Fjölmargir Íslendingar voru á ferðinni í danska og sænska boltanum í kvöld en aðeins einn náði að skora.
Það var Ari Freyr Skúlason en hann skoraði seinna mark danska liðsins OB sem vann 0-2 á gegn Esbjerg. Hallgrímur Jónasson var einnig í liði OB í kvöld.
Jón Guðni Fjóluson og Arnór Ingvi Traustason voru báðir í byrjunarliði toppliðs sænska boltans, Norrköping, skellti Helsingborg, 3-0.
Hjörtur Logi Valgarðsson lék síðustu 35 mínútur leiksins fyrir Örebro sem tapaði, 3-2, gegn Kalmar. Örebro í efri hluta deildarinnar.
Haukur Heiðar Hauksson spilaði allan leikinn fyrir AIK sem gerði markalaust jafntefli gegn Jönköpings.
Hjörtur Hemannsson spilaði í 85 mínútur fyrir IFK Göteborg sem vann stórsigur, 2-6, gegn Gefle.
