Viðurkenningin mikilvæg fyrir sjómannastéttina alla sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 10. febrúar 2016 13:39 Sjómannafélagið Jötunn hugðist greiða allan málskostnað. Ísfélaginu var þó gert að greiða hann, alls 2,8 milljónir. vísir/stefán
Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambands Íslands, segist fagna dómi Héraðsdóms Suðurlands sem nýverið komst að þeirri niðurstöðu að Ísfélag Vestmannaeyja væri bótaskylt vegna slyss skipverja um borð í skipi sem félagið gerir út. Félagið hafði hafnað bótaskyldu sinni á þeim grundvelli að utanaðkomandi atburður hefði ekki orsakað slysið. Málið á rætur sínar að rekja til ársins 2009 þegar Valmundur var formaður Sjómannafélagsins Jötuns í Vestmannaeyjum. Félagið taldi afar mikilvægt að réttur skipverjans yrði viðurkenndur og ákvað því að skuldbinda sig til þess að greiða málskostnað ef málið tapaðist.Sjá einnig:Útgerðarfélag bótaskylt vegna slyss „Við sáum hvað það var mikilvægt að fá úr þessu skorið því þetta snerist um það hvort veltingur á skipi í brjáluðu veðri sé utanaðkomandi atburður eða atburður sem menn verða að búa við. Ef menn slasast illa til dæmis ef það kemur brot á skipið, að það sé ekki bótaskylt slys. Þar sem ekki náðist sátt um þetta þá taldi stjórn félagsins mikilvægt að fá úr þessu skorið fyrir dómi, þannig að við bökkuðum manninn upp í þessum málaferlum,“ segir Valmundur. Ísfélagið beið sem fyrr segir lægri hlut í málinu og hyggst ekki áfrýja því. Það var jafnframt dæmt til að greiða allan málskostnað, alls 2,8 milljónir. Valmundur segir félagið vel hafa verið tilbúið til að taka á sig þann kostnað, hefði skipverjinn tapað málinu, enda afar mikilvægt fyrir sjómannastéttina alla að fá úr málum sem þessum skorið. „Við vorum ekki tilbúin í það á sínum tíma að sætta okkur við það að ef það kæmi brot á skip og menn myndu slasast að menn lægju bara óbættir. Nú hefur þetta verið viðurkennt, sem er mjög mikilvægt,“ segir Valmundur. „Við auðvitað fögnum þessari niðurstöðu mjög og erum ánægð með þennan dóm. Þeir áfrýja ekki sem er viðurkenning á dómnum að okkar mati.“
Tengdar fréttir Útgerðarfélag bótaskylt vegna slyss Ísfélag Vestmannaeyja fór fram á að skipverjinn beindi kröfum sínum til Tryggingamiðstöðvarinnar og vísaði meðal annars í ákvæði gildandi kjarasamnings. 10. febrúar 2016 11:45 Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Sjá meira
Útgerðarfélag bótaskylt vegna slyss Ísfélag Vestmannaeyja fór fram á að skipverjinn beindi kröfum sínum til Tryggingamiðstöðvarinnar og vísaði meðal annars í ákvæði gildandi kjarasamnings. 10. febrúar 2016 11:45