Vill að dómarar sýni fram á hreinan skjöld sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 20. september 2016 10:44 Jón Steinar Gunnlaugsson. vísir/gva
Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi hæstaréttardómari, segir það sæta furðu að innanríkisráðuneytið hafi hafnað tillögu um opinbera skrá um eignarhluti dómara í félögum og atvinnufyrirtækjum. Ákvörðunin gefi tilefni til tortryggni um að ekki hafi verið allt með felldu hér á landi í efnahagshruninu og vill að þeir sem hagsmuni kunni að hafa geri kröfur um að slíkar upplýsingar verði gerðar opinberar. Þetta kemur fram í aðsendri grein Jóns Steinar í Morgunblaðinu í dag. Hann vísar til fréttar sem birtist á Vísi á laugardag þar sem innanríkisráðuneytið segir meðal annars að starfsemi félaga og fyrirtækja sé afar mismunandi og kunni að vera þess eðlis að litlar sem engar líkur séu á að til hagsmunaárekstra geti komið. Því hafi ekki verið talið rétt að birta opinberlega upplýsingar um eignarhluti dómara.Sjálfsagt að upplýsingarnar liggi fyrir Jón Steinar segir svar ráðuneytisins út í hött og einna líkast því að verið sé að vernda eitthvað sem ekki þoli dagsljósið. Allir sjái hversu sjálfsagt það sé að fyrir liggi opinberar upplýsingar um hagsmunatengsl dómara við félög og atvinnufyrirtæki. „Menn verða að fá að gæta sjálfir hagsmuna sinna af því að ekki sitji í málum þeirra dómarar sem eru vanhæfir vegna tengsla sinna við sakarefni eða gagnaðila. Þeir hagsmunir taka leyndarhagsmunum dómara svo um munar,“ segir Jón Steinar. Hann undrast það jafnframt að í nýjum lögum um dómstóla sé að finna nýmæli þar sem mælt er fyrir um að opinber skrá liggi fyrir um aukastörf dómara, en eigi þó ekki við um eignarhluti í félögum eða atvinnufyrirtækjum. „Á undanförnum árum hafa verið kveðnir upp fjölmargir dómar, þar sem fyrirsvarsmenn fyrirtækja hafa verið dæmdir til fangelsisvistar fyrir stjórntök sín á bönkum og öðrum fyrirtækjum með dreifðri eignaraðild áður en efnahagsáföllin dundu yfir 2008. Í mörgum þessara dóma hafa birst úrlausnir sem telja verður afar hæpnar svo sem fram hefur komið með rökstuddum hætit á opinberum vettvangi. Það er margt metið sakborningum í óhag, án þess að röksemdir hafi fylgt,“ segir Jón Steinar.Dómarar eigi að sýna fram á hreinan skjöld Eðlilegt sé að þeir sem hafi sætt slíkri meðferð dómstóla eigi kröfu til þess að fá vitneskju um hvers kyns hugsanleg hagsmunatengsl dómara í málum þeirra við sakarefni málanna. „Hvort dómararnir hafi ef til vill sjálfir orðið fyrir fjárhagsskaða sem rekja megi til ætlaðra mistaka við stjórn banka. Fyrrgreind frétt gefur tilefni til tortryggni um að hér hafi ekki allt verið með felldu og ættu þeir sem hagsmuni kunna að hafa að gera nú kröfur um slíkar upplýsingar. Vonandi geta dómarar sýnt fram á að þeir hafi hreinan skjöld þegar þeir kváðu upp dóma sína.“
Tengdar fréttir Dómarar höfðu betur Innanríkisráðuneytið hafnaði tillögu nefndar um dómarastörf þess efnis að heimild yrði sett í dómstólalög um að haldin yrði opinber skrá um eignarhluti dómara í félögum og atvinnufyrirtækjum. 17. september 2016 07:00 Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Fleiri fréttir Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Sjá meira
Dómarar höfðu betur Innanríkisráðuneytið hafnaði tillögu nefndar um dómarastörf þess efnis að heimild yrði sett í dómstólalög um að haldin yrði opinber skrá um eignarhluti dómara í félögum og atvinnufyrirtækjum. 17. september 2016 07:00