Engin fangelsisvist fyrir að hafa ráðist á þungaða konu sína Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 3. febrúar 2016 15:46 Konan var gengin 30 vikur með barnið þegar maðurinn réðst á hana. Vísir/Getty
Karlmaður á Vesturlandi hefur verið dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Vesturlands fyrir að hafa tvívegis ráðist á sambýliskonu sína. Var konan komin þrjátíu vikur á leið þegar fyrri árásin átti sér stað en tvö börn þeirra urðu vitni að síðari árásinni. Maðurinn réðst í fyrra skiptið á konuna á heimili þeirra í febrúar 2015. Sneri hann hana niður í gólfið, sló með flötum lófa í andlitið og hélt henni niðri með því að liggja á hnjánum ofan á mjöðm hennar. Í síðara skiptið, í júní sama ár, urðu börn þeirra vitni að því þegar faðir þeirra tók móðurina hálstaki aftan frá og sneri hana niður í gólfið. Tók hann kverkataki um háls hennar, sló með flötum lófa í andlitið, dró hana með báðum höndum á hárinu um tvo metra á gólfinu og steig á vinstri hlið háls hennar með ylinni. Hlaut konan margs konar áverka sem lesa má nánar um í dómnum en auk þess komust börn þeirra í mikið uppnám og misbauð þeim hegðun föður síns verulega. Maðurinn játaði brotin en farið var fram á þrjár milljónir króna í bætur fyrir konuna, milljón fyrir son þeirra og hálfa milljón fyrir dóttur. Þarf maðurinn að greiða konunni 400 þúsund krónur í bætur til konunnar og 100 þúsund krónur til hvors barns.
Tengdar fréttir Réðst á verðandi eiginkonu sína fyrir framan barnungar dætur hennar Voru í sambúð þegar hann réðst á hana en eru í dag gift. 3. febrúar 2016 15:08 Mest lesið Átök á aðalfundi og lögregla kölluð til Innlent Segir samstarfsfólk Katrínar hafa hvatt sig til að draga sig úr leik Innlent De Niro kallaði Trump skrímsli fyrir utan dómshúsið Erlent „Er búinn að blokka 237 manneskjur á tíu dögum“ Innlent „Fyrirvarinn var í rauninni enginn“ Innlent Líkir Katrínu við „stalínista“ og skýtur á Vilhjálm Birgisson Innlent Sindri Freyr er látinn Innlent Undir yfirborði kosningabaráttunnar kraumi svæsinn slagur Innlent Fyrstu tölur frá Reykjavík ættu að gefa góða mynd af úrslitum Innlent Öllu tjaldað til við opnun nýrra undirganga Innlent Fleiri fréttir Um 200 bíða þess að vera flutt af landi í þvinguðum brottflutningi Líkir Katrínu við „stalínista“ og skýtur á Vilhjálm Birgisson Öllu tjaldað til við opnun nýrra undirganga Segir samstarfsfólk Katrínar hafa hvatt sig til að draga sig úr leik Átök á aðalfundi og lögregla kölluð til Undir yfirborði kosningabaráttunnar kraumi svæsinn slagur Bíða krufningar til að varpa ljósi á atburðarásina „Fyrirvarinn var í rauninni enginn“ Fyrstu tölur frá Reykjavík ættu að gefa góða mynd af úrslitum „Er búinn að blokka 237 manneskjur á tíu dögum“ Katrín græði stórum á vangetu kjósenda til að kjósa taktískt Andlát í Bolungarvík og forsetaefni í slorinu Héraðsdómur ruddur vegna fjölskyldutengsla og fyrri starfa dómara Áfengi og fíkniefni mældust í stýrimanninum Tvíburafolöld mætt í heiminn í Suðurnesjabæ Ferðafólki bjargað úr sjálfheldu við Þiðriksvallavatn Þriðjungur þekkir ekki neitt til Eiríks og Viktors Sindri Freyr er látinn Voru látin í einhvern tíma áður en lögregla fór inn Vill sjá leiðtoga á Norðurlöndunum en ekki aumingja og gungur Mótor bátsins var of stór og mennirnir ekki í björgunarvestum Óttast að þvingun og nauðung verði færð í lög Andlát til rannsóknar í Bolungarvík Áhyggjur læknanna ótímabærar og byggðar á misskilningi Ástandið í Hafnarfirði geti haft langvarandi áhrif á börn „Okkar hlutverk að halda utan um hvert annað“ Ræddu lokasprett æsispennandi kosningabaráttu Biður kvikmyndagerðarmanninn afsökunar Tvö látin en ekkert bendi til saknæms atburðar Enginn í haldi í tengslum við mannslát í Bolungarvík Sjá meira
Réðst á verðandi eiginkonu sína fyrir framan barnungar dætur hennar Voru í sambúð þegar hann réðst á hana en eru í dag gift. 3. febrúar 2016 15:08