Námskráin (sem ekki er til) og frumvarpið Jakob S. Jónsson skrifar 17. mars 2016 07:00 Fyrir Alþingi liggur lagafrumvarp sem lýtur að löggildingu leiðsagnar ferðamanna. Kveðið er á um að löggilding og starfsleyfi skuli veitt „hæfum leiðsögumönnum“ og hæfnin metin út frá „viðurkenndri námskrá“. Í frumvarpinu er „leiðsögn ferðamanna“ ekki skilgreind né gerð að vernduðu starfi. Það skiptir þó máli að greint sé á milli leiðsagnar, fararstjórnar og hópstjórnar, enda um mjög mismunandi þætti ferðaþjónustu að ræða. Það er þörf á því að skilgreina þessi hugtök til að koma megi böndum á starfsemi erlendra leiðsögumanna sem gera út erlendis frá til ferða hér á landi. Það er óviðunandi að menntun og kunnátta innlendra leiðsögumanna sé sniðgengin með því að erlendum leiðsögumönnum sé ekki gert skylt að hafa innlendan leiðsögumann sér við hlið. Samkvæmt frumvarpinu er leyfisveiting háð því að þeir sem leyfið fá hafi lokið „leiðsögunámi hérlendis sem uppfyllir kröfur námskrár“ eða hafi haft „leiðsögu ferðamanna hérlendis að aðalstarfi í samanlagt þrjú ár, enda sýni þeir með hæfnisprófi að þeir búi yfir þeirri þekkingu og færni sem þarf til að ljúka leiðsögunámi“. Þá er leyfi háð því sem stendur í 2. gr. laga nr. 26/2010, sem varða starfsemi erlendra þegna hér á landi. Frumvarpið er því um leið að löggilda leiðsögn erlendra leiðsögumanna, hafi þeir á annað borð tilskilin leyfi frá sínu heimalandi. Fimm skólar bjóða upp á leiðsögunám hér á landi: Leiðsöguskóli Íslands, sem heyrir undir MK, Símenntun á Akureyri, sem kennir samkvæmt samkomulagi við Leiðsöguskólann/MK, Endurmenntun Háskóla Íslands, Ferðamálaskóli Íslands og loks Keilir.Engin námskrá í gildi Staðan á leiðsögunámi á Íslandi er sú, samkvæmt upplýsingum frá ráðuneyti menntamála, að engin námskrá er í gildi sem stendur; árið 2011 var námskrá um framhaldsskóla numin úr gildi og hverri námsbraut gert að senda nýja námskrá til staðfestingar ráðuneytis. Leiðsöguskóli Íslands hefur enn ekki sent tillögu að námskrá til ráðuneytis og er hún því hvorki til né í ferli. EHÍ kennir samkvæmt námslýsingu sem fagráð leiðsögunáms hefur umsjá yfir; fagráðið hefur enga stjórnsýslustöðu og ákvarðanir þess gilda ekki sem námskrá í lagalegum skilningi. Ferðamálaskóli Íslands og Keilir kenna samkvæmt eigin námskrám en ekki samkvæmt því sem nefnt hefur verið „viðurkennd námskrá“ – sem er varla nema von fyrst engin viðurkennd námskrá um leiðsögunám er yfirhöfuð til. Til er Evrópustaðall um leiðsögunám (ÍST EN 15565:2008), samþykktur af Íslands hálfu, en ekki komið til framkvæmdar. Ástæða er til að þeir skólar, sem hér eru nefndir, könnuðu hvort þeirra námsframboð standist ekki kröfur Evrópustaðalsins, bættu úr þar sem þarf, og skilgreiningarvandi á því hvað er gild leiðsögumenntun væri þar með úr sögunni. Félag leiðsögumanna hefur um árabil ekki viðurkennt sem fagfélagsmenn aðra en þá sem lokið hafa námi frá Leiðsöguskóla Íslands/MK eða EHÍ. Ekki er ljóst á hvaða forsendum sú viðurkenning er veitt þar sem ekkert nám í leiðsögn telst viðurkennt eða löggilt frá 2011. Í lögum félagsins segir um inngöngu í fagfélagið: „Umsókn skal fylgja staðfesting leiðsöguprófs frá skóla, sem mennta- og menningarmálaráðuneytið viðurkennir og kennir samkvæmt gildandi námskrá ráðuneytisins.“ Þetta þýðir að enginn sem útskrifast hefur úr leiðsögunámi frá EHÍ er tækur í fagfélagið og ekki heldur neinn þeirra sem hafa útskrifast frá Leiðsöguskóla Íslands/MK eftir 2011 né öðrum skólum. Hér er komið að grundvallarspurningum fyrir starfandi leiðsögumenn: Hver hefur stjórnsýsluvaldið að ákveða hvað er gilt leiðsögunám á Íslandi og út frá hvaða forsendum? Til er Starfsgreinaráð ferðamálagreina sem hefur yfirsýn yfir menntunarþarfir og menntunarmál innan ferðaþjónustunnar. Þar er sá farvegur sem svona mál ættu að vinnast gegnum. Framundan er annasamt sumar. Félag leiðsögumanna þarf að vera tilbúið til að standa með sínu fólki og þjónusta vel. Þá verða forsendur og skilgreiningar á störfum félagsmanna að vera óumdeildar og starfsrammi félagsins skýr. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Byggjum fyrir eldra fólk, ekki ungt Ólafur Margeirsson Skoðun Hlustum í eitt skipti á foreldra Jón Pétur Zimsen Skoðun Hugleiðingar um ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs Örn Sigurðsson Skoðun Okkar lágkúrulega illska Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir Skoðun Stattu vörð um launin þín Davíð Aron Routley Skoðun Andaðu rólega elskan... Ester Hilmarsdóttir Skoðun Ég vildi óska þess að ég hefði hreinlega fengið krabbamein Íris Elfa Þorkelsdóttir Skoðun Öndum rólega – á meðan húsið brennur Magnús Magnússon Skoðun Eldri borgarar – áhrif aðildar að Evrópusambandinu (ESB) Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Skólaskætingur Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Stattu vörð um launin þín Davíð Aron Routley skrifar Skoðun Byggjum fyrir eldra fólk, ekki ungt Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Hlustum í eitt skipti á foreldra Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hugleiðingar um ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs Örn Sigurðsson skrifar Skoðun Heildstætt heilbrigðiskerfi – hagur okkar allra Alma D. Möller skrifar Skoðun Vanþekking eða vísvitandi blekkingar? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun „I believe the children are our future…“ Karen Rúnarsdóttir skrifar Skoðun Mikilvægi félagasamtaka og magnað maraþon Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Allt sem ég þarf að gera Dagbjartur Kristjánsson skrifar Skoðun Eldri borgarar – áhrif aðildar að Evrópusambandinu (ESB) Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Meiri gæði og mun minni álögur - Hveragerðisleiðin í leikskólamálum Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir,Sandra Sigurðardóttir,Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir,Halldór Benjamín Hreinsson,Njörður Sigurðsson skrifar Skoðun Reykjavíkurborg stígur fyrsta skrefið í snjallvæðingu umferðarljósa! Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Framtíðin í fyrsta sæti – mikilvægi forgangsröðunar á tillögum Kópavogsbæjar í grunnskólamálum Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Notkun ökklabanda Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Skólaskætingur Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir skrifar Skoðun Þéttingarstefnan hefur brugðist og Dóra breytir um umræðuefni Aðalsteinn Haukur Sverrisson skrifar Skoðun Ný sókn í menntamálum Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð, fálmandi mjálm eða aðgerðir? Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Vin í eyðimörkinni – almenningsbókasöfn borgarinnar Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Er Akureyri að missa háskólann sinn? Aðalbjörn Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu staðreyndir um alvarlegustu kvenréttindakrísu heims Stella Samúelsdóttir skrifar Skoðun Ég vildi óska þess að ég hefði hreinlega fengið krabbamein Íris Elfa Þorkelsdóttir skrifar Skoðun Mestu aularnir í Vetrarbrautinni Kári Helgason skrifar Skoðun Fjárfestum í fyrsta bekk, frekar en fangelsum Hjördís Eva Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftirlíking vitundar og hætturnar sem henni fylgja Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Andaðu rólega elskan... Ester Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Gagnvirkni líkama og vitundar til heilbrigðis Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Nýjar lausnir í kennslu – gamlar hindranir Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Kópavogsleiðinn Ragnar Þór Pétursson skrifar Skoðun Samstarf sem skilar raunverulegum loftslagsaðgerðum Nótt Thorberg skrifar Sjá meira
Skoðun Meiri gæði og mun minni álögur - Hveragerðisleiðin í leikskólamálum Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir,Sandra Sigurðardóttir,Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir,Halldór Benjamín Hreinsson,Njörður Sigurðsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg stígur fyrsta skrefið í snjallvæðingu umferðarljósa! Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar
Skoðun Framtíðin í fyrsta sæti – mikilvægi forgangsröðunar á tillögum Kópavogsbæjar í grunnskólamálum Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar
Skoðun Þéttingarstefnan hefur brugðist og Dóra breytir um umræðuefni Aðalsteinn Haukur Sverrisson skrifar