16 ára ætlaði að sprengja upp tvo skóla í Danmörku Samúel Karl Ólason skrifar 8. mars 2016 10:50 Vísir/AFP
Sextán ára stúlka, sem handtekin var í janúar, hefur verið ákærð fyrir vörslu sprengiefna og að ætla að sprengja upp tvö skóla í Danmörku. Samkvæmt ákærunni reyndi hún að smíða sprengjur og ætlaði að sprengja þær í skólum gyðinga í Kaupmannahöfn og Farevejle. Stúlkan var fimmtán ára þegar hún var handtekin í Kundby. Auk stúlkunnar er réttað yfir 24 ára manni sem hefur ferðast til Sýrlands og barist fyrir hryðjuverkahópa. Honum hefur verið lýst sem vini hennar og er grunaður um að hjálpa stúlkunni við skipulagningu hryðjuverkanna. Þau eru ákærð samkvæmt hryðjuverkalöggjöf Danmerkur og eiga því lífstíðarfangelsi yfir höfði sér. Þau halda bæði fram sakleysi sínu.Samkvæmt DR hefur stúlkan gert tilraunir með sprengjur og var hún að reyna að útvega sér dísilolíu og áburði. Það má nota til að gera sprengjur. Þá fundust leiðbeiningar til sprengjugerðar á heimili hennar. Mál þeirra hefur verið flutt fyrir luktum dyrum og er þetta í fyrsta sinn sem upplýsingar um málið verða opinberar. Fjölmiðlar í Danmörku segja að stúlkan hafi nýlega snúist til íslamstrúar og að hún hafi viljað snúa fleiri Dönum. Talið er að þau hafi reynt að búa til sprengiefnið TATP, sem meðal annars var notað í árásunum í París í nóvember, sem þau ætluðu að nota í Kaupmannahöfn.
Mest lesið Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Innlent Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent „Þá bara krassa lungun“ Innlent Bruni við Breiðhöfða Innlent Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Innlent Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Innlent Fleiri fréttir Þúsundir hælisleitenda synt til Ceuta á nokkrum klukkustundum Trump segir Hamas samþykkja að afvopnast og Ísrael að hverfa frá Gasa „Hún drap börnin“ „Það sem hann gerði, ég get aldrei endurgoldið það“ Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Sjá meira