Blekkjandi umfjöllun um sykurneyslu Ragnheiður Héðinsdóttir og Bjarni Már Gylfason skrifar 16. febrúar 2016 07:00 Fjallað er um sykurneyslu Íslendinga í Fréttablaðinu 6. febrúar síðastliðinn. Þar er ýmsu haldið fram sem lítill fótur er fyrir. Í upphafi greinarinnar kemur fram að þjóðin þyngist og þyngist og að sykursýki hafi tvöfaldast á 50 árum en verið nokkurn veginn óþekkt fyrir 50 árum síðan. Ómögulegt er að halda því fram að þessi þróun sé sykurneyslu einni um að kenna og er umfjöllunin blekkjandi. Staðreyndin er sú að sykurneysla hefur dregist saman jafnt og þétt á síðari árum. Á árunum 1956-1960 var sykurneysla á mann 52,3 kg á en tæp 42 kg á ári árið 2014 samkvæmt fæðuframboðstölum Landlæknisembættisins. Sykurneysla hefur því ótvírætt dregist saman. Samkvæmt sömu gögnum Landlæknis hefur neysla á sælgæti heldur dregist saman á síðustu 10 árum eftir að hafa aukist mikið eftir að innflutningur á sælgæti var gefinn frjáls eftir 1980. Sama má segja um heildarneyslu á gosdrykkjum sem hefur dregist lítillega saman á síðustu 15 árum en þess ber einnig að geta að inni í þeim tölum eru, auk sykraðra gosdrykkja, allir ósykraðir gos- og vatnsdrykkir. Í umræddri grein er því haldið fram að gosdrykkjum megi kenna um helming af neyslu viðbætts sykurs í landinu. Þessi fullyrðing stenst ekki. Sykraðir gosdrykkir eru nú aðeins um 55% af heildarneyslunni eða rúmir 70 lítrar á mann en ósykraðir drykkir 45% eða sem svarar tæpum 60 lítrum á mann. Heildarneysla kolsýrðra drykkja er um 130 lítrar á mann á ári. Sykurhlutfall í sykruðum gosdrykkjum er um 11% sem þýðir að úr u.þ.b. 72 lítrum á hvert mannsbarn koma um 7,9 kg á ári úr gosdrykkjum sem er innan við 20% af heildarneyslu af viðbættum sykri. Greininni í Fréttablaðinu var sýnilega ætlað að hneyksla og því er hið neikvæða málað sterkum litum. Mikið hefur áunnist í þeirri viðleitni að snúa lífsháttum til betri vegar á síðari árum. Því er nær að tala upp það sem vel er gert fremur en ala á æsifréttum um hið neikvæða. Í því samhengi má benda á að framboð gosdrykkja í litlum einingum hefur aukist mikið og að gríðarleg aukning hefur orðið á vatnsneyslu. Markmiðið með þessum skrifum er engan veginn að mæla með óhófi af nokkru tagi heldur miklu fremur að benda á að þróunin er í rétta átt og því ber að fagna. Hin gullna regla næringarfræðinnar er í fullu gildi hér eftir sem hingað til, þ.e.a.s. að fjölbreytni í fæðuvali og hófsöm neysla er mun líklegri til árangurs en illa grundaðar fullyrðingar um skaðsemi einstakra fæðutegunda. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Vextir á villigötum Agnar Tómas Möller Skoðun Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi Birgir Orri Ásgrímsson Skoðun Leiðrétting vegna greinar um Kristrúnar í breskum hlaðvarpsþætti Guðmundur Edgarsson Skoðun Hér eru sex veigamikil rök gegn inngöngu Íslands í Evrópusambandið Eggert Sigurbergsson Skoðun Umræða um dánaraðstoð krefst mannúðar og varfærni Ingrid Kuhlman Skoðun Rangfærslurnar standa enn og ekkert að þeim vikið Konráð S. Guðjónsson Skoðun Hver lygi skapar skuld við sannleikann Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Sigmar Guðmundsson, Bandaríkin og öryggi Íslands Hjörvar Sigurðsson Skoðun Aðlögun að hverju? Staða Íslands í aðildarferli Evrópusambandsins Ásta Guðrún Helgadóttir Skoðun Þegar gögn verða að upplýsingaóreiðu: Nokkrum staðleysum Halldórs Jörgens Olesen svarað Kristinn Sv. Helgason Skoðun Skoðun Skoðun Aðlögun að hverju? Staða Íslands í aðildarferli Evrópusambandsins Ásta Guðrún Helgadóttir skrifar Skoðun Umræða um dánaraðstoð krefst mannúðar og varfærni Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi Birgir Orri Ásgrímsson skrifar Skoðun Leiðrétting vegna greinar um Kristrúnar í breskum hlaðvarpsþætti Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Vextir á villigötum Agnar Tómas Möller skrifar Skoðun Rangfærslurnar standa enn og ekkert að þeim vikið Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hver lygi skapar skuld við sannleikann Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hér eru sex veigamikil rök gegn inngöngu Íslands í Evrópusambandið Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Herskylduhrakspár Haraldar skekkja raunhæfa sýn á varnarmál Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Þegar gögn verða að upplýsingaóreiðu: