Veður versnar með morgninum Samúel Karl Ólason skrifar 7. mars 2016 08:29 Vísir/Stefán „
Á Hellisheiði og í Þrengslum versnar veður með morgninum. Frá hádegi og fram undir kl. 18-19 er reiknað með 15-18 m/s, hríðarveðri og skafrenningi.“ Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni og segir að veður verði svipað í Þrengslum og á Mosfellsheiði. Á láglendi hlánar og verður slydda eða rigning en ofan um 150 til 200 metra verður hríðarveður suðvestan- og vestanlands. Meðal annars eigi það við um Snæfellsnes og sunnanverða Vestfirði og einnig á Holtavörðuheiði og Bröttubrekku síðdegis. Hálka er á Hellisheiði, í Þrengslum og á Mosfellsheiði. Þá sé hálka eða snjóþekja á flestum vegum á Suðurlandi. Þá er þæfingsfærð á Krýsuvíkurvegi. Hálka og snjóþekja er víðast hvar á Vesturlandi og Vestfjörðum, og verið að hreinsa vegi þar sem þess þarf. Þæfingsfærð er á Klettshálsi. Það er talsvert autt eða aðeins í hálkublettum á Norðurlandi vestra, þó hálka á Þverárfjalli og víða á útvegum. Meiri hálka er hins vegar á Norðurlandi eystra og þar er víða snjóþekja en verið að hreinsa.Þæfingsfærð er á Möðrudalsöræfum eftir nóttina en hálka og snjóþekja á vegum á Austurlandi, suður undir Höfn. Á Suðausturlandi er autt milli Hafnar og Klausturs en þaðan eru hálkublettir að Vík.
Veður Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Sjá meira