Eitt þúsund frá Allianz í ofurtjaldi á Þingvöllum Benedikt Bóas Hinriksson skrifar 21. september 2016 07:00 Allianz tjaldaði öllu til þegar um þúsund manns komu hingað til lands í hvataferð. vísir/eyþór
Allianz fékk leyfi frá Þingvallagarði til að reisa þar í gær eitt þúsund fermetra veisluskála. Þjóðgarðurinn vildi ekki gleðskapinn í þinghelginni sjálfri og var veislutjaldið, sem reyndar er glerjað að hluta, því reist í Skógarhólum, þar sem Landssamband hestamanna hefur rekið áningarstað. Tjaldið verður tekið niður í dag. Mikil öryggisgæsla var við svæðið og var ljósmyndari Fréttablaðsins beðinn að halda sig á þjóðveginum er hann reyndi að nálgast tjaldið. Umstangið í kringum veisluna var gríðarlegt og ljóst að ekkert var til sparað. Ljós, hljóð og annað var í líkingu við stóra rokktónleika. Víkingarnir úr Rimmugýgi voru fengnir til að vera með atriði og fór fjölmennur hópur til að skemmta þýsku tryggingasölumönnunum. Tryggingafélagið tryggði að engar upplýsingar lækju út um heimsóknina því þeir íslensku starfsmenn sem komu að heimsókninni skrifuðu undir trúnaðaryfirlýsingu og máttu engu greina frá. Samkvæmt upplýsingum frá alþjóðaskrifstofu Allianz kom um þúsund manna hópur frá Þýskalandi hingað til lands á mánudag og leigði alla Hörpu undir ráðstefnu og fundi. Í gær var ögn frjálsari tími og skoðuðu sumir miðbæ Reykjavíkur en aðrir lögðu land undir fót. Í gærkvöldi var svo slegið í veisluklárinn á Þingvöllum. Hópurinn heldur af landi brott í dag. Kostnaðurinn lá ekki fyrir en ljóst er að hann hleypur á milljónum króna. „Við erum á Íslandi til að tala um tryggingar. Við völdum Ísland því hér er mikið af fólki sem lét hugmynd verða að veruleika eftir hrun fjármálakerfisins og á nú arðbær fyrirtæki. Það er gott fyrir starfsfólk okkar að tala við þannig fólk,“ segir í svari Allianz. Fréttin birtist fyrst í FréttablaðinuTjaldið var flutt inn frá Þýskalandi en borðbúnaður, ljós, hljóðkerfi og annað var leigt á Íslandi.vísir/eyþór
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Virðist alls ekki sjá eftir skvettunni Innlent Obama svarar ásökunum Trump og Gabbard um valdaránstilraun Erlent Starfsfólk kannist ekki við uppsteyt á kvennadeild Landspítalans Innlent Ætlar að kæra skvettarann sem segir árásina „bara brandara“ Innlent Karl Héðinn stígur til hliðar Innlent Skildirnir hafi hótað konum sem setji út á þá Innlent Þetta er fólkið á bak við Skjöld Íslands Innlent Umferð beint um Þrengslin í dag Innlent Sökk í mýri við Stokkseyri Innlent „Þetta er grátt mál þó ég hafi ekki gert neitt rangt“ Innlent Fleiri fréttir Sérsveitin handtók mann í Garðabæ „Íbúar eru einfaldlega komnir með nóg“ Einn handtekinn vegna frelsissviptingar í Árbæ Meirihluti vill banna sjókvíaeldi Almenn andstaða við sjókvíaeldi og neikvætt viðhorf til þéttingar byggðar „Þetta er grátt mál þó ég hafi ekki gert neitt rangt“ Ætlar að kæra skvettarann sem segir árásina „bara brandara“ Virðist alls ekki sjá eftir skvettunni Sökk í mýri við Stokkseyri Gosmóðan fýkur á brott Meirihluti landsmanna ánægður með söluna á Íslandsbanka Karl Héðinn stígur til hliðar 56 prósent landsmanna neikvæð gegn þéttingu byggðar Umferð beint um Þrengslin í dag Sjö í fangageymslum og þremur vísað úr kirkju Stöðug virkni í einum gíg og gosmengun spáð á Suðurlandi Ættingjar að verða fyrir hryllilegum ódæðum Starfsfólk kannist ekki við uppsteyt á kvennadeild Landspítalans Bergþórshvoll brenndur á fjögurra daga Njáluhátíð Skildirnir hafi hótað konum sem setji út á þá Fyrsti konsertflygilinn í Skálholtskirkju vígður „Hvetjum fólk til þess að treysta okkur bara fyrir því“ Sækja mann sem datt af hestbaki Lögregla afþakkar þjónustu Skjaldar Íslands og Guðni boðar brennu Félagið Ísland-Palestína harmar skvettuna Rán og frelsissvipting í Árbæ Mótmælandi skvetti málningu á ljósmyndara Morgunblaðsins Brottfararstöð dómsmálaráðherra komin í samráðsgátt Móðir og níu mánaða barn hætt komnar í Þrengslunum Þetta er fólkið á bak við Skjöld Íslands Sjá meira