Nokkrum staðleysum Halldórs Jörgens Olesen svarað Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Sigmar Guðmundsson, Bandaríkin og öryggi Íslands Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Sex ástæður fyrir JÁ-i í ágúst Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Heilbrigt starfsumhverfi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Dagur Jónsson skrifar Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Brestur í manngæsku - ESB og flóttafólk Ari Orrason skrifar Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Evra eða króna? Grímur Grímsson skrifar Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir skrifar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén skrifar Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvernig varð gervigreindin til og hvernig virkar hún? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar eru góðu mennirnir? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Slagorð í stað gagna: Grein Snorra Mássonar um ESB-aðild Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Hættulegasti tími ársins í umferðinni Ágúst Mogensen skrifar Sjá meira
Fjallað er um sykurneyslu Íslendinga í Fréttablaðinu 6. febrúar síðastliðinn. Þar er ýmsu haldið fram sem lítill fótur er fyrir. Í upphafi greinarinnar kemur fram að þjóðin þyngist og þyngist og að sykursýki hafi tvöfaldast á 50 árum en verið nokkurn veginn óþekkt fyrir 50 árum síðan. Ómögulegt er að halda því fram að þessi þróun sé sykurneyslu einni um að kenna og er umfjöllunin blekkjandi. Staðreyndin er sú að sykurneysla hefur dregist saman jafnt og þétt á síðari árum. Á árunum 1956-1960 var sykurneysla á mann 52,3 kg á en tæp 42 kg á ári árið 2014 samkvæmt fæðuframboðstölum Landlæknisembættisins. Sykurneysla hefur því ótvírætt dregist saman. Samkvæmt sömu gögnum Landlæknis hefur neysla á sælgæti heldur dregist saman á síðustu 10 árum eftir að hafa aukist mikið eftir að innflutningur á sælgæti var gefinn frjáls eftir 1980. Sama má segja um heildarneyslu á gosdrykkjum sem hefur dregist lítillega saman á síðustu 15 árum en þess ber einnig að geta að inni í þeim tölum eru, auk sykraðra gosdrykkja, allir ósykraðir gos- og vatnsdrykkir. Í umræddri grein er því haldið fram að gosdrykkjum megi kenna um helming af neyslu viðbætts sykurs í landinu. Þessi fullyrðing stenst ekki. Sykraðir gosdrykkir eru nú aðeins um 55% af heildarneyslunni eða rúmir 70 lítrar á mann en ósykraðir drykkir 45% eða sem svarar tæpum 60 lítrum á mann. Heildarneysla kolsýrðra drykkja er um 130 lítrar á mann á ári. Sykurhlutfall í sykruðum gosdrykkjum er um 11% sem þýðir að úr u.þ.b. 72 lítrum á hvert mannsbarn koma um 7,9 kg á ári úr gosdrykkjum sem er innan við 20% af heildarneyslu af viðbættum sykri. Greininni í Fréttablaðinu var sýnilega ætlað að hneyksla og því er hið neikvæða málað sterkum litum. Mikið hefur áunnist í þeirri viðleitni að snúa lífsháttum til betri vegar á síðari árum. Því er nær að tala upp það sem vel er gert fremur en ala á æsifréttum um hið neikvæða. Í því samhengi má benda á að framboð gosdrykkja í litlum einingum hefur aukist mikið og að gríðarleg aukning hefur orðið á vatnsneyslu. Markmiðið með þessum skrifum er engan veginn að mæla með óhófi af nokkru tagi heldur miklu fremur að benda á að þróunin er í rétta átt og því ber að fagna. Hin gullna regla næringarfræðinnar er í fullu gildi hér eftir sem hingað til, þ.e.a.s. að fjölbreytni í fæðuvali og hófsöm neysla er mun líklegri til árangurs en illa grundaðar fullyrðingar um skaðsemi einstakra fæðutegunda.
Þegar gögn verða að upplýsingaóreiðu: Nokkrum staðleysum Halldórs Jörgens Olesen svarað Kristinn Sv. Helgason Skoðun
Skoðun Aðlögun að hverju? Staða Íslands í aðildarferli Evrópusambandsins Ásta Guðrún Helgadóttir skrifar
Skoðun Leiðrétting vegna greinar um Kristrúnar í breskum hlaðvarpsþætti Guðmundur Edgarsson skrifar
Skoðun Hér eru sex veigamikil rök gegn inngöngu Íslands í Evrópusambandið Eggert Sigurbergsson skrifar
Skoðun Þegar gögn verða að upplýsingaóreiðu: Nokkrum staðleysum Halldórs Jörgens Olesen svarað Kristinn Sv. Helgason skrifar
Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar
Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar
Þegar gögn verða að upplýsingaóreiðu: Nokkrum staðleysum Halldórs Jörgens Olesen svarað Kristinn Sv. Helgason Skoðun