Átök í Ikea: Kalla þurfti til öryggisverði vegna rifrildis um röðina inn í ævintýraskóginn Småland Birgir Olgeirsson skrifar 17. september 2016 19:56 Kalla þurfti til öryggisverði vegna málsins í Ikea í dag. Vísir
Til átaka kom á milli tveggja para í Ikea í Garðabæ á fjórða tímanum í dag sem áttu upptök sín í rifrildi vegna raðarinnar í ævintýraskóginn Småland, leiksvæði barna í versluninni. Til að komast inn á leiksvæðið þarf að taka númer en annað parið er sagt hafa gert það. Parið sem var með númer veitti því eftirtekt að í röðinni var kona með barn sem ekki hafði tekið númer. Parið á að hafa bent konunni á að hún yrði að taka númer en konunni á að hafa fundist það súr niðurstaða, að hafa beðið í tuttugu mínútur í röðinni en vera svo komin aftur fyrir aðra sem höfðu ekki beðið eins lengi en hins vegar tekið númer. Á starfsmaður einnig að hafa bent konunni á að hún yrði að taka númer. Maður konunnar blandað sér þá í málið og á að hafa sagt þetta ekki vera ásættanlega niðurstöðu. Parið sem tók númer fór því næst með barnið sitt inn á leiksvæðið á undan parinu sem var ekki var með númer. Parið sem var með númer gekk svo sína leið á meðan barnið þeirra skemmti sér í ævintýraskóginum en þegar það gekk fram hjá rúllustiganum við anddyri verslunarinnar hófust orðaskipti á milli paranna sem leiddu til þess að kalla þurfti til öryggisverði sem vísuðu pörunum úr Ikea. Samkvæmt heimildum Vísis ætlar annar maðurinn, sem var með númer í röðinni, að kæra manninn sem ekki var með númer en maðurinn sakar hinn um að hafa veitt sér áverka með því að slá sig í bringuna. Ætlar maðurinn að fara á fund lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á mánudag með áverkavottorð og leggja fram kæru. Þórarinn Ævarsson, framkvæmdastjóri Ikea, segist hafa orðið vitni að rifrildi paranna og að kallað hafi verið á öryggisverði til róa ástandið þar sem þetta átti sér stað í anddyri verslunarinnar á háanna tíma.
Tengdar fréttir Lá við slagsmálum vegna nýrra vegghilla í Söstrene Grene Í Smáralind náði röðin frá versluninni að Bæjarins bestu og var þar hleypt inn í hollum. 8. september 2016 12:58 Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Fleiri fréttir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Sjá meira
Lá við slagsmálum vegna nýrra vegghilla í Söstrene Grene Í Smáralind náði röðin frá versluninni að Bæjarins bestu og var þar hleypt inn í hollum. 8. september 2016 12:58