Skápur nr. 106 Elmar Hallgríms Hallgrímsson skrifar 2. maí 2016 12:05 „Þetta er minn skápur, skápur nr. 106“, heyrði ég eldri mann segja við mig nýverið. Við vorum staddir í búningsklefanum í World Class í Laugum og þarna vorum við tveir félagarnir með skápa hlið við hlið og ekki önnur sála á svæðinu. Ég man að ég hugsaði með mér, vá, hvað þessi er skrítinn. Mér þótti það alveg magnað að hann þurfti að planta sér við hliðina á mér. Að sjálfsögðu datt mér ekki í hug að færa mig enda var ég þarna á undan og það eru ákveðin lögmál sem gilda í búningsklefum. Maður færir sig ekki ef maður kemur á undan, það er veikleikamerki, og það er eitthvað sem maður vill ekki sýna í búningsklefanum. Ég hugsaði með hryllingi hvort ég og eldri maðurinn myndum svo klára æfinguna okkar á sama tíma, við tveir saman aftur í klefanum, hlið við hlið, sveittir og önnur tilheyrandi ólykt. Vonandi ekki hugsaði ég með mér, vonandi ekki. Ég rölti upp í æfingasalinn og sá að hlaupabrettið mitt var laust. Ég tók mínar 15 mínútur á brettinu með FM 957, eins og ég hlusta alltaf á í ræktinni, og fór því næst í gegnum æfingarútínuna mína sem tók sínar 45 mínútur eins og vanalega. Ég var tiltölulega heppinn að þessu sinni og fáir sem þvældust fyrir mér í tækjunum þegar ég þurfti á þeim að halda. Það er nefnilega ákveðin rútína í gangi í ræktinni og ég þarf að taka æfingarnar í sömu röð í hvert sinn. Loks teygði ég í 10 mínútur eins og ég geri alltaf eftir æfingar. Eftir æfinguna sá ég að óttinn var ekki á rökum reistur, hvergi var eldri manninn að sjá og ég gat einn notið þess að vera í horninu mínu þar sem skápurinn minn er. Ég opnaði skápinn minn nr. 108, sem ég að sjálfsögðu nota alltaf þegar ég mæti í ræktina, fullur af sjálfstrausti enda vel heppnuð æfing að baki. Þá var komið að sturtuferðinni sem er alltaf nokkuð heilög hjá mér í ræktinni og er sama sturtan að sjálfsögðu valin í hvert sinn, enda mín sturta. Þar notast ég við hið mitt þriggja fasa kerfi, en í því felst að í fyrsta fasa á sér stað almenn skolun og þá er sápa borin á, í öðrum fasa er sápan skoluð af og í þriðja fasa á sér stað afslöppun í sturtunni. Eftir ræktina fékk ég mér svo eins og venjulega miðlungstóran Grænan ofurboozt, fullan af spínati og engifer. Í bílferðinni heim hugsaði ég til þess hve erfitt það hlýtur að vera fyrir suma að þurfa alltaf að gera það sama, fara í sama skáp í ræktinni og vera fastir í viðjum vanans. Gott að ég er ekki einn af þeim. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Köllum Skjöld Íslands réttu nafni: Rasískt götugengi Ian McDonald Skoðun Hverjir eru komnir með nóg? Nichole Leigh Mosty Skoðun Að leigja okkar eigin innviði Halldóra Mogensen Skoðun Evrópusambandsaðild - valdefling íslensks almennings Magnús Árni Skjöld Magnússon Skoðun Málþóf sem valdníðsla Einar G. Harðarson Skoðun Alltof mörg sveitarfélög á Íslandi! Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Þið voruð í partýinu líka! Gísli Sigurður Gunnlaugsson Skoðun Lýðheilsan að veði? Willum Þór Þórsson Skoðun Öryggi betur tryggt – fangelsismál færð til nútímans Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir Skoðun Sameiginleg yfirlýsing 28 ríkja um málefni Palestínu, hvers virði er hún? Einar Ólafsson Skoðun Skoðun Skoðun Sameiginleg yfirlýsing 28 ríkja um málefni Palestínu, hvers virði er hún? Einar Ólafsson skrifar Skoðun Alltof mörg sveitarfélög á Íslandi! Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Öryggi betur tryggt – fangelsismál færð til nútímans Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Lýðheilsan að veði? Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Evrópusambandsaðild - valdefling íslensks almennings Magnús Árni Skjöld Magnússon skrifar Skoðun Köllum Skjöld Íslands réttu nafni: Rasískt götugengi Ian McDonald skrifar Skoðun Hverjir eru komnir með nóg? Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Að leigja okkar eigin innviði Halldóra Mogensen skrifar Skoðun Málþóf sem valdníðsla Einar G. Harðarson skrifar Skoðun Klaufaskapur og reynsluleysi? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig spyr ég gervigreind til að fá besta svarið? Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Ertu bitur? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Er hægt að læra af draumum? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Afstæði Ábyrgðar Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Klassapróf fína fólksins – eða hvernig erfingjar kenna okkur að lifa Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Fjárhagslegt virði vörumerkja Elías Larsen skrifar Skoðun Við ákærum – hver sveik strandveiðisjómenn? Kjartan Páll Sveinsson skrifar Skoðun Þið voruð í partýinu líka! Gísli Sigurður Gunnlaugsson skrifar Skoðun Af hverju varð heimsókn framkvæmdastjóra ESB að NATO-fundi? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Veimiltítustjórn og tugþúsundir dáinna barna Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Bragðefni eru ekki vandamálið - Bann við þeim myndi skaða lýðheilsu Abdullah Shihab Wahid skrifar Skoðun Swuayda blæðir: Hróp sem heimurinn heyrir ekki Mouna Nasr skrifar Skoðun Skattar fyrst, svo allt hitt – og hagræðingin sem gleymdist Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Áfangasigur í baráttunni við hernaðinn gegn heimkynnum villta laxins Ingólfur Ásgeirsson,Árni Baldursson skrifar Skoðun Þetta er allt hinum að kenna! Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Þjóðþrifamálin sem stjórnarandstaðan fórnaði á altari útgerðanna Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Sleppir ekki takinu svo auðveldlega aftur Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til fullorðna fólksins Úlfhildur Elísa Hróbjartsdóttir skrifar Skoðun Vill Sjálfstæðisflokkurinn láta taka sig alvarlega? Dagbjört Hákonardóttir skrifar Skoðun Þjórsá í hættu – Hvammsvirkjun og rof á náttúrulegu ástandi árinnar Gunnar Þór Jónsson skrifar Sjá meira
„
Skoðun Sameiginleg yfirlýsing 28 ríkja um málefni Palestínu, hvers virði er hún? Einar Ólafsson skrifar
Skoðun Öryggi betur tryggt – fangelsismál færð til nútímans Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar
Skoðun Klassapróf fína fólksins – eða hvernig erfingjar kenna okkur að lifa Sigríður Svanborgardóttir skrifar
Skoðun Bragðefni eru ekki vandamálið - Bann við þeim myndi skaða lýðheilsu Abdullah Shihab Wahid skrifar
Skoðun Skattar fyrst, svo allt hitt – og hagræðingin sem gleymdist Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar
Skoðun Áfangasigur í baráttunni við hernaðinn gegn heimkynnum villta laxins Ingólfur Ásgeirsson,Árni Baldursson skrifar
Skoðun Þjóðþrifamálin sem stjórnarandstaðan fórnaði á altari útgerðanna Heimir Már Pétursson skrifar
Skoðun Þjórsá í hættu – Hvammsvirkjun og rof á náttúrulegu ástandi árinnar Gunnar Þór Jónsson skrifar