Eigendur keppninnar höfðu sagt henni að hún yrði að grenna sig fyrir lokakvöldið. Arna Ýr greindi frá því og sagðist ekki ætla að taka þátt ef eigendurnir myndu ekki draga það til baka. Síðar steig hún fram og sagði að um misskilning hefði verið að ræða en dró það til baka og sagðist hafa verið neydd af eigendum keppninnar til að segja það.
Gáfu 40 þúsund dollara vinning til kynna
Nú er hún hætt við þátttöku í keppninni og var henni hrósað innilega af þáttastjórnendum Þriggja í fötu en Arna Ýr greindi frá því í þættinum að eigendur keppninnar hefðu reynt að fá hana aftur í keppnina.

Fólk skynjaði að ekki væri allt með felldu
Þáttastjórnendur höfðu á orði að þeir hefðu fundið fyrir því að ekki væri allt með felldu þegar Arna Ýr birti yfirlýsingu á Snapchat þar sem hún sagði að um misskilning hefði verið að ræða. Sögðu þáttastjórnendur að þær hefðu jafnvel skynjað að verið væri að kúga Örnu til að segja þetta.
Arna sagðist hafa verið afar þakklát því að fólk hefði séð í gegnum þetta Snapchat hennar og skynjað að ekki væri allt með felldu.
„Þetta var ekki ég og ég skammaðist mín eftir að hafa sagt þetta en það var ekkert annað í stöðunni á þessum mómenti og stundum þarf maður að gera það sem maður þarf að gera.“
Eigandinn stóð fyrir framan hana með hún tók upp Snapchat-ið
Þegar Arna Ýr tók upp skilaboðin um misskilningin stóð eigandi keppninnar og framkvæmdastjóri fyrir framan hana en Arna sagði þau hafa misst stjórn á skapi sínu eftir að Arna hafði greint frá því að hún hefði verið beðin um að grenna sig. Hún sagði þau hafa sagt sér að hún væri búin að eyðileggja orðstír keppninnar og hún yrði að koma til móts við þau með nýrri yfirlýsingu.
Arna gerði það, leið illa og hugsaði með sér að hún myndi ekki taka þátt því þetta væru ömurlegar aðstæður sem hún væri komin í.
Vildi borga farið til Íslands svo hún hætti keppni
Það var á þessu auganbliki sem íslensk kona hafði samband við hana. Konan þekkti ekki Örnu Ýr persónulega en sagðist hafa séð á þessum skilaboðum á Snapchat að ekki væri allt með felldu. Hún sagði Örnu að yfirgefa keppnina og að hún vildi bóka flugfar fyrir hana frá Las Vegas til Íslands.
„Hún veit ekki hver ég er en var tilbúin að eyða pening til að koma mér heim úr þessu bulli. Um 150 þúsund krónum sem sýnir hversu hjálplegt fólk getur verið, sérstaklega Íslendingar,“ sagði Arna.
Hún sagði þetta vera bestu ákvörðun sem hún hefur tekið. „Ég er bara ofurstoltur Íslendingur.“
Hér fyrir neðan má sjá Facebook-færslu sem Arna Ýr ritaði um málið í morgun: