Grunaður um tvær nauðganir: Á Litla-Hrauni næstu fjórar vikurnar Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 19. ágúst 2016 12:32 Maðurinn var handtekinn grunaður um nauðgun þann 25. júlí á Suðurnesjum en lögreglan taldi ekki ástæðu til að fara fram á gæsluvarðhald yfir honum í kjölfar þeirrar handtöku. Vísir/Getty
Ungur maður sem grunaður er um að hafa nauðgað tveimur fimmtán ára stúlkum með sex daga millibili mun vera í gæsluvarðhaldi á Litla-Hrauni næstu fjórar vikurnar. Héraðsdómur Reykjavíkur komst að þeirri niðurstöðu í dag en maðurinn, sem er nítján ára, hefur verið í haldi frá því hann var handtekinn þann 31. júlí. Er hann úrskurðaður í varðhald á grundvelli almannahagsmuna. Maðurinn var handtekinn grunaður um nauðgun þann 25. júlí á Suðurnesjum en lögreglan taldi ekki ástæðu til að fara fram á gæsluvarðhald yfir honum í kjölfar þeirrar handtöku. Eftir síðari handtökuna í Reykjavík var farið fram á fjögurra vikna gæsluvarðhald yfir honum en niðurstaðan varð varðhald í tvær vikur. Var ástæðan sú að fara átti fram mat á því hvort rétt væri að vista hann í fangelsi eða á viðeigandi stofnun. Hafði maðurinn sagst eiga pantaðan tíma á göngudeild geðdeildar og gengi ekki heill til skógar. Nú liggur fyrir að hann verður í fangelsinu á Litla-Hrauni næstu fjórar vikurnar. Frekara geðmat mun þó fara fram á manninum. Rannsókn gengur velKolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari segir í samtali við Vísi að rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sé lokið og komið inn á borð saksóknara. Beðið sé eftir niðurstöðum úr DNA rannsókn í málinu á Suðurnesjum. Rannsókn gangi vel enda séu mál í forgangi þegar maður sæti gæsluvarðhaldi á meðan rannsókn stendur.Báðar stúlkurnar greindu frá grófu ofbeldi af hendi hins meinta nauðgara. Fjölmörg vitni voru stödd í samkvæmi þegar sem síðara brotið á að hafa átt sér stað og ber þeim, samkvæmt greinargerð lögreglu, saman um aðalatriði málsins. Maðurinn verður að óbreyttu í gæsluvarðhaldi til 16. september en ekki liggur fyrir hvort verjandi mannsins muni kæra gæsluvarðhaldsúrskurðinn til Hæstaréttar.
Tengdar fréttir Stúlkurnar greina báðar frá grófu ofbeldi af hendi meints nauðgara Hinn grunaði hótaði að fyrirfara sér þegar lögregla kom að honum. Hann mun sæta geðrannsókn og verður í gæsluvarðhaldi til 19. ágúst. 9. ágúst 2016 16:47 Gæsluvarðhald yfir piltinum framlengt á grundvelli almannahagsmuna Úrskurðurinn hefur verið kærður til Hæstaréttar. 5. ágúst 2016 13:50 Grunaður um tvær nauðganir: Töldu ekki ástæðu til að fara fram á gæsluvarðhald við fyrri handtöku Sá grunaði sagðist við skýrslutöku þjást af ofsareiði. 11. ágúst 2016 16:34 Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Faðir Mary drottningar látinn Erlent Mette Frederiksen leitar yfir miðju Erlent Fleiri fréttir Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sjá meira
Stúlkurnar greina báðar frá grófu ofbeldi af hendi meints nauðgara Hinn grunaði hótaði að fyrirfara sér þegar lögregla kom að honum. Hann mun sæta geðrannsókn og verður í gæsluvarðhaldi til 19. ágúst. 9. ágúst 2016 16:47
Gæsluvarðhald yfir piltinum framlengt á grundvelli almannahagsmuna Úrskurðurinn hefur verið kærður til Hæstaréttar. 5. ágúst 2016 13:50
Grunaður um tvær nauðganir: Töldu ekki ástæðu til að fara fram á gæsluvarðhald við fyrri handtöku Sá grunaði sagðist við skýrslutöku þjást af ofsareiði. 11. ágúst 2016 16:34