Tárin á bak við brosið, mátturinn í núinu Rúna Magnúsdóttir skrifar 22. apríl 2016 15:13 Ég ætla bara að játa það hér og nú, ég er forfallinn junkí. Ég er forfallinn, fljótfær og hugmyndaríkur frumkvöðull – slass – athafnakona með þráhyggju. Alveg frá því í æsku hef ég haft þessa undarlegu þrá að standa og falla með því sem ég geri. Þrá til að taka ábyrgð á mínum athöfnum, viðhorfum og oft á tíðum eigin fordómum. Þrá til að vera virt og viðurkennd kona í vestrænu samfélagi. Viljað taka þátt í leiðum sem geta bætt heiminn á einhvern máta. Í gegnum tíðina hef ég meðvitað neitað að hlusta á efasemdaraddir í kringum mig, hundsað athugasemdir fólks sem hefur einfaldlega viljað gefa mér góð ráð. Hvað þá að ég hafi leyft mér að hlusta á efasemda niðurbrjótandi röddina inni í mér, ó nei. Þar sem mitt starf hefur snúist um að hjálpa fólki við að finna sinn X-factor og ná sínum draumum hef ég talið mér trú um að ég þurfi að djöflast áfram. Líkt og aðrir frumkvöðlar hef ég gengið í öll þau hugsanlegu störf sem þarf að framkvæma til að láta fyrirtækið mitt ganga. Búið til fyrirlestra, prógrömm, markaðsgögn, markaðssett, selt, skrifað út reikninga og rukkað. Já, ég hef bara bitið á jaxlinn, brosað í gegnum tárin og þrammað áfram veginn, eins og jarðýta. Ég er jú forfallinn, fljótfær, hugmyndaríkur frumkvöðull sem þráir að eiga þátt í að breyta heiminum, ekki satt? Þegar samferðafólkið spyr mig á förnum vegi þessara klassísku íslensku spurningar: „Hvernig gengur? Brjálað að gera?“ þá svara ég oftast með einhverjum brandara, bæti við brosi og einhverjum jákvæðum, uppbyggilegum orðum. Á sama tíma langar röddinni innra með mér í raun að öskra og leyfa tárunum að streyma fram vegna áratuga rússíbanareiðar. En nú finnst mér vera komið nóg. Í dag er síðasti vetrardagur. Um leið og ég kveð þennan vetur ætla ég að kveðja mínar eigin klisjur og henda þessari uppsettu fullkomnu mynd af því hvað það er að vera frumkvöðull beint í ruslið. Ég ætla að taka á móti sumrinu með því að gefa mér leyfi til að taka niður varnirnar, vera mennsk, leyfa mér að sýna óhindraða væntumþykju og virðingu til annarra og treysta því að í núinu gerast kraftaverkin. Viltu vera memm?Pistillinn birtist fyrst í Markaðnum, 20. apríl 2016. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Halldór 18.05.2024 Halldór Heilbrigðiskerfi Íslands - Tími fyrir lausnir! Victor Gudmundsson Skoðun Birni Bjarnasyni svarað Arnar Þór Jónsson Skoðun Ef þú kýst Höllu Tómasdóttur eða Jón Gnarr gætirðu verið að kjósa Katrínu! Ole Anton Bieltvedt Skoðun Kjósum Katrínu Kjartan Ragnarsson Skoðun Baldur Þórhallsson er vitur og vís Bryndís Friðgeirsdóttir Skoðun Mesti stjórnmálamaðurinn? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Því miður ekkert annað í stöðunni en að fresta atkvæðagreiðslu um verkefni Heidelberg Gestur Þór Kristjánsson,Erla Sif Markúsdóttir,Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir,Grétar Ingi Erlendsson Skoðun „Ég skal baka fyrir Gunnar en ég kýs Kristján“ Páll Magnússon Skoðun Kosningum frestað Ása Berglind Hjálmarsdóttir,Hrönn Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Yfirborðskenndur stríðsáróður og McCarthýismi hjá háskólaprófessor Tjörvi Schiöth skrifar Skoðun Formaður húsfélagsins Guðmundur Andri Thorsson skrifar Skoðun Opið bréf til landsliðsmanna Íslands í blaki Guðbergur Egill Eyjólfsson skrifar Skoðun Ef þú kýst Höllu Tómasdóttur eða Jón Gnarr gætirðu verið að kjósa Katrínu! Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Kosningum frestað Ása Berglind Hjálmarsdóttir,Hrönn Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Mesti stjórnmálamaðurinn? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Birni Bjarnasyni svarað Arnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Því miður ekkert annað í stöðunni en að fresta atkvæðagreiðslu um verkefni Heidelberg Gestur Þór Kristjánsson,Erla Sif Markúsdóttir,Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir,Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Baldur Þórhallsson er vitur og vís Bryndís Friðgeirsdóttir skrifar Skoðun Kjósum Katrínu Kjartan Ragnarsson skrifar Skoðun Neikvæð áhrif þess að útiloka forsetaframbjóðendur frá kappræðum strax komin í ljós Ástþór Magnússon skrifar Skoðun Nýtt sveitarfélag Halla Signý Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Stafrænn ójöfnuður á upplýsingaöld Stella Samúelsdóttir,Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Varfærnisleg fagnaðarlæti Berglind Sunna Bragadóttir skrifar Skoðun „Ég skal baka fyrir Gunnar en ég kýs Kristján“ Páll Magnússon skrifar Skoðun Daðrað við sölu Björn Sævar Einarsson skrifar Skoðun Rannsóknir á söfnum skapa dýrmæta þekkingu Arndís Bergsdóttr skrifar Skoðun Sagan sem verður að segja Drífa Snædal skrifar Skoðun Nýsköpun innviða Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi fyrirtækja hætta með Rapyd Oddný Björg Rafnsdóttir skrifar Skoðun Forsetaframbjóðendur undir áhrifum Kremlverja? Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Bréf frá móður Berglind Fríða Viggósdóttir skrifar Skoðun Vill ekki lengur íslenzkan her? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Hafa íslensk fjarskiptafélög málað sig út í horn? Aron Heiðar Steinsson skrifar Skoðun Á Ísland framtíð í NATO? Hilmar Þór Hilmarsson skrifar Skoðun Fjallkonan nýja, hún Katrín Þorvaldur Logason skrifar Skoðun Heilsa íslenskrar þjóðar, samofin framþróun í læknisfræði á Íslandi Theódór Skúli Sigurðsson skrifar Skoðun Njótum reynslu Katrínar Valgerður Bjarnadóttir skrifar Skoðun Katrínu á Bessastaði Brynja Þorbjörnsdóttir skrifar Skoðun Eru stjórnvöld að virða réttindi barna á flótta? Hópur fólks í ungmennaráði UNICEF á Íslandi skrifar Sjá meira
Ég ætla bara að játa það hér og nú, ég er forfallinn junkí. Ég er forfallinn, fljótfær og hugmyndaríkur frumkvöðull – slass – athafnakona með þráhyggju. Alveg frá því í æsku hef ég haft þessa undarlegu þrá að standa og falla með því sem ég geri. Þrá til að taka ábyrgð á mínum athöfnum, viðhorfum og oft á tíðum eigin fordómum. Þrá til að vera virt og viðurkennd kona í vestrænu samfélagi. Viljað taka þátt í leiðum sem geta bætt heiminn á einhvern máta. Í gegnum tíðina hef ég meðvitað neitað að hlusta á efasemdaraddir í kringum mig, hundsað athugasemdir fólks sem hefur einfaldlega viljað gefa mér góð ráð. Hvað þá að ég hafi leyft mér að hlusta á efasemda niðurbrjótandi röddina inni í mér, ó nei. Þar sem mitt starf hefur snúist um að hjálpa fólki við að finna sinn X-factor og ná sínum draumum hef ég talið mér trú um að ég þurfi að djöflast áfram. Líkt og aðrir frumkvöðlar hef ég gengið í öll þau hugsanlegu störf sem þarf að framkvæma til að láta fyrirtækið mitt ganga. Búið til fyrirlestra, prógrömm, markaðsgögn, markaðssett, selt, skrifað út reikninga og rukkað. Já, ég hef bara bitið á jaxlinn, brosað í gegnum tárin og þrammað áfram veginn, eins og jarðýta. Ég er jú forfallinn, fljótfær, hugmyndaríkur frumkvöðull sem þráir að eiga þátt í að breyta heiminum, ekki satt? Þegar samferðafólkið spyr mig á förnum vegi þessara klassísku íslensku spurningar: „Hvernig gengur? Brjálað að gera?“ þá svara ég oftast með einhverjum brandara, bæti við brosi og einhverjum jákvæðum, uppbyggilegum orðum. Á sama tíma langar röddinni innra með mér í raun að öskra og leyfa tárunum að streyma fram vegna áratuga rússíbanareiðar. En nú finnst mér vera komið nóg. Í dag er síðasti vetrardagur. Um leið og ég kveð þennan vetur ætla ég að kveðja mínar eigin klisjur og henda þessari uppsettu fullkomnu mynd af því hvað það er að vera frumkvöðull beint í ruslið. Ég ætla að taka á móti sumrinu með því að gefa mér leyfi til að taka niður varnirnar, vera mennsk, leyfa mér að sýna óhindraða væntumþykju og virðingu til annarra og treysta því að í núinu gerast kraftaverkin. Viltu vera memm?Pistillinn birtist fyrst í Markaðnum, 20. apríl 2016.
Ef þú kýst Höllu Tómasdóttur eða Jón Gnarr gætirðu verið að kjósa Katrínu! Ole Anton Bieltvedt Skoðun
Því miður ekkert annað í stöðunni en að fresta atkvæðagreiðslu um verkefni Heidelberg Gestur Þór Kristjánsson,Erla Sif Markúsdóttir,Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir,Grétar Ingi Erlendsson Skoðun
Skoðun Yfirborðskenndur stríðsáróður og McCarthýismi hjá háskólaprófessor Tjörvi Schiöth skrifar
Skoðun Ef þú kýst Höllu Tómasdóttur eða Jón Gnarr gætirðu verið að kjósa Katrínu! Ole Anton Bieltvedt skrifar
Skoðun Því miður ekkert annað í stöðunni en að fresta atkvæðagreiðslu um verkefni Heidelberg Gestur Þór Kristjánsson,Erla Sif Markúsdóttir,Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir,Grétar Ingi Erlendsson skrifar
Skoðun Neikvæð áhrif þess að útiloka forsetaframbjóðendur frá kappræðum strax komin í ljós Ástþór Magnússon skrifar
Skoðun Heilsa íslenskrar þjóðar, samofin framþróun í læknisfræði á Íslandi Theódór Skúli Sigurðsson skrifar
Skoðun Eru stjórnvöld að virða réttindi barna á flótta? Hópur fólks í ungmennaráði UNICEF á Íslandi skrifar
Ef þú kýst Höllu Tómasdóttur eða Jón Gnarr gætirðu verið að kjósa Katrínu! Ole Anton Bieltvedt Skoðun
Því miður ekkert annað í stöðunni en að fresta atkvæðagreiðslu um verkefni Heidelberg Gestur Þór Kristjánsson,Erla Sif Markúsdóttir,Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir,Grétar Ingi Erlendsson Skoðun