifar
Sundlaugar Reykjavíkurborgar – afturför og sóðaskapur Sigfús Aðalsteinsson,Hlynur Áskelsson Skoðun
Upp úr reyknum rísi Fönix hins nýja Landspítala, fullt af nýjum hjúkrunarheimilum og allt verður frábært...eða hvað? Bryndís Logadóttir Skoðun