Þú bjargaðir lífi mínu. Bjargaðu núna lífi annarra! Moses Akatugba skrifar 8. desember 2016 07:00 Kæri vinur, Ég heiti Moses Akatugba. Í tíu ár sat ég í fangelsi í Nígeríu. Ég var handtekinn, pyndaður og fangelsaður þegar ég var aðeins 16 ára gamall. Ég var dæmdur til dauða. Lögreglumenn börðu mig með sveðjum og prikum. Ég var bundinn á fótum og látinn hanga á hvolfi svo tímunum skipti. Neglur voru dregnar af fingrum mér og tám. Sársaukinn sem ég upplifði var ólýsanlegur. Í maí 2015 var aftaka mín stöðvuð og ég varð frjáls maður. Bréf ykkar frá Bréfamaraþoni Amnesty International björguðu lífi mínu. Þakka ykkur fyrir! Vinsamlegast hjálpið öðrum sem sætt hafa mannréttindabrotum eins og ég. Takið þátt í Bréfamaraþoninu 2016. Ég er sönnun þess að Bréfamaraþonið virkar í reynd. Án þeirra þúsunda bréfa og undirskrifta sem send voru til stuðnings máli mínu hefði ég mögulega aldrei hlotið frelsi. Þegar ég sat í fangelsi heyrði ég að fólk á Íslandi væri að berjast fyrir frelsi mínu. Ég vissi þó ekki fyrr en síðar, þegar ég heimsótti Ísland, að þið hefðuð verið svona mörg sem gripuð til aðgerða vegna mín. Aðgerðasinnar eins og þú eru hetjurnar mínar. Þú hefur blásið mér í brjóst löngunina til að gerast aðgerðasinni sjálfur – að berjast fyrir aðra. Viltu ganga til liðs við mig? Viltu berjast fyrir frelsi og réttlæti annarra með þátttöku í Bréfamaraþoni Amnesty í ár? Líf fólks er í húfi og þú getur hjálpað með aðgerðum þínum í Bréfamaraþoninu. Krefðu Obama, forseta Bandaríkjanna, um að láta það verða eitt sitt síðasta verk að veita mannréttindahetju sem afhjúpaði geðþóttaeftirlit stjórnvalda, sakaruppgjöf. Krefstu þess að stjórnvöld í Malaví verndi albínóa gegn morðum. Krefðu stjórnvöld í Íran um að láta unga konu sem er samviskufangi lausa úr haldi og veita henni þá bráðnauðsynlegu læknismeðferð sem hún þarf á að halda en hún er við það að missa sjónina. Um er að ræða einn stærsta mannréttindaviðburð í heimi sem haldinn er ár hvert í desember til að berjast fyrir málum eins og mínu. Sameinuð höfum við vald til að sigrast á óréttlæti. Ég ætla að leggja mitt af mörkum til að hjálpa fólki sem sætir mannréttindabrotum. Ætlar þú að leggja þitt af mörkum? Aðgerðir þínar eru ekkert minna en kraftaverk! Vinsamlegast, taktu þátt í að bjarga lífi. Farðu inn á www.amnesty.is og taktu þátt.Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Mannréttindi í Reykjavík í hættu Eldur Smári Kristinsson Skoðun Viðreisn gengur í verkin Róbert Ragnarsson Skoðun Þegar íslenskir embættismenn auglýsa ísraelskt njósnafyrirtæki Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Magnús Magnússon Skoðun Lifandi hvalir skapa líka verðmæti Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Líffræðileg fjölbreytni á undanþágu? Maren Davíðsdóttir Skoðun Nei Íslandsbanki ég er ekki 6 ára Kristján Logason Skoðun Heilbrigðisráðherra slær eigið heimsmet Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun Hvar mega okkar minnstu bræður borða? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Hangið frammi á gangi í von um fréttir Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Aldrei fleiri Ljón á Íslandi Selma Rut Þorsteinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Það sem kynslóðir byggðu – og okkar ábyrgð að varðveita Sveinn Kristjánsson skrifar Skoðun Handan óttans: Hvers konar Ísland viljum við byggja? Bjarndís Helena Mitchell skrifar Skoðun Lifandi hvalir skapa líka verðmæti Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Þegar íslenskir embættismenn auglýsa ísraelskt njósnafyrirtæki Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Magnús Magnússon skrifar Skoðun Hangið frammi á gangi í von um fréttir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Viðreisn gengur í verkin Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Mannréttindi í Reykjavík í hættu Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Hvernig líður fjölskyldunni? Auður Axelsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigðisráðherra slær eigið heimsmet Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Borgarlínan og Línuborg Soria Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun Hvaða börn koma fyrst? Lúðvík Júlíusson skrifar Skoðun Lífeyririnn okkar má ekki týnast Sandra B. Franks skrifar Skoðun Aldrei fleiri Ljón á Íslandi Selma Rut Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Mikilvægur áfangi fyrir eldri ökumenn Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Nei Íslandsbanki ég er ekki 6 ára Kristján Logason skrifar Skoðun Er gervigreind örlög eða stefna? Hanna Kristín Skaftadóttir skrifar Skoðun Menningarsjá og hlutverk hennar Anna Hildur Hildibrandsdóttir ,Erna Kaaber skrifar Skoðun Líffræðileg fjölbreytni á undanþágu? Maren Davíðsdóttir skrifar Skoðun Minna fólk – aðrar þarfir Bozena Raczkowska skrifar Skoðun Fullveldi og almannaheill Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Börnin fyrst, kerfið svo Inga Sæland skrifar Skoðun Hvar mega okkar minnstu bræður borða? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Núverandi heilbrigðiskerfi er ekki sjálfbært – aukið einkaframtak er hluti af lausninni Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Valdatafl og viðskiptapólitík í lagareldi Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Sálin tekin úr skólunum Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Matvælaverð, tollar og heimildavinna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Stefna og innleiðing hennar á óvissutímum Jóhanna Gunnþóra Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hinar myrku hliðar deilds fullveldis: Sýndaráhrif og uppgjöf smáríkis Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Stækkar skrifræðið við inngöngu í ESB? Tölurnar segja annað Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Á úfnum sjó eða lygnum Daði Már Kristófersson skrifar Sjá meira
Þegar íslenskir embættismenn auglýsa ísraelskt njósnafyrirtæki Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Magnús Magnússon Skoðun
Skoðun Þegar íslenskir embættismenn auglýsa ísraelskt njósnafyrirtæki Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Magnús Magnússon skrifar
Skoðun Núverandi heilbrigðiskerfi er ekki sjálfbært – aukið einkaframtak er hluti af lausninni Sævar Þór Jónsson skrifar
Skoðun Hinar myrku hliðar deilds fullveldis: Sýndaráhrif og uppgjöf smáríkis Eggert Sigurbergsson skrifar
Þegar íslenskir embættismenn auglýsa ísraelskt njósnafyrirtæki Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Magnús Magnússon Skoðun