Dæmd í sex mánaða fangelsi fyrir líkamsárás og þjófnað Atli Ísleifsson skrifar 25. júlí 2016 12:32 Ísafjörður. Vísir/Pjetur
Héraðsdómur Vestfjarða hefur dæmt konu í sex mánaða fangelsi fyrir líkamsárás og þjófnað. Fresta skal fullnustu refsingarinnar og fellur hún niður að þremur árum liðnum haldi konan almennt skilorð. Í dómnum kemur fram að konan hafi aðfaranótt 7. febrúar síðastliðinn ráðist á konu, fyrst í anddyri íþróttahúss með því að slá hana með hægri olnboga í andlit og taka hana kverkataki. Skömmu síðar hafi hún ráðist á hana á ný á gangi fyrir framan búningsklefa kvenna, með því að kýla hana einu hnefahöggi með hægri hendi í andlit. Segir að árásin hafi haft þær afleiðingar að fórnarlambið fékk mar í andlit og verk yfir höfuðkúpu ofan við vinstra eyra, bólgu á báðum vörum, rispu á háls, mar á upphandlegg og ofanverðan brjóstkassa, stirðleika og eymsli í hálshrygg, auk þess sem hliðarframtönn vinstra megin í efri kjálka brotnaði, sem og bráðabirgðatannbrú í efri kjálka vinstra megin. Konan var jafnframt dæmd fyrir að hafa stolið andlitskremi úr verslun Lyfju, en hún hefur sex sinnum áður verið sakfelld vegna refsilagabrota. Hún var einnig dæmd til að greiða fórnarlambi líkamsárásarinnar rúmar 400 þúsund krónur, Lyfju rúmar sex þúsund krónur vegna stuldsins, auk máls- og sakarkostnaðar.
Mest lesið Stærsti skjálftinn 3,5 að stærð Innlent Viðræður „á viðkvæmu stigi“ og fundi frestað til morguns Innlent Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Erlent Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Innlent „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Innlent Til vandræða á hóteli og réðst svo á mann við Hlemm Innlent Karlar líklegri að ljúga á kostnað annarra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Innlent „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Innlent Fleiri fréttir Viðræður „á viðkvæmu stigi“ og fundi frestað til morguns Stærsti skjálftinn 3,5 að stærð Áslaug Arna mjólkar vel í fjósinu á Hvanneyri Líklega fundað fram eftir kvöldi Til vandræða á hóteli og réðst svo á mann við Hlemm Lífshættuleg meðhöndlun barna á vöggustofum og þrír eftir í bakgarðshlaupi Karlar líklegri að ljúga á kostnað annarra Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Leikskólar Árborgar verða lokaðir á milli jóla- og nýárs Völd óskast: Forseti allra kynslóða? Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Orku- og samgöngumál efst á lista nýs sveitarfélags Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Tíðindi í kjaradeilu flugvallarstarfsmanna og bein útsending úr Bakgarðshlaupinu Frestun verkfalla kemur til greina „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Sáttasemjari boðar til fundar: Fimm dagar til stefnu Orkuskipti, innflytjendalöggjöf og bensínstöðvalóðirnar „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Ný sýn fékk meirihluta Slagsmál enduðu með nefbroti Bíll logaði í Vesturbænum „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Sjá meira